Morgunblaðið - 07.01.2017, Side 30
30 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 2017
Laufey Rún Ketilsdóttir
laufey@mbl.is
Hættan á því að Golfstraumurinn
veikist þar til hann leysist upp hefur
að öllum líkindum verið stórlega
vanmetin. Svo segir haffræðing-
urinn Stefan Rahmstorf í grein sem
birtist 4. janúar síðastliðinn á vefsíð-
unni RealClimate.
Leysist Golfstraumurinn upp mun
lofthiti á Íslandi lækka með af-
drifaríkum hætti en ef marka má
niðurstöður rannsóknarinnar yrði
þá um 5-9 gráða frost á Íslandi yfir
vetrarmánuðina eftir um 300 ár. Þá
yrðu Grænland, Bretland og Skand-
inavía einnig fyrir áhrifum kuldans.
„Aðalatriðið er að þetta er ekki
spá heldur hættumat. Það er mark-
tæk hætta á því að Golfstraumurinn
leysist upp vegna hnattrænnar hlýn-
unar sem hefði afleiðingar fyrir Ís-
land,“ segir Rahmstorf í samtali við
Morgunblaðið en eina leiðin til að
draga úr hættunni sé sú að ná bönd-
um á hnattrænu hlýnunina og voru
skref stigin í þá átt með samþykkt
Parísarsamkomulagsins í loftslags-
málum fyrir ári.
Saltmagn sjávar
hefur áhrif
Rannsóknin sem Rahmstorf vísar
til í grein sinni var framkvæmd af
Wei Liu og samstarfsmönnum hjá
Scripps-stofnuninni í haffræði í San
Diego og Háskólanum í Wisconsin-
Madison. Þar var nýjum aðferðum
beitt við að meta stöðugleika Golf-
straumsins í breyttu loftslagi næstu
áratuga.
Þau líktu eftir Golfstraumnum í
Atlantshafinu en breyttu hins vegar
streymi ferskvatns í Atlantshafið til
þess að ná réttari mynd af saltmagni
sjávar. Breyting saltmagnsins í heild
hafði svo áhrif á stöðugleika hring-
rásar sjávar í komandi loftlagsbreyt-
ingum. Þannig að þegar áhrif tvö-
földunar koltvísýrings í
andrúmsloftinu á stöðugleika
straumsins voru könnuð, að gerðum
áðurnefndum breytingum, kom í ljós
að straumurinn leysist fullkomlega
upp á næstu öldum.
Áður hafði verið talið, þegar salt-
magn sjávar var ekki leiðrétt fyrir
auknu streymi ferskvatns til sjávar,
að Golfstraumurinn myndi aðeins
veikjast um 20% við tvöföldun
koltvísýrings.
Ferskvatn, þ.e. úrkoma, vatn úr
ám og frá bráðnun jökla, flæðir stöð-
ugt í Atlantshafið, og saltvatn, sem
kemur frá suðri, myndar jafnvægi.
Ef straumurinn veikist þá er minna
framboð á salti og þar sem fersk-
vatnið er léttara en saltvatn sekkur
það ekki í djúpið svo auðveldlega en
það er sú myndun djúpvatns sem
keyrir Golfstrauminn áfram. Við
þessar aðstæður geti því myndast
óstöðvandi vítahringur.
Leysist upp innan 300 ára
Rannsóknin sýnir þannig að Golf-
straumurinn leysist upp innan 300
ára ef fram fer sem horfir og mun
hafa misst þriðjung styrks síns eftir
100 ár.
Hún er þó að mati Rahmstorfs
ekki lokaorðið í rannsóknum á Golf-
straumnum og afdrifum hans á
næstu öldum. Ýmislegt hafi mátt
gera öðruvísi en hann nefnir sem
dæmi að tvöföldun koltvísýringsins
hafi verið framkvæmd snögglega en
ekki í skrefum eins og raunin yrði.
Þá hafi ekki verið tekið tillit til
hraðrar bráðnunar jökla á Græn-
landi sem gæti veikt Golfstrauminn
enn frekar.
Það sé því að minnsta kosti tvennt
sem bendi til þess að hættan á því að
Golfstraumurinn hverfi hafi verið
vanmetin fram til þessa, þ.e. kerfis-
bundin skekkja í mati á stöðugleika
streymisins ásamt bráðnun jökla á
Grænlandi. Næstu skref séu því
meðal annars að skoða þessa þætti
nánar.
Telur hættuna vera vanmetna
Haffræðingurinn Stefan Rahmstorf segir að kuldinn aukist mjög á Íslandi yfir
vetrarmánuðina ef Golfstraumurinn hverfur Gæti horfið innan 300 ára
Morgunblaðið/ÞÖK
Kalt Aðstæður á Íslandi myndu breytast nyti Golfstraumsins ekki lengur við
en kuldinn yfir vetrarmánuði gæti farið í 5-9 gráða frost að staðaldri.
Japönsk stjórn-
völd kölluðu heim
sendiherra sinn í
Suður-Kóreu
vegna umdeildrar
styttu sem var
sett upp við ræðis-
mannsskrifstofu
Japans í borginni
Busan.
Japönsk stjórnvöld hafa einnig
hætt öllum viðræðum við suður-
kóresk stjórnvöld um gjaldeyris-
skiptasamning ríkjanna og hefur öll-
um frekari efnahagsviðræðum
ríkjanna verið slegið á frest.
