Morgunblaðið - 07.01.2017, Síða 33

Morgunblaðið - 07.01.2017, Síða 33
33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 2017 Gagnger gluggaþvottur Nú er komið að nýárshreinsun í verslunum og veitingastöðum Reykjavíkur og þessir dugnaðarforkar láta hér hendur standa fram úr ermum og þvo rúðu í miðbænum. Golli Túnisborg| Hryðju- verkaárásin á jóla- markaðinn í Berlín – þar sem tólf létust og meira en fimmtíu manns særðust – varpaði dökkum skugga yfir jólahátíð- ina víða um Evrópu. Frá Túnis, þar sem ég var staddur í eftir- leiknum, virtist sem árásin hefði einnig haft mikil, en öðruvísi, áhrif þar. Túnis er nefni- lega heimaland Anis Amri, þess sem grunaður er um verknaðinn. Túnisbúar óttast hryðjuverk eins og Evrópumenn. En þeir óttast ekki bara einstakar árásir, eins og þær sem gerðar voru á Bardo- safnið í Túnisborg eða á Sousse- ströndinni árið 2015, eða jafnvel þau mörgu pólitísku tilræði og morð sem landið hefur orðið vitni að frá því að breytt var um stjórnarstefnu árið 2011. Tún- isbúar óttast að samfélagslegur órói muni eyðileggja þeirra merki- lega en viðkvæma unga lýðræð- isríki. Nágrannaríkið Líbía býður upp á dimma sýn um það hvernig sú framtíð gæti litið út. Horfurnar á því að ríkisstjórn Túnis geti haft hemil á ástandinu ein síns liðs eru ekki góðar. Túnis- búar vita að ríkið þeirra stendur höllum fæti og getur ekki verndað þá í raun. Ríkið gæti endað eins og Egyptaland, sem er að verða að lögregluríki, eða færst í sömu átt og Alsír, sem daðraði við að mynda íslamskt ofsatrúarríki fyrir 25 ár- um en færðist svo í átt einræðis og margra ára ofbeldis. Það bætir gráu ofan á svart að áhyggjur af hryðjuverkum hafa nær gert út af við ferðaþjónustuna í Túnis, og þannig veikt efnahag ríkisins stórum. Afleiðingin er sú að ríki sem er nú þegar í höndum Al- þjóðagjaldeyrissjóðs- ins reynir að kaupa sér samfélagslegan stöðugleika með því að fjölga ríkisstarfsmönnum. Þá hefur ríkið hækkað skatta til þess að koma til móts við ört vaxandi skuldir ríkissjóðs, og þar með dregið enn frekar úr hagvexti. Þessi vítahringur, sem leiðir nið- ur á við, er nú meitlaður í stein, þar sem helstu verkalýðsfélög hafa sett úrslitakosti og samfélagið er að missa þolinmæðina. Það er sér- staklega unga fólkið sem hefur misst allt traust á að stofnanir ríkisins haldi – og það er alvarlegt vandamál í ríki þar sem 38% þjóðarinnar eru undir 25 ára aldri. Unga fólkið sem ég hitti í Túnis, sem var þar á vegum breska einkaframtaksins Forward Think- ing, en hlutverk þess er að auka skilning milli kristinna og múslima, hafði ýmsar skoðanir frá báðum endum hins pólitíska litrófs. En það átti eitt sameiginlegt: Það lítur á sig sem fórnarlömb alþjóðavæð- ingarinnar. Alþjóðasamfélagið er að mati ungmennanna með ráða- brugg gegn þeim, að reyna að grafa undan möguleikum þeirra til þess að finna sér vinnu og stofna fjölskyldu. Þetta viðhorf hefur búið til frjóan akur fyrir hryðjuverka- menn til að plægja; fleiri ein- staklingar hafa farið frá Túnis en nokkru öðru ríki til þess að taka þátt í heilögu stríði í Sýrlandi og í Írak. Ógnin af hryðjuverkum sem nær yfir landamæri hefur dregið at- hygli heimsins að Túnis. En sú ógn er ekki eina ástæðan fyrir því að við ættum að hafa áhyggjur af ör- lögum landsins. Túnis veitir enn vonarneista um framtíð lýðræðis og frelsis í þessum heimshluta. Ég heimsótti Túnis ásamt fyrr- verandi embættismann frá Úkra- ínu, ríki sem á margt sameiginlegt með Túnis þrátt fyrir að saga þeirra og menning sé mismunandi. Úkraína gekk einnig í gegnum byltingu þar sem leiðtogi ríkisins hrökklaðist í útlegð, og varð einnig