Fréttablaðið - 02.09.2017, Blaðsíða 16
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kjartan Hreinn Njálssson kjaranh@frettabladid.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000,
ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson
magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Gunnar
Kristín
Þorsteinsdóttir
kristin@frettabladid.is
Mín skoðun Logi Bergmann
Henni hlýtur
að hafa verið
ljóst hvað
hún má og
hvað hún má
ekki.
Um daginn sá ég viðtal við leigubílstjóra sem var algjörlega brjálaður (og ég held að það verði enginn jafn brjálaður og pirraður leigubílstjóri)
yfir því að borgin byggði ekki upphituð skýli fyrir fólk
sem væri að bíða eftir leigubíl. Eins og það væri ekki
nóg, þá áttu líka að vera þar öryggisverðir svo hægt
væri að hafa hemil á drukknu fólki, fjúkandi í haust
lægðunum að bíða eftir að röðin kæmi að því.
Leigubílstjóranum finnst fullkomlega eðlilegt að
til þess að fá að kaupa þessa þjónustu eigum við öll
að troða okkur á sama stað og bíða og bíða. Eins og
það fari stórkostlega vel í alla sem hafa kannski verið
aðeins of lengi að hitta mennina.
Hvernig væri bara að byrja á vandanum sjálfum –
skorti á leigubílum. Og mig, sem hef reyndar aldrei
keyrt leigubíl, langar til að koma með mitt innlegg í
þessa umræðu. Leyfum Uber.
Allt á borðinu
Fyrir þá sem ekki þekkja þá er Uber app sem fólk
notar til að panta bíl og fá tilboð í ferðina. Það sér
hvernig bíl það er að fá (sem er til dæmis frábært
ef mann langar ekki til að mæta á árshátið í Suzuki
Jimny), sér hver er bílstjóri og hvaða einkunn hann
hefur fengið hjá öðrum farþegum. Hann mætir svo
til þín, þar sem þú ert og þú þarft ekki einu sinni að
taka upp kort eða peninga því það er gengið frá því
rafrænt þegar þú samþykkir farið.
Einhver myndi segja að þetta snúist um öryggi.
En ég myndi halda að Uber væri öruggari. Öll
viðskipti eru skráð. Leigubílstjórar eru ekki með
pening í bílnum því allt fer í gegnum kort og Paypal.
Leigubílstjórar og farþegar fá einkunn og því er
hægt að forðast lélega bílstjóra. Til dæmis bílstjóra
sem reykja hálfan pakka á dag í bílnum og halda
að enginn fatti neitt af því að þeir opna gluggann
aðeins. Eða þá sem virðast ekki geta komið bílnum
af stað án þess að botna Útvarp Sögu. Á sama hátt
geta leigubílstjórar forðast gubbandi fólk á krónísku
trúnaðarstigi.
Einföldum lífið
Það eru fleiri kostir sem fylgja þessu. Allt verður
einfaldara. Það þarf ekki margar rándýrar græjur til
að tengja sig við stöðina, finna réttu leiðina, posa og
allt hitt. Hjá Uber og öðrum sambærilegum leigu
bílakerfum er nóg að hafa einn síma. Þar er allt sem
leigubílstjórinn þarf fyrir viðskiptavininn. Já, eða við
skiptavinina, því það er meira að segja hægt að deila
bíl, svona til að gleðja þá sem vilja minnka umferðina.
Þegar þetta er rætt er alltaf talað við leigubílstjóra.
Og getiði hvað: Þeim finnst þetta glötuð hugmynd.
Og það er svo sem skiljanlegt. Þetta er starfið þeirra
og þeir hafa lagt sig fram við að sinna því vel, jafnvel
árum saman.
Góðir leigubílstjórar ættu samt ekki að þurfa að ótt
ast neitt. Fólk vill fara með þeim og það er jafnvel hægt
að panta uppáhaldsbílstjórann sinn. Leigubílastöðvar
myndu ekki hverfa, frekar en annars staðar þar sem
þjónusta eins og Uber hefur skotið rótum. Margir vilja
frekar panta bíl með gamla laginu og kunna kannski
ekki alveg á svona nýmóðins öpp. En við myndum fá
samkeppni í þennan bransa, sem hlýtur bara að vera
góð hugmynd. Og svona kerfi eru mjög ferðamanna
væn þannig að við myndum ekki þurfa að horfa á
vesalings útlendingana rogast með töskurnar sínar út
um allt, bara af því að þeir hafa ekki heyrt auglýsing
una með Flosa Ólafs.