Styttan var til minningar um þær
konur sem voru kynlífsþrælar jap-
anskra hermanna í síðari heimsstyrj-
öldinni og var reist af borgara-
samtökum í Suður-Kóreu.
SUÐUR-KÓREA
Stjórnvöld í Japan
mótmæla styttu
Marine Le Pen, formaður Þjóðfylk-
ingarinnar í Frakklandi, lofaði því í
gær að ef hún yrði kjörin forseti
Frakklands myndi hún berjast fyrir
því að Frakkar segðu skilið við Evr-
ópusambandið. Væri það háð því að
ESB yrði ekki við kröfum þeirra um
að láta eftir stjórn á landamærum,
löggjafarvaldi og efnahags- og pen-
ingamálastefnu.
Le Pen hefur áður lofað að kasta
evrunni og skipuleggja þjóðar-
atkvæðagreiðslu um hvort Frakk-
land eigi að segja sig úr ESB, eða
„Frexit“. Þó virðist sem hún sé að
mýkjast í afstöðu sinni gagnvart
gjaldmiðlinum, en hún hefur sagst
myndu skoða „sameiginlegan gjald-
miðil“ sem væri til samhliða inn-
lendum gjaldmiðli. „Ég er ekki búin
að skipta um skoðun um ferlið sem
ég mun setja af stað fyrir Frakkland
í tengslum við ESB,“ sagði hún á
fundi með erlendum blaðamönnum í
gær.
Evran nýtt sem hnífur
Beri hún sigur úr býtum í forseta-
kosningunum 7. maí næstkomandi
mun hún samstundis hefja viðræður
við ESB um að endurreisa fjórar
meginstoðir fullveldisins. Að liðnum
sex mánuðum myndi hún svo boða til
„Frexit“-kosninga.
Kannanir fyrir áramót í Frakk-
landi sýndu að landsmenn voru ekki
hlynntir því að ganga úr ESB en
voru á báðum áttum varðandi sam-
eiginlega gjaldmiðilinn. Le Pen var
ánægð með þá niðurstöðu enda hef-
ur hún sagt að ESB hafi til að
mynda notað evruna í Grikklandi,
„ekki sem gjaldmiðil heldur sem hníf
sem rekinn var milli rifja landsins til
að þvinga það til að gera það sem
fólkið vildi ekki gera“.
AFP
Frexit Le Pen var afdráttarlaus í afstöðu sinni gagnvart ESB og evru.
Frakkar úr ESB verði
ekki gengið að kröfum
Le Pen vill endurheimta fullveldið
Styrkir úr Lýðheilsusjóði 2017
Lýðheilsusjóður óskar eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum til
heilsueflingar og forvarna á sviði geðræktar, næringar, hreyfingar
og tannverndar auk áfengis-, vímu- og tóbaksvarna.
Áhersla er lögð á eftirfarandi:
• Aðgerðir sem miða að því að efla geðheilsu.
• Árangursríkar áfengis- og vímuvarnir.
• Aðgerðir sem miða að heilbrigðu mataræði og hreyfingu.
• Aðgerðir til að draga úr tóbaksnotkun.
• Verkefni sem beinast að minnihlutahópum til að stuðla að jöfnuði til heilsu.
• Forvarnir gegn sjálfsvígum.
Við úthlutun verður tekið mið af lýðheilustefnu velferðarráðuneytisins, sbr. skjalið
Lýðheilsustefna og aðgerðir sem stuðla að heilsueflandi samfélagi
– með sérstakri áherslu á börn og ungmenni að 18 ára aldri. (Útg. 2016)
Verkefni sem uppfylla eftirtalin skilyrði hafa forgang:
- Verkefni sem unnin eru í víðtæku samstarfi hagsmunaaðila í samfélaginu.
- Verkefni með eigin fjármögnun og/eða aðra fjármögnun.
Verkefnin eiga að byggja á faglegum grunni og hafa raunhæf og skýr markmið.
Gera þarf grein fyrir því hvernig árangur verkefnis verður metinn og skal skila framvin-
duskýrslu að verkefni loknu.
Umsóknarfrestur er til og með 20. febrúar 2017 og skal sótt um á
vefsvæði Lýðheilsusjóðs, http://lydheilsusjodur.sidan.is/pages/.
Nánari upplýsingar í síma 510 1900 eða á vef Embættis landlæknis.
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum í gegnum vefsvæði sjóðsins.
Embætti landlæknis - Barónsstíg 47 - 101 Reykjavík - Sími 5101900 - lydheilsusjodur@landlaeknir.is - www.landlaeknir.is
Donald Trump
hefur tilnefnt
Dan Coats, fyrr-
verandi öldunga-
deildarþingmann
úr röðum repú-
blikana, sem yfir-
mann leyniþjón-
ustunnar í
Bandaríkjunum.
Coats hefur gagnrýnt Rússa töluvert
og var settur á svartan lista þeirra
árið 2014 í kjölfar þess að Bandarík-
in beittu þá refsiaðgerðum vegna
innlimunar Krímskaga í Rússland.
Þá varð Coats m.a. að orði: „Þótt ég
sé mjög vonsvikinn að komast ekki í
sumarfrí með fjölskylduna mína til
Síberíu í sumar lít ég á það sem heið-
ur að vera á þessum lista.“
BANDARÍKIN
Nýr yfirmaður leyni-
þjónustunnar valinn