Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2016, Page 8
Helgarblað 25.–28. nóvember 20168 Fréttir
Enginn 80 milljarða
undanskotspottur
n Talað um að fjármagna mikilvæg verkefni með því að sækja áætluð skattsvik
Ó
raunhæft getur verið að tala
um að sækja megi 80–100
milljarða króna, sem áætlað
hefur verið að skotið sé undan
skatti á hverju ári á Íslandi, til
að fjármagna uppbyggingu grunn-
stoða samfélagsins og önnur mikil-
væg verkefni.
Katrínu Jakobsdóttur, formanni
Vinstri grænna, hefur bæði fyrir og
eftir kosningar verið tíðrætt um þessa
upphæð og hvernig hana megi nota,
auk annarra úrræða, til að ráðast í
nauðsynlegar aðgerðir í heilbrigðis-
og menntamálum og til að leiðrétta
kjör aldraðra og öryrkja.
Fræðileg nálgun
Víða mátti heyra talað um þennan
80 milljarða undanskotspott í að-
draganda kosninga og margir flokk-
ar höfðu þá stefnu að taka undanskot
frá skatti fastari tökum. Þessi tala, 80
milljarðar, er fengin úr niðurstöðum
starfshóps á vegum ríkisskattstjóra
sem í fyrra kannaði mögulegt um-
fang undanskota frá sköttum hér-
lendis. Þar kom fram að rösklega 80
milljarða vantaði upp á þær skatttekj-
ur sem umsvif í þjóðfélaginu gáfu vís-
bendingar um. Svokallað skattagap.
Á þessari upphæð hefur síðan
verið hamrað í umræðunni líkt og
þarna sé um peninga að ræða sem
liggi innan seilingar og þurfi bara að
sækja til að ráðstafa í mikilvæg verk-
efni. Málið er hins vegar ekki svo ein-
falt. Staðreyndin er sú að þarna var
um að ræða fræðilega nálgun á því
hvernig skattar hefðu átt að skila sér,
sem er ekki það sama og að þessir
fjármunir gætu verið í hendi, segir
ríkisskattstjóri.
Viðskipti sem annars
færu ekki fram
„Það er örugglega hægt að ná ein-
hverjum hluta þessara fjármuna með
því að herða eftirlitið,“ segir Skúli Egg-
ert Þórðarson ríkisskattstjóri í sam-
tali við DV. Spurningin sé hins vegar
hversu miklu væri hægt að ná. Ástæð-
an er sú að skattagapið mælir allt.
„Líka viðskipti sem hafa farið fram
í skjóli þess að það er dulið hagkerfi,
viðskiptum sem myndu ekki fara
fram nema af því að þau eru dulin.
Menn koma sér saman um einhvers
konar undanskot frá sköttum og á
grundvelli þeirra undanskota fara
fram viðskipti. Ef allt þarf að vera uppi
á borðum og aðstæður eru þannig að
skattyfirvöld ná öllum upplýsingum
getur verið að menn endurmeti það
sem þar fer fram.“
Fjölga yrði starfsfólki verulega
Meðal kosningaloforða Vinstri
grænna, var að stórefla skatteftirlit
og skattrannsóknir til að stemma
stigu við undanskotum einstaklinga
og fyrirtækja frá velferðarkerfinu. Í
því samhengi hefur formanninum
verið tíðrætt um hina fræðilegu 80–
100 milljarða sem starfshópur ríkis-
skattstjóra talaði um. Sem stendur
starfa um 250 manns hjá embætti
ríkisskattstjóra og á þriðja tug hjá
skattrannsóknarstjóra. Skúli Eggert
segir aðspurður að fjölga þyrfti
starfsmönnum verulega til að koma
sem bestum böndum á undanskotin.
„Það er alveg ljóst að ef menn
raunverulega ætla að ná einhverjum
miklum árangri í þessu þarf mjög
mikinn mannafla og tilkostnað. En
hver króna sem við setjum í beint
skatteftirlit mun skila sér margfalt til
baka í formi aukinna tekna til ríkis og
sveitarfélaga.“
Skúli Eggert bendir á að í fjárauka-
lögum fyrir þetta ári hafi embættið
fengið 37,5 milljóna viðbótarfram-
lag sem sérstaklega var merkt skatt-
eftirliti. Það var aukið með ýmsum
hagræðingaraðgerðum í því skyni að
efla forvarnir. „Og eftir því sem tím-
inn líður ætti það að verða til þess að
skattagapið minnki.“
Á svipuðu róli og
hin Norðurlöndin
Landslagið hefur að sögn Skúla breyst
í þá veru að nú eru miklu færri undan-
skot í gegnum aflandsfélög en fyrir
10 árum. Umtalsverður hluti undan-
skota var áður í tengslum við slík félög
en það er minnihluti núna vegna þess
að færri fara þá leið vegna þess hvern-
ig umræðan hefur verið auk þess sem
fjármálaumsvif Íslendinga á erlendri
grundu hafi minnkað.
„Þetta er stöðugt verkefni sem
aldrei þrýtur. Ef við metum hvar við
erum á róli við önnur lönd þá erum
við á mjög svipuðum stað og hin
Norðurlöndin og við munum birta
úttekt á því á næstunni. Við teljum
að ástandið sé skárra hér á landi en
í ýmsum öðrum löndum, einkum
sunnar í Evrópu og við erum á svip-
uðu róli hin Norðurlöndin. n
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Fræðileg upphæð Vinstri græn hafa talað fyrir því að fjármagna hluta stefnumála sinna og aðgerða með fræðilegum 80 milljörðum sem áætlað hefur verið að skotið sé undan skatti
árlega hérlendis. MyNd Sigtryggur Ari
Þyrfti mikinn mannafla Skúli Eggert
Þórðarson ríkisskattstjóri segir að það muni
kosta mikinn mannafla og peninga til að ná
miklum árangri í að sækja skattundanskot.
Hver króna sem sett sé í skatteftirlit skili sér
þó margfalt til baka.
„Ef menn raun-
verulega ætla að
ná einhverjum miklum
árangri í þessu þarf mjög
mikinn mannafla og
tilkostnað.
IP Dreifing | www.hrefna.is | hrefna@hrefna.is | sími: 577-3408
Farðu nýjar leiðir og prófaðu gómsætar
hrefnulundir á grillið eða á pönnuna
snöggsteiktar að hætti meistarakokka
Frosið hrefnukjöt
fæst í næstu verslun
Marinerað
& ÓMarinerað
hreFnukjöt