Morgunblaðið - 07.01.2017, Page 57
MENNING 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 2017
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@gmail.com
Það er ekki að spyrja aðþeim Valtýsdætrum, Gyðuog Kristínu Önnu. Í fyrra
átti Kristín Anna að mati pist-
ilritara plötu ársins, hina mögn-
uðu Howl, og nú kemur tvíbura-
systir hennar með plötu,
Epicycle, og
skilur eftir
svipaða upp-
lifun í huga
hans. Það er
eitthvað rétt við
þetta, eitthvað
rökrétt. Og þótt
ólíkar séu plöturnar að áferð,
Howl tilraunakennd hljóðlykkja
sem endist í um áttatíu mínútur
en þessi plata hér öllu mel-
ódískari, þá eru hughrifin þau
sömu. Hér er einhver óræður
galdur í gangi sem hefur sig upp
fyrir sjálfa tónlistina og hittir
mann þráðbeint í hjartastað.
Einhver galdur
Morgunblaðið/RAX
Frumleg Gyða Valtýsdóttir ferðast frjáls um heim tónlistarinnar á Epicycle.
Á plötunni er að finna lög
eða verk eftir tónskáld sem
koma úr heimi skrifaðrar tónlist-
ar, samtíma, klassíkur eða hvað
fólk vill nú kalla það. Hér eru
verk eftir þekkta höfunda á borð
við Schubert, Messiaen og
Prokofiev en einnig er tekist á
við efni eftir tilraunagjarna höf-
unda á borð við George Crumb
og Harry Partch, hvers ferill
einkenndist af uppátækjasemi,
frumlegri hugsun og nýsköpun
og tóna þeir félagar því laglega
við alla framvindu hér.
Epicycle var tekin upp víða
á árabilinu 2012-2013, og við ým-
iss konar kost, fyrst og fremst af
Gyðu sjálfri. Helsti sam-
verkamaður Gyðu á þessari plötu
er annars Shahzad Ismaily sem
ætti að vera orðinn Íslendingum
að góðu kunnur en hann hefur
unnið með listamönnum eins og
Ólöfu Arnalds og Jófríði Áka-
dóttur svo fátt eitt sé talið. Einn-
ig koma Hilmar Jensson, Michael
York, Julian Sartorius og Danny
Tunick við sögu. Þrátt fyrir að
fengist sé við ólík tónskáld – og
að upptökusagan sé eins og hún
er – er platan einstaklega heil-
steypt, líður áfram eins og fal-
legur draumur. Engin truflun,
ekkert uppbrot, bara hreint
flæði. Gyða tekst t.d. á við Seiki-
los-verkið, elsta þekkta tónverk
veraldar, sem varðveitt er á
grafsteini. Þar syngur Gyða og
sekkjapípa kemur við sögu og
áhrifin af því eru með ólíkindum.
Plötuna má finna á netsíð-
unni Bandcamp en einnig er hún
til á geisladiski (Smekkleysa gef-
ur út). Gyða beitti og óhefð-
bundnum leiðum við útgáfu,
þannig er platan til á korti þar
sem búið er að koma draumsó-
leyjarfræjum fyrir sem hægt er
að leggja í mold og vökva svo
upp spretti blóm. Á kortinu eru
svo upplýsingar um tónlistina og
niðurhalskóði fyrir Bandcamp-
vefsíðu hennar. Á einu tónleika-
ferðalagi sínu bjó hún þá til lykt
fyrir lögin, seldi litlar flöskur
sem innihéldu lyktina og svo var
niðurhalskóði fyrir hvert og eitt
lag. Aftur, það er eitthvað rétt
við þetta allt saman …
» Þrátt fyrir að feng-ist sé við ólík tón-
skáld – og að upp-
tökusagan sé eins og
hún er – er platan ein-
staklega heilsteypt,
líður áfram eins og
fallegur draumur.
Engin truflun, ekkert
uppbrot, bara hreint
flæði.