Því miður er ég ekki viss um að við séum tilbúin
fyrir svona frjálslyndi. Kannski að hluta til vegna þess
að leigubílstjórar hafa í gegnum tíðina sýnt að þeir eru
merkilega öflugur þrýstihópur. Ef til vill óttast stjórn
málamenn hreinlega að lenda á grautfúlum leigubíl
stjóra. En kannski er ástæðan einfaldlega sú að það er
frekar ólíklegt að rekast á pólitíkus um miðja nótt í
leigubílaröðinni.
Hugsum í lausnum
Einkareknir fjölmiðlar sigla ekki lygnan sjó. Heimurinn minnkar og samkeppnin um takmarkaðar tekjur kemur úr öllum áttum. Á sama tíma hygla yfirvöld Ríkisútvarpinu, sem aldrei fyrr.Samkvæmt fjármálaáætlun ríkisstjórnar
innar er ekki von á breytingu. Framlög til „fjölmiðlunar“
eiga að hækka um allt að fjórðung á árunum 2018 til
2022. Hækkunin rennur óskipt til Ríkisútvarpsins, því
ekki er öðrum til að dreifa. Ríkisfyrirtækið nýtir þetta
forskot til yfirboða á markaði með tæplega 6 milljarða
króna árlegri meðgjöf.
Þrátt fyrir tal um afmarkað hlutverk hefur Ríkis
útvarpið flækst inn á umráðasvæði einkamiðla og látið
samkeppnissjónarmið ráða rekstrinum. Sennilega er
það óhjákvæmilegur fylgifiskur þátttöku RÚV á auglýs
ingamarkaði. Til að freista auglýsenda, keppir RÚV við
einkaaðila um hvers kyns afþreyingu.
Afleiðingin er ekki bara minni auglýsingapottur fyrir
einkamiðlana, heldur þurfa þeir í ofanálag að kyngja
hærra verði á dagskrárefni vegna yfirboða RÚV.
Sjónarmiðið, að jafnvægi þurfi að ríkja á fjölmiðla
markaði, er hunsað. Sjálfstætt starfandi fjölmiðlum eru
ekki sköpuð réttlát skilyrði. Ríkisrisi á ekki að þrengja að
einkamiðlum. Ríkisútvarpið þarf að skerpa sérstöðu sína
og skilgreint hlutverk, í orði og á borði.
Samkeppni við ríkisrisa sem getur endalaust sótt í
almannasjóði verður aldrei heilbrigð nema skýrar reglur
séu virtar.
Engu er líkara en stjórnarherrarnir átti sig ekki á þessu.
Þeir bregðast einkareknum fjölmiðlum æ ofan í æ með
dekri sínu við Ríkisútvarpið – þvert á fyrirheit margra
þeirra um að standa vörð um frjálsa fjölmiðlun, til við
halds lýðræðinu eins og sagt er á tyllidögum. Þetta er
afleitt því þróttmiklir og fjölbreyttir fjölmiðlar tryggja
lýðræðið. Um þá ber löggjafanum að standa vörð.
Í því ljósi setti Illugi Gunnarsson, fyrrverandi mennta
málaráðherra, á fót nefnd, sem átti að jafna leikinn.
Nefndin átti að skila tillögum fyrir langalöngu. Ekkert
bólar á tillögunum. Af svörum að dæma er óvíst hvenær
eða yfirhöfuð hvort búast má við niðurstöðu frá nefnd
inni.
Með líku lagi endurspeglast andvaraleysið í því að for
maður Allsherjar og menntamálanefndar Alþingis, sem
hefur það hlutverk að fjalla um stöðu fjölmiðla, skuli tísta
og óska eftir vefslóð að ólöglegu streymi að boxbardaga
Conors McGregor og Floyds Mayweather – dagskrárefni
sem Stöð 2 hafði keypt einkarétt á dýrum dómum.
Í mörgum löndum hefði þingmaður þurft að taka
pokann sinn eftir að hafa orðið uppvís að slíku. En sam
kvæmt frétt hér í blaðinu sér hún ekki mikla sök hjá
sjálfri sér, enda hefði hún beðist afsökunar.
Manneskja í hennar stöðu getur ekki skýlt sér bak við
orð eins og hugsunarleysi eða hvatvísi, líkt og hún gerði.
Henni hlýtur að hafa verið ljóst hvað hún má og hvað
hún má ekki. Formaður sjálfrar þingnefndarinnar sem
fjallar um stöðu og hlutverk fjölmiðla. Oft hefur verið
talað um trúnaðarbrest af minna tilefni.
Hún lét einfaldlega taka sig í bólinu.
Tekin í bólinu
2 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r16 s k o ð U n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
SKOÐUN
0
2
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
1
2
0
s
_
P
1
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
A
5
-9
2
F
0
1
D
A
5
-9
1
B
4
1
D
A
5
-9
0
7
8
1
D
A
5
-8
F
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
2
0
s
_
1
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K