Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2016, Blaðsíða 6
Helgarblað 23.–26. september 20166 Fréttir
Guðrúnartúni 4,
105 reykjavík
Sími: 533 3999
www.betraGrip.iS
Opið
virka
daga frá
kl. 8–17
gæða
dekk á
góðu
verði
Fimm stærstu stofurnar
högnuðust um 1.645 milljónir
n Logos hagnaðist jafn mikið og hinar fjórar til samans n 5,3 milljarða hagnaður frá bankahruni
S
amanlagður hagnaður fimm
af stærstu lögmannastofum
landsins nam 1.645
milljónum króna á árinu
2015 og jókst um 230 millj
ónir frá fyrra ári. Logos, stærsta lög
mannastofan hér á landi, var sem
fyrr í algjörum sérflokki en á síðasta
ári skilaði stofan hagnaði upp á 824
milljónir króna eftir skatta. Starf
semi félagsins í London, þar sem
Logos hefur starfrækt skrifstofu frá
því í ársbyrjun 2006, átti stóran þátt
í bættri afkomu á milli ára – hagnað
urinn jókst um meira en 200 milljón
ir – en tæplega 40 prósent af hagnaði
Logos komu til vegna reksturs stof
unnar á Bretlandi. Eigendur Logos
voru sautján í árslok 2015 og því má
áætla að arðgreiðslur til þeirra vegna
hagnaðar síðasta árs hafi að meðaltali
numið 48,5 milljónum króna.
Samkvæmt nýbirtum ársreikning
um lögmannastofanna fimm – Logos,
Lex, BBA Legal, Landslaga og Mark
arinnar – þá batnaði afkoma þeirra
allra á milli ára nema í tilfelli Lex þar
sem hagnaður stofunnar dróst saman
um 60 milljónir og nam samtals 146
milljónum á síðasta ári. Tekjur Lex,
sem er næst stærsta lögmannastofa
landsins, voru ríflega 1.100 milljón
ir á árinu 2015 og drógust saman um
liðlega 90 milljónir frá fyrra ári. Hafi
allur hagnaður félagsins verið greidd
ur út í arð, líkt og venja er, þá hafa
sautján eigendur Lex að meðaltali
fengið í sinn hlut um 8,6 milljónir. Það
er umtalsvert lægri arðgreiðsla borið
saman við hinar lögmannastofurnar.
Góð afkoma BBA Legal
Hjá BBA Legal, þriðju stærstu lög
mannastofunni á Íslandi, jókst hagn
aðurinn lítillega og var 265 milljónir
króna í fyrra. Meira en þriðjungur af
725 milljóna króna tekjum stofunn
ar, eða ríflega 36 prósent, skilaði sér
sem hagnaður félagsins en til saman
burðar var þetta hagnaðarhlutfall að
eins 13 prósent hjá Lex. Afkoma BBA
Legal í fyrra hefur að óbreyttu þýtt
að sjö eigendur stofunnar hafa að
meðal tali fengið tæplega 38 milljónir
króna í arð. BBA Legal hefur á undan
förnum árum jafnan verið í hópi
þeirra lögmannastofa sem hafa skil
að hvað mestum hagnaði en ástæða
þess er meðal annars sú að ýmsir er
lendir aðilar hafa verið hlutfallslega
stórir í hópi viðskiptavina stofunnar.
Heildarvelta þessara þriggja stærstu
lögmannastofa landsins – Logos, Lex
og BBA – var 4,5 milljarðar á árinu
2015 og jókst hún um 400 milljónir
frá fyrra ári.
Landslög og Mörkin lög
mannastofa áttu einnig góðu gengi
að fagna í fyrra og nam hagnaður
þeirra hvorrar um sig ríflega 200
milljónum króna. Sjö eigendur Mark
arinnar báru hins vegar nokkuð
meira úr býtum en eigendur Lands
laga, sem eru tólf talsins, en þeir hafa
að meðaltali fengið um 34 milljónir
króna í sinn hlut í arð. Í hópi eigenda
á Mörkinni eru hæstaréttarlög
mennirnir Gestur Jónsson og Hörður
Felix Harðarson en þeir eru verjend
ur Sigurðar Einarssonar, fyrrverandi
forstjóra Kaupþings, og Hreiðars Más
Sigurðssonar, fyrrverandi forstjóra
Kaupþings, í markaðsmisnotkunar
máli Kaupþings en málflutningi í því
máli fyrir Hæstarétti lauk fyrr í þess
um mánuði.
