Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2016, Qupperneq 4
Helgarblað 25.–28. nóvember 20164 Fréttir
Eldbakaðar pizzur
hafnargata 36a, kEflavík / nálægt flugstöðinni
salur
fyrir
hópa
sími 557 1007
hamborgarar,
salöt, pasta,
kjúklingavængir
og flEira
Landsbankinn ábyrgðist
skaðabætur út af Valitor
n Gæti þurft að borga milljarða í skaðabætur vegna lokunar á Wikileaks n Lofaði Arion skaðleysi
L
andsbankinn gæti þurft að
greiða milljarða króna vegna
skaðabótamálsins sem
Datacell og Sunshine Press
Productions (SPP) hafa höfð
að gegn greiðslukortafyrirtækinu Va
litor. Ástæðan er sú að Landsbank
inn gekkst í desember 2014 í ábyrgðir
vegna tjóns sem stafaði af lögbrotum
stjórnenda Valitor þegar bankinn
seldi Arion banka 38% hlut sinn í
fyrir tækinu. Stjórnendur Landsbank
ans lofuðu einnig skaðleysisábyrgð
í öðrum skaðabótamálum tengdum
Valitor og þá meðal annars þeim sem
rekja má til samkeppnislagabrota
sem greiðslukortafyrirtækið stundaði
þegar núverandi bankastjóri Arion
banka var forstjóri þess.
Margþætt skaðleysi
Ríkisendurskoðun vekur athygli á
samkomulaginu við Arion banka um
skaðleysisábyrgðina í skýrslu sinni
um eignasölu Landsbankans á ár
unum 2010 til 2016 sem stofnun
in birti á mánudag. Sala bankans á
eignarhlutnum í Valitor er þar rifjuð
upp en Arion banki keypti hann á
3,6 milljarða króna í lokuðu sölu
ferli og hefur síðan þá átt 99% hlut
í greiðslukortafyrirtækinu. Lands
bankinn samdi að auki um hlutdeild
í þeim hagnaði sem rann til Valitor
vegna samruna Visa Inc. í Bandaríkj
unum og Visa Europe en hún nam
á endanum 3,5 milljörðum króna. Í
skýrslunni er þó bent á að skaðleysis
ábyrgðin kunni að hafa „nokkur áhrif
á ávinning bankans af sölunni“ en
endanlegar fjárhæðir sem Lands
bankinn mun þurfa að endurgreiða
Arion liggja ekki ekki enn fyrir.
Ljóst er að Landsbankinn lofaði
tvenns konar skaðleysi. Annars vegar
gekkst hann í ábyrgð fyrir 38 prósent
um af þeim upphæðum sem Valitor
kynni að þurfa að greiða vegna fjögurra
skaðabótamála. Þrjú þeirra tengjast
brotum Valitor á samkeppnislögum
sem tilgreind voru af Samkeppnis
eftirlitinu árin 2008 og 2013. Hösk
uldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion
banka, var forstjóri Valitor á árun
um 2006 til 2010 þegar fyrirtækið,
ásamt öðrum samkeppnis aðilum sín
um, viðurkenndi að hafa tekið þátt í
langvarandi og ólögmætu samráði og
misnotað markaðsráðandi stöðu sína.
Landsbankinn veitti Arion banka
einnig skaðleysi í þrjú ár frá undir
ritun kaupsamningsins ef í ljós kæmi
að Valitor yrði gert að greiða skaða
bætur og/eða stjórnvaldssektir vegna
brota á samkeppnislögum sem varða
önnur mál. Ábyrgðin nær þó einung
is til sekta eða skaðabóta umfram
300 milljónir króna og aldrei meira
en söluverðinu á hlutnum í greiðslu
kortafyrirtækinu.
