Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2016, Síða 48
Helgarblað 2.–5. september 2016
69. tölublað 106. árgangur Leiðbeinandi verð 785 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Hæ, Rúrik!
Í sextánda sæti
á Billboard
n Jack Magnet, þar sem
Jakob Frímann Magnússon
er forsprakki, gaf út plötu
í Bandaríkjunum í síðasta
mánuði og er hún nú í 16. sæti á
bandaríska Billboard-listanum.
Platan er enn ekki komin út
á Íslandi en í Bandaríkjunum
hefur hún verið að fikra sig upp
frá 34. sæti, að 28., þá 20. og nú
16. Þetta er djassskotin plata
með frumsaminni instrumental
tónlist, Upptökustjóri er
Grammy-
verðlaunahafinn
Paul Brown sem
kom fram með
Jack Magnet á
Secret Solstice-
hátíðinni í júní
síðstliðnum.
Ung kona var bitin en varð ekki meint af
F
jórir skógarmítlar fundust í
sama garðinum í Vík í Mýr-
dal á dögunum. Starfsmaður
Náttúrufræðistofnunar Ís-
lands var sendur á vettvang
eftir að ung kona var bitin af slíku
kvikindi í garði og lét stofnunina
vita. „Já, stúlkan var svo handviss
um að hafa fengið þetta úr garðin-
um sínum þannig að ég fékk að
leita í garðinum og fann þar nokkra
mítla undir og í grennd við rifs-
berjarunna,“ segir Matthías Alfreðs-
son líffræðingur. Að mati Matthí-
asar er líklegast að skógarmítlarnir
hafi dottið af fuglum sem hafist við
á svæðinu eftir að hafa
flogið yfir til landsins frá
suðrænni slóðum.
Skógarmítlar hafa
fundist um allt land
undanfarin ár en flest
dæmin eru á sunnan-
verðu landinu. Þá bár-
ust fréttir af því fyrr í
sumar að nokkrir mítl-
ar hefðu fundist á Höfn í
Hornafirði sem og að slíkt kvik-
indi hefði fundist fast á ketti á Ísa-
firði. „Það hefur ekki verið staðfest
að skógarmítlar lifi af veturinn hér-
lendis og ekki er vitað til að þeir hafi
náð að fjölga sér. Hins vegar er
alveg ljóst að skógarmítlar berast til
landsins á hverju vori með farfugl-
um og ef til vill fáum við misstóra
sendingu ár hvert,“ segir Matthí-
as. Náttúrufræðistofnun Íslands og
Tilraunastöðin á Keldum blésu til
rannsóknar á útbreiðslu og algengi
skógarmítils hér á landi í sumar
og er Matthías í forsvari fyrir rann-
sóknina ásamt Erlingi Ólafssyni
skordýrafræðingi.
Tvær algengustu sýkingarnar
sem skógarmítlar geta borið með
sér eru mítlaheilabólga (TBE) og
bakterían borrelíósa sem getur
valdið langvinnum liðagigtarsjúk-
dómi, svokölluðum Lyme-sjúk-
dómi. Á Norðurlöndunum er talið
að 1–3% skógarmítla séu sýktir.
Ekki er hægt að fullyrða hvort sýkt-
ir skógarmítlar hafi borist til lands-
ins því ekki er leitað eftir því á þeim
kvikindum sem finnast hérlend-
is. „Það væru mjög áhugaverðar
upplýsingar og við reiknum með
því að hefja slíka rannsókn að öll-
um líkindum frá og með næsta
hausti,“ segir Matthías. Hann bend-
ir á að sé sýkingartíðni skógarmítla
á ákveðnu svæði undir 10% og mít-
ill fjarlægður innan 18 klukkutíma
þá séu afskaplega litlar líkur á sýk-
ingu. n
bjornth@dv.is
Fjórir skógarmítlar í sama garðinum í Vík
Serum sem gefur húðinni ljóma, vellíðan og nærir hana. Notast eitt
og sér eða undir dagkrem. Húðin fær sérstaklega jafna og fallega
áferð. Hentar öllum húðgerðum, sérstaklega gott fyrir þurra /
viðkvæma húð.
FACE SERUM – UNISEX
Hreinsandi, nærandi og rakagefandi maski
sem gæðir húðina nýju lífi. Örvar blóðrásina,
fjarlægir dauðar húðfrumur, jafnar húðlit,
dregur saman húðholur og gefur frískleika.
Ilmandi spa kerti unnið úr náttúrlegum og lífrænum
olíum. Vaxið er unnið úr nærandi olíum sem má bera beint
á húðina þegar það bráðnar. Notist sem herbergisilmur
og berist á þurra bletti og þreytt svæði.
LEMONGRASS /
SWEET AMBER
HOME
FACEMASSAGE
CANDLE MASK
RADIANT
Fást í Laugar Spa, World Class & worldclass.is
100% hreinar & náttúrulegar vörur.
Ekki prófaðar á dýrum.
HAUSTTVENNA
FACE MASK RADIANT & HOME MASSAGE CANDLE
Aðeins kr. 8.490 fullt verð kr. 15.480
Bústinn
skógarmítill
Útbelgdur eftir góða máltíð.
Flugvallarmálið
enn og aftur
n Flugvöllurinn í Vatnsmýri er
enn og aftur í umræðunni og
nokkrir þingmenn hafa lagt fram
þingsályktunartillögu um þjóðar-
atkvæðagreiðslu um það hvort
flugvöllurinn eigi að vera eða fara.
Dr. Gunni er einn þeirra sem leiður er
á umræðunni og segir á bloggsíðu
sinni: „Það er ákveðinn sjarmi í að
hafa flugvöllinn þarna. Lummulega
huggó að heyra drunurnar og
sjá ferlíkin fljúga yfir borgina til
lendingar. Stutt að fara út á völl.
Mér er alveg sama þótt draumur
Kaffivest-tvíddstera um Ikeahverfi
í Vatnsmýri verði
að veruleika
annars staðar.
Ætli ég kjósi ekki
bara að hafa
flugvöllinn áfram
þar sem hann
er. Samt gæti
mér eiginlega
ekki verið
meira
sama.“