fyrir því að umbætur sem beðið hafði verið eftir voru settar í bið. Og bæði ríki hafa orðið fyrir veru- legum skakkaföllum af völdum stríðsátaka (í tilfelli Túnis voru þau átök í Líbíu), þar á meðal vegna töluverðs fjölda fólks sem orðið hefur að flýja heimili sín. (Ríkin hafa hvort um sig um tvær milljónir manna á vergangi.) Al- þjóðasamfélagið þarf að hjálpa til við að tryggja að bæði Túnis og Úkraína geti uppfyllt þær vonir sem byltingar þessara ríkja kveiktu. Í þeirri aðstoð þarf að fel- ast aðstoð við flóttamenn en um leið – og það skiptir mun meira máli – að styðja við umbætur sem styrkja stoðir ríkisvaldsins. Pólitísk umræða hefur vaknað í Túnis með öllum þeim göllum sem því fylgja, þökk sé íslamistahreyf- ingunni Ennahda og flokkunum á þingi sem eru ekki trúarlegs eðlis. Sú umræða hefur bjargað ríkinu frá pólitísku hyldýpi. En ef rík- isstjórnin getur ekki komið á um- bótum mun þessi samræða falla um sig sjálf – ásamt vonum og draumum ungu kynslóðarinnar í Túnis. Hér má einnig læra af fordæmi Úkraínu. Umbótaferlið þar er haf- ið, að hluta til vegna töluverðrar erlendrar aðstoðar. En hags- munaöfl streitast enn gegn fram- förum. Þó að umbætur verði að eiga rætur sínar innan frá geta utanaðkomandi – þá sérstaklega Evrópusambandið – aðstoðað við að hlúa að þeim innlendu rótum með því að veita trúverðuga leið að grundvallarbreytingum. Það að rétta hjálparhönd væri Evrópusambandinu sjálfu til góða. Það á líka við flóttamannavanda að etja, sem það getur ekki leyst án öflugrar samvinnu við nágranna sína. Til dæmis hafa stofnanir Evr- ópu og ríkisstjórn Spánar náð að hemja flóttamannastrauminn sem fer yfir Gíbraltarsund. Til þess að ná stjórn á vand- anum, og gera flóttann öruggari fyrir flóttamennina sjálfa, þarf að gera fleiri samninga við trúverð- uga samstarfsaðila. Túnis er góður kandídat til þess. Evrópa hefur nú þegar náð að semja um leiðir við Túnis til þess að hemja strauminn og skila þeim sem hefur verið meinað um hæli. En samt sýnir árásin í Berlín glöggt hversu takmarkaða getu túnískar stofnanir hafa. Svo virðist sem Amri hafi ekki verið vísað úr Þýskalandi af því að skrifræðið í Túnis gat ekki staðfest ríkis- borgararétt hans nógu skjótt. Þess vegna þarf alþjóðasam- félagið líka að bjóða Túnis úrræði til þess að styrkja stofnanir ríkis- ins og borgaralegt samfélag, ásamt því að veita landinu framtíðarsýn um nánari tengsl við ESB til þess að stýra hinni pólitísku þróun, líkt og sambandið hefur gert í Úkra- ínu. Málið snýst ekki um aðild að ESB, heldur um að opna á nýja markaði og slaka á kröfum um vegabréfsáritanir (sem verður vissulega erfiðara að ná í gegn eft- ir ódæðið í Berlín.) Óttinn er sá, bæði í Túnis og í Úkraínu, að Evrópusambandið muni loka landamærum sínum enn frekar. Ég sá óttann í augum um- bótasinna í Úkraínu þegar Bret- land samþykkti að yfirgefa sam- bandið, og ég skynjaði svipuð viðbrögð í Túnis þegar borin voru kennsl á árásarmanninn í Berlín. Verði viðbrögðin þau að reyna ein- angra sig frá umheiminum mun Evrópusambandið einungis koma í veg fyrir að þegnar þessara ríkja eygi einhverja von um bætt líf heima fyrir. Eftir Erik Berglöf »Ógnin af hryðjuverk- um sem nær yfir landamæri hefur dregið athygli heimsins að Tún- is. En sú ógn er ekki eina ástæðan fyrir því að við ættum að hafa áhyggjur af örlögum landsins. Erik Berglöf Erik Berglöf er prófessor og for- stöðumaður Institute of Global Aff- airs við London School of Economics and Political Science. ©Project Syndicate, 2016. www.project-syndicate.org Túnis í greipum óttans

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.