Ein af plötum síðasta árs, ef ekki bara plata síð-
asta árs, er verk Gyðu Valtýsdóttur, Epicycle. Á
plötunni fer hún frumlegum höndum um ýmis
verk úr tónsögunni, klassík og samtíma, í góðu
samstarfi við nokkra mektarspilara.
Bandarísku Golden Globes-kvik-
mynda- og sjónvarpsþáttaverðlaun-
in verða afhent á sunnudaginn en
þau þykja jafnan gefa vísbendingu
um það sem koma skal á Óskars-
verðlaununum, hvaða kvikmyndir
verði farsælastar þar. Hinir ýmsu
fréttamiðlar hafa birt spár sínar um
hverjir hljóti hnettina gylltu og þyk-
ir nær öruggt að kvikmyndin La La
Land hreppi verðlaun sem besta
dans- og söngvamyndin.
Enska dagblaðið Guardian telur
líklegast að þáttaröðin Stranger
Things fái verðlaunin í dramatíska
flokknum en telur Game of Thrones
eiga skilið að hreppa þau verðlaun. Í
gamanþáttaflokknum eru þættirnir
Transparent taldir líklegastir en
Atlanta eigi skilið að hreppa verð-
launin. Tímaritið Rolling Stone segir
í sinni spá að besta dramatíska kvik-
myndin verði að öllum líkindum
Moonlight, sem af mörgum gagn-
rýnendum erlendis var talin besta
mynd ársins 2016 og að leikstjóri
hennar, Barry Jenksins, muni
hreppa hnöttinn sem besti leikstjóri.
Þá verði La La Land valin sú besta í
flokki gaman- og dans- og söngva-
mynda. Í flokki leikara er Casey
Affleck talinn sigurstranglegastur í
aðalhlutverki í dramatískri kvik-
mynd, Manchester by the Sea, og í
gamanmyndaflokki er Ryan Gosling
talinn sigurstranglegastur, fyrir leik
sinn í La La Land. Besta leikkonan í
dramatískri kvikmynd verður Natal-
ie Portman fyrir túlkun sína á Jackie
Kennedy í kvikmyndinni Jackie og í
gamanmyndaflokki er það enn og
aftur La La Land, leikkonan Emma
Stone.
La La Land hlaut flestar tilefn-
ingar til gullhnattarins í ár, sjö tals-
ins, og má því búast við að hún hljóti
þá nokkra.
La La Land sigurstrangleg
Dans- og söngvamynd Úr La La Land sem þykir ein af bestu kvikmyndum
nýliðins árs. Ryan Gosling og Emma Stone fara með aðalhlutverkin í henni.
Ullarnærföt
í útivistina
Þinn dagur, þín áskorunOLYMPIA
Sölustaðir:
Hagkaup • Fjarðarkaup • Útilíf • N1 • Vesturröst • Verslunin Bjarg, Akranesi • Verslunin Tákn, Húsavík
JMJ, Akureyri • Verslunin Blossi, Grundafirði • Efnalaug Vopnafjarðar • Nesbakki, Neskaupsstað
Veiðisport, Selfossi • Kaupfélag Skagfirðinga • Hafnarbúðin, Ísafirði • Blómsturvellir, Hellissandi
Kaupfélag V-Húnvetninga • Mæðgur og Magazin, Stykkishólmi • Eyjavík, Vestmannaeyjum
Pex, Reyðarfirði • Siglósport, Siglufirði
30
ÁRA
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík • Sími 561 9200 • run@run.is • www.run.is
100%
Merino ull
Góð og hlý heilsársföt
fyrir karla og konur
Stærðir: S–XXL
Miðasala og nánari upplýsingar
2D ÍSL TAL - SÝND KL. 1.45, 3.50, 6
2D ENS TAL - SÝND KL. 8, 10.15 2D ENS TAL - SÝND KL. 5, 8
TILBOÐ KL: 1.45 ÍSL TAL
TILBOÐ KL 2TILBOÐ KL 2
GLEÐILEGT NÝTT ÁR
SÝND KL. 10.25 SÝND KL. 2, 8.15, 10.50 SÝND KL. 2, 5