Morgunblaðið - 07.01.2017, Page 25

Morgunblaðið - 07.01.2017, Page 25
FRÉTTIR 25Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 2017 AULIKA TOP Frábær kaffivél fyrir meðalstór fyrirtæki 4.900,- án VSK Þjónusta- & leigugjald á mán. GRAN CREMA Frábær kaffivél fyrir lítil fyrirtæki 3.900,- án VSK Þjónusta- & leigugjald á mán. COSMETAL Kolsýruvatnskælir fyrir kröfuharða 5.500,- án VSK Þjónusta- & leigugjald á mán. Drykkjarlausnir fyrir þitt fyrirtæki Hagkvæmara en þú heldur! Selhella 13 | 221 Hafnarfjörður | Sími 564 1400 | kerfi@ke rfi.is | kerfi.is Dæmi: Fagleg & persónuleg þjónusta ÚR BÆJARLÍFINU Líney Sigurðardóttir Þórshöfn Nýtt ár heilsaði með rysjóttu veðri og ekki komust allir jólagestir burtu á áætluðum tíma sökum veð- urs. Dyntóttir veðurguðir hafa einn- ig áhrif á sjósóknina, en þrír línu- bátar róa frá Þórshöfn um þessar mundir, allir innan við 15 tonn að stærð og því undanþegnir verkfalli og eru innan Landssambands smá- bátaeigenda. Aðeins einn þeirra hef- ur farið í róður eftir áramót, Litla- nesið sem er í eigu Ísfélags Vestmannaeyja. Frystihús félagsins stendur nú hljótt vegna sjó- mannaverkfallsins, líkt og aðrar fiskvinnslur í landinu, og lítið fer fyrir loðnuleit þessa dagana.    Afar snjólétt hefur verið hér á norðausturhorninu það sem af er vetri og haustið var einstaklega gott. Nóvember var óvenjulegur góður svo elstu menn muna vart eft- ir svo góðu veðri á þeim árstíma. Fé var tekið seint á hús og hey voru al- mennt næg og góð. Það var ekki fyrr en jólin nálguðust að tíðin fór að versna með eilífum lægðagangi og stormbeljanda. Milda veðráttan fram að því styttir þó veturinn, finnst fólki, og snjóleysið virðist ekki hafa plagað neinn nema helst börnin og kostnaður sveitarfé- lagsins vegna snjómoksturs er í minna lagi.    Engin sjoppa er lengur á Þórs- höfn og eftirsjá að Grillskálanum, sem brann til kaldra kola 13. desem- ber. Skálinn var vel staðsettur í hjarta bæjarins og þægilegt að skjótast þar inn og hitta mann og annan yfir kaffispjalli. Íbúar binda vonir við að N1 byggi nýjan skála á þessum hag- stæða stað en ákvörðun hefur ekki verið tekin um það enn, að sögn for- svarsmanna N1, þar sem málið er enn í rannsóknarferli og tryggingar- hliðin þar með óljós. Engar for- sendur eru því enn fyrir ákvörðun varðandi byggingu en menn eru þó farnir að velta fyrir sér byggingar- kostnaði. Eldsneytissjálfsali með bættri aðstöðu er nú kominn upp en sárlega vantar veitingaskálann og þá þjónustu sem honum fylgdi.    Þorrablótið verður haldið annan laugardag í febrúar en undirbún- ingur er hafinn og munu einhverjir fá að sjá sjálfa sig í spéspegli á skemmtidagskrá sem tilheyrir þorrablóti. Sú nýbreytni verður í þetta sinn að hluti blótsins fer fram í sal íþróttamiðstöðvarinnar, þ.e. borðhald og skemmtidagskrá, en dansleikurinn sem fyrr í félags- heimilinu Þórsveri. Reynslan leiðir í ljós hvort fólki hugnast það til fram- tíðar eða aðhyllist áfram kenn- inguna um að „þröngt megi sáttir sitja“, en oft hefur þurft að raða stólum þétt í félagsheimilið svo allir komist fyrir á þessari stærstu skemmtun ársins hér í bænum. Rysjótt veður í ársbyrjun Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Dæla Nýr eldneytissjálfsali er kominn í miðbæ Þórshafnar þar sem sá gamli brann upp en sárlega vantar söluskála. Samningur um að Hrafnista taki við rekstri hjúkrunarheimilisins Ísafoldar í Garðabæ var undirrit- aður í gær af þeim Gunnari Ein- arssyni, bæjarstjóra Garðabæjar, og Guðmundi Hallvarðssyni, stjórnarformanni Sjómannadags- ráðs, en ráðið á og rekur Hrafnistu. Samkvæmt samningnum tekur Hrafnista við rekstri Ísafoldar 1. febrúar næstkomandi. Garðabær hefur rekið Ísafold frá 2013 en þar búa 60 einstaklingar. Undanfarið ár hefur Garðabær átt í viðræðum við ríkið um að það taki við rekstrinum en þær viðræður skiluðu ekki árangri. Í framhaldinu fól bæjarráð bæjarstjóra í nóvem- ber sl. að kanna möguleika þess að þriðji aðili kæmi að rekstrinum. Viðræður Garðabæjar og Hrafnistu hófust í kjölfarið og hafa staðið yfir frá því í nóvember. Hrafnista er ein stærsta heil- brigðisstofnun landsins, með starf- semi í fimm sveitarfélögum. Ísafold er sjötta hjúkrunarheimilið á veg- um Hrafnistu. Ljósmynd/Birkir Fanndal Ísafold Guðmundur Hallvarðsson, for- stjóri Hrafnistu, og Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ, við undirritun. Hrafnista tekur við rekstri Ísafoldar Hópur fólks lét greipar sópa í verslun Rauða krossins í Kefla- vík í vikunni, án þess að greiða fyrir það sem tekið var. Í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum segir að haft hafi verið uppi á nokkrum ein- staklingum sem viðurkenndu að hafa tekið fatnað. Þá voru tvær konur stöðvaðar í Nettó og reyndust báðar vera með þýfi úr versluninni í veskjum sínum. Önnur var með varning að verð- mæti um 7.000 kr. en hin með hluti að andvirði um 18.000 krónur. Stálu úr verslun Rauða krossins Lögregla Stolið frá Rauða krossinum. Hagkaup afhenti Mæðrastyrks- nefnd Reykjavíkur og Kópavogs rúmlega einnar milljónar króna styrk í fyrradag. Féð var þannig til komið að fyrir jól var gestum Hagkaups boðið að spila lag á píanó sem komið hafði verið fyrir utan nýja verslun Hag- kaups í Smáralind og fyrir hvern þann sem settist við píanóið og spil- aði lag lét Hagkaup 5.000 krónur renna til Mæðrastyrksnefndanna tveggja. Alls léku 212 gestir á píanóið og söfnuðust þar með 1.060.000 krón- ur og skiptist sú upphæð jafnt á milli Mæðrastyrksnefnda Reykja- víkur og Kópavogs, 530.000 krónur á hvorn aðila. Söfnuðu milljón með píanóleik STUTT

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.