2,7 milljarða velta Logos
Afkoma flestra íslenskra lög
mannastofa batnaði stórlega í kjöl
far fjármálaáfallsins haustið 2008
vegna aukinna umsvifa í tengslum
við gjaldþrot og fjárhagslega endur
skipulagningu margra stærstu fyrir
tækja landsins. Það hefur ekki síst átt
við um starfsemi Logos en á tímabil
inu 2009 til 2015 hefur samanlagð
ur hagnaður stofunnar numið tæp
lega 5,3 milljörðum króna. Á síðasta
ári jukust þannig tekjur Logos um ríf
lega 20 prósent og voru samtals 2.666
milljónir króna. Meðalfjöldi stöðu
gilda á árinu var 70,2 og hélst sá fjöldi
nánast óbreyttur á milli ára. Á með
al eigenda Logos eru hæstaréttarlög
mennirnir Óttar Pálsson, Þórólfur
Jónsson og Guðmundur Oddsson, en
sá síðastnefndi stýrir skrifstofu Logos
í London.
Mikill hagnaður Logos á undan
förnum árum skýrist ekki síst af þeim
stóru verkefnum sem lögmanna
stofan hefur sinnt fyrir erlenda að
ila sem hafa átt mikilla hagsmuna að
gæta hér á landi. Þar vega þyngst verk
efni í tengslum við uppgjör gömlu
bankanna sem luku allir nauða
samningum um síðastliðin áramót. Í
þeirri vinnu starfað Logos náið með
alþjóðlegu lögmannastofunni Akin
Gump (áður Bingham) sem ráðgjaf
ar stærstu kröfuhafa Glitnis, Kaup
þings og gamla Landsbankans (LBI).
Þannig var Óttar Pálsson einn mikil
vægasti ráðgjafi kröfuhafa í gegnum
allt slitaferli bankanna og átti stór
an þátt í því að fá helstu kröfuhafa
Glitnis til að fallast á stöðugleikaskil
yrði íslenskra stjórnvalda í byrjun
júní 2015 þar sem þeir samþykktu
meðal annars að inna af hendi svo
nefnt stöðugleikaframlag upp á ríf
lega 230 milljarða króna. Óttar var
jafnframt kjörinn í fjögurra manna
stjórn eignarhaldsfélags Kaupþings á
fyrsta aðalfundi félagsins um miðjan
mars fyrr á þessu ári. n
Hörður Ægisson
hordur@dv.is
Einn eigenda
Markarinnar
Hörður Felix
Harðarson
Einn eigenda
Landslaga
Jóhannes Karl
Sveinsson
Einn eigenda BBA
Baldvin Björn
Haraldsson
Einn eigenda Lex
Helgi Jóhannesson
Einn eigenda
Logos
Óttar Pálsson
Hagnaður
á árinu 2015
824 milljónir
146 milljónir263 milljónir
203 milljónir
209 milljónir
G
jaldþrotaskiptum hjá Smáís,
Samtökum myndréttarhafa
á Íslandi, lauk á dögunum og
námu lýstar kröfur tæpum
16,5 milljónum króna.
Í Lögbirtingablaðinu er greint
frá skiptalokum, en þeim lauk þann
15. september síðastliðinn. Engar
eignir fundust í búinu. Smáís voru
úrskurðuð gjaldþrota af Héraðs
dómi Reykjavíkur í ágúst árið 2014.
Það var stjórn Smáís sem óskaði
eftir því á sínum tíma að félagið
yrði tekið til gjaldþrotaskipta. RÚV
greindi frá því árið 2014 að ástæð
an væri brot fyrrverandi fram
kvæmdastjóra samtakanna, Snæ
björns Steingrímssonar. Snæbjörn
var framkvæmdastjóri samtakanna
á árunum 2007 til 2013 að hann lét
af störfum.
Í gjaldþrotaskiptabeiðninni
kom fram, samkvæmt fyrrnefndri
frétt RÚV, að ársreikningar samtak
anna hafi verið falsaðir, opinber
um gögnum ekki verið skilað með
réttum hætti og vanrækt hefði verið
að færa bókhald. Þá hafi Snæbjörn
viðurkennt fjárdrátt fyrir stjórninni.
Samtökin voru stofnuð árið
1992 sem hagsmunagæsluaðili
rétthafa myndefnis á Íslandi. Áður
en samtökin lögðu upp laupana
háðu þau harða og stundum óvin
sæla baráttu gegn ólöglegu niður
hali á netinu. n
Sextán milljóna
gjaldþrot Smáís
Fór í þrot vegna fjárdráttar framkvæmdastjórans
Framkvæmdastjórinn Snæbjörn
viðurkenndi fjárdrátt fyrir stjórninni.