Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2016, Page 16
Helgarblað 25.–28. nóvember 201616 Fréttir
Mekka íssins
Erum í miðbæ
Hveragerðis
Ís í vél, 4 tegundir | Kúluís
Pinnaís | Krap | Bragðarefur
Ísfrappó | Sælgæti | Franskar
Samlokur | Gos | Snakk
Bland í poka | Pylsur | Kaffi
Opnunartími
mán-fim 10 - 21 / fös 10 - 22
lau 12 - 22 og sun 12 - 21 Breiðamörk 10, Hveragerði
Mæta ekki í vinnuna
en fá 62 milljónir í laun
n Líf Brynjars komið í rugl n Mánuður liðinn án þess að þing hafi verið kallað saman
A
lþingi hefur enn ekki verið
kallað saman að afloknum
kosningum. Í tvígang hafa
stjórnarmyndunarviðræður
nú siglt í strand og á meðan
sitja þingmenn, nýkjörnir og endur-
kjörnir, aðgerðarlausir í bið. Engin
þingstörf fara fram, engar þingnefndir
eru starfandi enda ekki búið að skipa í
þær. Þingmenn njóta hins vegar launa
sinna á meðan.
Eftir ákvörðun kjararáðs um
hækkun launa kjörinna fulltrúa,
sem tekin var 29. október, hækkaði
þingfararkaup í ríflega 1,1 milljón
króna á mánuði. Það þýðir að um
komandi mánaðamót þarf íslenska
ríkið að greiða tæpar 62 milljónir
króna í laun til þingmanna sem hafa
þó ekki enn mætt til vinnu. Um 56
þingmenn er að ræða en auk þeirra
sitja 7 þingmenn á ráðherrastólum,
sinna sínum verkum þar og fá greidd
laun fyrir.
Þingmenn hafa svo sem ekki
setið auðum höndum þennan tæpa
mánuð sem liðinn er frá kosningum.
Sumir þeirra hafa verið uppteknir
við stjórnarmyndunarviðræður en
fjarri því allir. Þannig hafa þing-
menn Framsóknarflokksins engan
þátt tekið í slíkum viðræðum en þeir
eru fjórir, utan ráðherra flokksins.
Þeir hafa hins vegar ekki sinnt þing-
skyldum.
„Vil komast í vinnu, takk“
Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, segir að nú sé nóg
komið. Nú verði að fara að kalla
saman þing, ekki síst í ljósi þess að
nauðsynlegt sé að afgreiða fjárlög. Þá
sé þessi bið að setja líf hans á annan
endann. „Mér finnst þetta alls ekki
gott og það getur ekki dregist leng-
ur að þingið komi saman. Það er allt
í lagi þó að þing hafi ekki farið á fulla
ferð strax eftir kosningar en núna,
þegar er að koma desember, verður
bara að kalla þing saman. Það setur
líka þrýsting á menn að klára þessa
stjórnarmyndun.“
Brynjar samsinnir því að ekki
sé um góða meðferð á fjármun-
um ríkisins að ræða. „Nei, en það
er nú margt í ríkisrekstrinum sem
ekki er góð meðferð á fjármunum.
En þetta er alveg ömurleg staða. Ég
þarf helst að hafa alltaf reglu á lífinu,
að hafa takt í vinnunni. Ég hafði þá
reglu að mæta alltaf klukkan níu á
skrifstofuna og var þar allan daginn
nema ef ég þurfti á fund út í bæ. Nú
er ég búinn að rugla sólarhringnum
og þetta er allt komið í rugl. Þess
vegna fer ég að horfa á bíómyndir
um miðjar nætur eða les bók fram
eftir öllu. Þetta er ekki gott, þannig
að ég vil komast í vinnu, takk.“ n
Allt í rugli Brynjar vill fara að komast í vinnuna enda sé hann búinn að snúa sólarhringnum við og allt komið í vitleysu. Mynd Sigtryggur Ari
Freyr rögnvaldsson
freyr@dv.is „Nú er ég
búinn
að rugla sólar-
hringnum og
þetta er allt
komið í rugl
Fundaði með
útgerðar-
mönnum
Benedikt Jóhannesson, formaður
Viðreisnar, hefur í mörg horn að
líta þessa dagana. Eitt verkefna
hans á fimmtudag var að svara
fyrir meintar dylgjur í sinn garð á
Facebook-síðu útvarpsmannsins
Frosta Logasonar. Frosti birti fær-
slu þar sem fullyrt var að Bene-
dikt hefði gengið á fund Guð-
mundar Kristjánssonar, forstjóra
Brims, daginn fyrir viðræðuslit
um stjórnarmyndun. Gaf Frosti
í skyn að það hlyti að hafa verið
örlagaríkur fundur.
Benedikt bregst við með því
að frábiðja sér slíkar dylgjur en
viðurkennir að hafa fundað með
Guðmundi að hans beiðni. Guð-
mundur hafi viljað fá Benedikt til
að útskýra „þessar vitlausu hug-
myndir Viðreisnar“ um markaðs-
leið í sjávarútvegi. Benedikt tók
því fagnandi að fá tækifæri til
að upplýsa Guðmund og greinir
einnig frá því að fundinn hafi líka
setið Vilhjálmur Vilhjálmsson,
forstjóri HB Granda.
Eftir fundinn hafi forstjórarnir
áttað sig á um hvað málið snerist.
„Þeir voru kannski ekki sannfærðir
um það, en breytingar verða ekki
nema samtal eigi sér stað,“ segir
Benedikt á Facebook-síðu sinni.
Björgunar-
sveitarmenn
slösuðust
Tveir björgunarsveitarmenn
slösuðust við leit að manni á
Vatnsnesi seint á miðvikudags-
kvöld. Mennirnir voru að leita
að bónda sem saknað var eftir
að hann fór að vitja hrossa í
Hlíðardal. Björgunarsveitar-
mennirnir sem slösuðust voru
saman á vélsleða þegar slys
varð og voru þeir fluttir með
þyrlu Landhelgisgæslunnar á
Landspítalann í Fossvogi.
Bóndinn sem leitað var
fannst, kaldur og hrakinn, en
um 55 manns komu að leitinni.
Var bóndinn fluttur á Heil-
brigðisstofnunina á Hvamms-
tanga til aðhlynningar.