Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2016, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2016, Síða 22
Helgarblað 25.–28. nóvember 201622 Fólk Viðtal „Mig langar til að eiga þúsund líf“ V ið mælum okkur mót á Kringlukránni, sem hentar vel enda eru bæði Borgar- leikhúsið og DV staðsett í verslunarmiðstöðinni sem veitingastaðurinn dregur nafn sitt af. Blaðamaður hafði fram til þessa ávarpað leikkonuna sem Þuríði en var snarlega bent á að hún kysi að vera kölluð Blær. „Mér þykir vænt um Þuríðar nafnið en ég hef alltaf verið kölluð Blær. Þegar mamma gekk með mig þá las hún Brekku- kotsannál og fékk hugljómun þegar hún sá nafnið Blær. Hún ákvað þá að hún myndi láta skíra mig þessu nafni og því má segja að Halldór Laxness beri ábyrgð á nafn- inu mínu. Akkúrat um sama leyti þá var sett bann við nafninu á stúlkur og því mátti ég ekki heita þessu nafni. Amma mín, Þuríður, féll síðan frá þegar ég var ný- fædd og þá varð úr að ég var skírð í höfuðið á henni. Í Þjóðskrá hét ég því Þuríður Jóhannsdóttir en var alltaf kölluð Blær,“ segir hún og brosir. Það var ekki fyrr en í lok janúar 2013, að loknu dómsmáli sem nafna hennar Blær Bjarkadóttir háði og vann, sem mannanafnanefnd úrskurðaði að stúlkur mættu heita Blær. Þá bætti Þuríður Jóhannsdóttir því snarlega við nafnið sitt í Þjóðskrá. Stefnt á leiklist frá fyrstu tíð Strax í barnæsku ákvað hún að verða leikkona og hefur hvergi hvik- að frá þeirri stefnu. „Ég sagðist ætla að verða leikkona strax í leikskóla. Líklega gera það margir en síð- an rjátlaðist það aldrei af mér. Ég held að rótin sé sú að mig langaði til þessa að prófa allt, eiga þúsund líf og upplifa alls konar hluti. Það er að einhverju leyti hægt sem leikari. Ég held að þessi þrá mín til að leika og þá helst sem fjölbreyttust hlutverk, gæti jafnvel tengst einhverri dauða- hræðslu,“ segir Blær sposk. Óhefðbundnar fjölskylduaðstæður Hún er einkabarn foreldra sinna, Ilmar Árnadóttur og Jóhanns V. Gunnarssonar. „Ég hef heyrt að einkabörn og yngstu börn verði oft leikarar. Ég held að það sé af því að við lærum að nota sjarmann sem eins konar verkfæri til þess að ná okkar fram,“ segir hún. For- eldrar hennar skildu að skiptum þegar Blær var ung að árum og hún var alin upp af móður sinni með dyggri hjálparhönd foreldra henn- ar. „Fjölskylduaðstæður mínar voru kannski ekki alltaf hefðbundnar og það hafði örugglega mikil áhrif á mig. Kannski var það veganesti inn í leiklistina því stundum fann maður sér annan heim og ímyndunaraflið fékk lausan tauminn. Ég tengi sterkt við Sölku Völku að því leyti að ég hef verið í aðstæðum sem eru öðru- vísi, utanveltu hvað varðar sambýl- ismunstur og í skóla. En að sama skapi hef ég aldrei látið það stöðva mig. Ég hef sett mér markmið og fylgt þeim eftir,“ segir Blær og leggur áherslu á orð sín. Fyrstu skrefin Hún fékk smjörþefinn af leiklistinni í grunnskóla þegar hún tók þátt í hæfileikakeppninni Skrekk með Austurbæjarskóla og eftir það heltók leiklistarbakterían hana. „Ég átt- aði mig á því að ég gæti þetta alveg, að þetta lægi ef til vill fyrir mér. Eft- ir Skrekk fór ég að taka leiklistina af meiri alvöru og verja tíma í hana. Ég fór síðan í MH að stórum hluta út af því að ég hafði þá ímynd í hug- anum að þetta væri leik- listarskóli,“ segir Blær. Ástæðuna má rekja til þess að Tyrfingur Tyrfingsson, sem þá var í námi í MH, hafði leik- stýrt áðurnefndri Skrekkssýningu. Blær leit mjög upp til hans og vann mikið með honum næstu árin. Tyrfingur, sem var leikskáld Borg- arleikhússins í fyrra, varð eins konar mentor Blævar þessi fyrstu skref hennar í leiklistinni. „Ég var síðan í leikfélagi MH í tvö ár og síð- an stofnuðum við nokkur sjálfstæðan leikhóp á þriðja árinu. Þetta var mjög kraftmikið ungt fólk sem veitti mér mikinn innblástur,“ segir hún. Þurfti tvær tilraunir til Rétt fyrir stúdentsprófið fór hún síðan inntökupróf fyrir leiklistar- deild Listaháskólans en komst ekki inn í fyrstu tilraun. „Ég komst í loka- hópinn en var síðan ekki valin inn. Eftir á að hyggja gerði ég kannski smá mistök að segjast ætla að koma strax aftur í prufur þegar ég var spurð hvað ég myndi gera ef ég kæmist ekki inn [hlær]. En eftir á að hyggja var þetta mjög gott og í raun og veru léttir. Ég fann strax að ég passaði á þessum tíma ekkert inn í hópinn sem síðan komst inn,“ segir Blær. Tvö ár voru í næsta inntöku- próf og Blær notaði tímann vel. „Ég fór aðeins að vinna og safna peningum, til dæmis við uppvask á veitingastað. Þar vann ég eiginlega bara með útlendingum og á