Gæti orðið dýrt
Nú tæpum tveimur árum síðar ligg
ur fyrir niðurstaða í tveimur málum
sem Landsbankinn gekkst í ábyrgð
fyrir. Bankinn hefur vegna þeirra greitt
146,6 milljónir króna og metur það svo
að mögulegar greiðslur vegna hinna
ábyrgðanna geti numið um 92 milljón
um króna. Aftur á móti er, eins og bent
er á í skýrslu Ríkisendurskoðunar, ekki
vitað hvort og hversu háa upphæð Va
litor þarf að greiða fyrirtækjunum
Datacell og SPP vegna skaðabóta
máls sem fyrirtækin höfðuðu fyrir
Héraðsdómi Reykjaness. Málið snýst
um meint tjón vegna riftunar Valitor
á söluaðilasamningi við Datacell sem
tryggði því greiðslugátt fyrir SPP, fyrir
tækið að baki uppljóstrunarsíðunni
Wikileaks. Gáttin var lokuð í 617 daga
og lögðu fyrirtækin tvö upphaflega
fram átta milljarða króna skaðabóta
kröfu.
Hæstiréttur hafði staðfest heim
ildarskort Valitor til riftunar samn
ingsins í desember 2014. Dómkvadd
ir matsmenn hafa metið tjónið á
tæpa 3,2 milljarða en yfir matsmenn
voru í síðustu viku fengnir til að yf
irfara það mat. Von er á niðurstöðu
þeirra í febrúar á næsta ári. Sveinn
Andri Sveinsson, lögmaður Datacell
og SPP, segir kröfuna standa í fimm
til sex milljörðum króna með drátt
arvöxtum. Líkt og kemur fram í skýr
slu Ríkisendurskoðunar mun Lands
bankinn þurfa að greiða 38 prósent
fjárhæðarinnar sem úr skaðabóta
málinu kemur en þó ekki meira en
sem nemur 3,6 milljarða króna sölu
verði eignarhlutarins í Valitor. n
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
Bankastjórarnir Steinþór Pálsson ætlar ekki að hætta
sem bankastjóri Landsbankans þrátt fyrir svarta skýrslu
Ríkisendurskoðunar um eignasölu bankans í stjórnartíð
hans. Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka,
var forstjóri Valitor þegar ákvarðanir voru teknar
þar sem gætu á endanum kostað Landsbankann
talsverða fjármuni vegna skaðleysisákvæða
í kaupsamningi sem bankastjórarnir tveir
undirrituðu í desember 2014.
Fóru að jafnaði tvisvar
Margir veiðimenn gengu aldrei til rjúpna
T
æplega 800 rjúpnaveiðimenn
fóru að jafnaði 2,2 sinnum til
veiða á nýyfirstaðinni vertíð. Í
könnun sem gerð var á vinsæl
um vef skotveiðimanna á Face
book var spurt hversu marga
veiðidaga veiðimenn eltust
við rjúpu. Spurt var: „Hvað
fórst þú marga daga á
rjúpu í haust?“ Þegar þetta
er skrifað hafa 789 svarað
könnuninni. Valmöguleik
arnir voru dagafjöldi á bilinu
0–12. Niðurstöðurnar leiða í ljós
að 28 prósent fóru aldrei á rjúpu. Úr
svörunum má líka lesa að 82 pró
sent þeirra sem yfir höfuð héldu
til rjúpnaveiða, fóru fjóra daga eða
færri. Sárafáir fóru fleiri daga en átta.
Um er að ræða Facebook
könnun í hópi skotveiðimanna en
í því samhengi má taka fram að
hún er ekki vísindalega unnin. Hún
gæti þó gefið hugmynd um hvernig
skyttur höguðu veiðum sínum
á vertíðinni. Rysjótt veður
var víða um land, sérstak
lega tvær af þeim fjórum
helgum sem rjúpnaveið
ar voru heimilar. SKOT
VÍS hefur talað fyrir því
að veiðidögum verði fjölg
að. Það væri til þess fallið að
auka öryggi veiðimanna, sem
gætu þá valið að fara við betri að
stæður, auk þess sem í opinberum
gögnum hefur komið fram að veiði
menn fara ekki oftar til rjúpna veiða
þótt veiðitímabilið sé lengt. n
baldur@dv.is
Fór
aldrei
Einn
dagur
Tveir
dagar
Þrír
dagar
Fjórir
dagar
Fimm
dagar
Sex eða
fleiri
Sóknardagar á rjúpu
221
139 127 117
83
36
66