staðnum var farið illa með starfsfólk. En fyrir mig var þetta áhugaverð reynsla sem ég bý að. Síðan ferðaðist ég til Grikk- lands og sótti leiklistarnámskeið en aðallega til að læra að vera „kona“ og síðan fór ég í japönsku í háskólan- um,“ segir Blær. Þar fann hún sig svo um munar. „Ég hafði mikinn áhuga á manga-teiknimyndum og þaðan kom áhuginn á japönskunni. Þetta var ótrúlega skemmtilegt nám og ég hafði lokið einu ári þegar ég fór aftur í inn- tökupróf fyrir LHÍ,“ segir Blær. Áhugi hennar á japönskunni gerði að verk- um að hún fór afslöppuð í prufurnar. Hún var með aðra áætlun ef ekki gengi sem skyldi. Japönskunámið verður þó að bíða því Blær flaug í gegnum síuna og hóf nám í LHÍ veturinn 2012. Náin fjölskylda „Árin í LHÍ voru stórkostlegur en á sama tíma krefjandi tími. Þetta nám tekur rosalega á og áður en ég byrj- aði hafði ég heyrt talað um að nem- endurnir þyrftu nánast að kveðja fjöl- skyldu sína og vini því ekkert annað kæmist að. Ég hélt að það gæti ekki verið en svo var það að einhverju leyti rétt! Dagarnir voru mjög langir en þannig er lífið í leikhúsinu líka og því var þetta frábær undirbúningur,“ seg- ir Blær. Árgangarnir í leiklistardeild LHÍ eru fámennir, aðeins 10 nem- endur, sem gerir að verkum að þeir verða oft mjög samrýmdir. „Okkar hópur small strax saman og við urð- um strax eins og lítil fjölskylda, með öllum þeim kostum og göllum sem því fylgja. Til dæmis fórum við í út- skriftarferð og reyndum að skemmta okkur eins og ungu fólki sæmir en þess í stað fórum við bara að rífast um pólitík. Rétt eins og í einhverju leiðin- legu fjölskylduboði,“ segir Blær hlæj- andi. Auðsýnt er að henni þykir afar vænt um skólafélaga sína. Reykjavíkurdætur spretta fram Blær er ekki einhöm þegar kem- ur að listinni. Í öllu annríkinu í LHÍ tókst henni að stofna rapphljóm- sveit, nánast óvart, með vinkonum sínum. Frá fyrstu tíð hefur Blær ver- ið einn af burðarásunum í Reykja- víkurdætrum, rappsveitinni um- deildu sem sífellt tekur ný skref fram á við. Hljómsveitin myndað- ist út frá rappkonukvöldi árið 2013 þar sem allar sem hljóðnema gátu valdið voru hvattar til þess að láta í sér heyra. Strax frá byrjun vakti sveitin, eða öllu heldur hópurinn, mikla athygli fyrir ögrandi texta- smíðar sem voru þó í raun aðeins á svipuðum nótum og karlkyns rapp- arar höfðu látið gamminn geisa um lengi. Farin í frí „Ég get í raun ekki sagt þér hvað við erum margar. Þetta er ótrúlega öflugur hópur og þær eru margar dæturnar sem eru í einhvers konar listnámi og munu láta mikið að sér kveða á næstu árum, ég er sann- færð um það,“ segir Blær. Þess- ir bakgrunnur margra í sviðslistum nýtist svo sannarlega sveitinni því það eru ekki síst tónleikar sveitar- innar sem að hafa vakið athygli og umtal, sérstaklega að utan. Á nýaf- staðinni Airwaves-hátíð voru atriði Reykjavíkurdætra þau umtöluðustu og á teikniborðinu er tónleikaferð til útlanda, sem er að frumkvæði erlendra skipuleggjenda. Blær ætlar hins vegar að taka sér hlé frá sveitinni: „Það er leiðinlegt því ég myndi gjarnan vilja taka þátt í þessu ævintýri. Það er hins vegar svo mik- ið að gera í leikhúsinu að ég þarf að einbeita mér að því. Leiklistin tekur alla mína skapandi orku. Kannski get ég verið með endurkomu þegar um hægist hjá mér en ég geng ekki að því vísu. Ég myndi í raun og veru ekki vilja það nema ég hefði eitthvað fram að færa til sveitarinnar. Ég vil bæta lit í þennan regnboga en ekki bara teika lestina,“ segir hún. Komin með þykkan skráp Að hennar sögn þá hefur þátttaka hennar í Reykjavíkurdætrum hjálpað henni varðandi fyrstu skrefin í leiklistinni. „Við vöktum mikla athygli og umtal sem var ekki allt jákvætt. Margir voru hrifnir en svo voru aðrir sem létu fúkyrðun- Milli jóla og nýárs mun Borgarleikhúsið frumsýna Sölku Völku í nýrri leikgerð hinnar litháísku Yönu Ross. Þar mun leikkonan Þuríður Blær Jóhannsdóttir leika burðarhlutverkið, sem er hennar stærsta til þessa. Blær, eins og hún er alltaf kölluð, settist niður með blaðamanni DV og sagði frá leiklistarbakteríunni sem byrjaði í leikskóla, upplifuninni af leikhúsinu, þátttökunni í Reykjavíkurdætrum og síðast en ekki síst hvernig Nóbelsskáldið ber ábyrgð á nafni hennar. Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Þuríður Blær Jóhannsdóttir Móðir Blævar las Brekkukotsannál eftir Halldór Kiljan Laxness á meðgöngunni og féll fyrir nafninu. Hún gat ekki borið nafnið löglega í Þjóðskrá fyrr en um 22 ára aldur. MyNd dV ehF / SigtRygguR ARi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.