Fréttablaðið - 02.09.2017, Page 26
Fyrir nokkrum árum byrj-aði ég að horfa á fótbolta og heillaðist af heildinni. Af þessu kerfi og samspili þar sem hver hlekkur í keðjunni er jafn mikil-
vægur og sá næsti og þó svo sá sem
skorar markið sé hetjan þá er hann
ekkert án meðspilara sinna. Þetta er
leikur heildarinnar og samspilsins
alveg eins og leikhúsið,“ segir Margét
Helga Jóhannsdóttir leikkona sem á
að baki magnaðan feril í íslensku
leikhúsi og kvikmyndum um ára-
tuga skeið.
Þessi áhugi Margrétar Helgu á
fótbolta og samanburðurinn við
leikhúsið lýsir líka vel bæði henni
og hugmyndum hennar um listina,
enda minnir hún blaðamanninn
á eitt atriði að viðtalinu loknu: „Þú
verður bara að gæta þess að það sé
ekkert sjálfhól í þessu, ég þoli ekki
slíkt. Það hafa margir miklu betri
leikarar en ég komið og farið úr leik-
húsinu án þess að fá sanngjörn tæki-
færi. Ég hef verið heppin og þetta
hefur komið til mín þó svo að fyrstu
árin hafi þetta ekki átt að verða.“
Hrakfallabálkur
Margrét Helga byrjaði að leika strax í
barnaskóla og þá þótti henni skrýtið
hvað hún var alltaf stressuð að leika
fyrir framan fólk andstætt hinum
krökkunum. Seinna lá leiðin í Leik-
félag Mosfellsbæjar þar sem hún lék
þrjú stór hlutverk á jafn mörgum
árum og í framhaldinu ákvað hún
að þreyta inntökupróf í Þjóðleik-
hússkólann.
„Þegar ég var búin að undirbúa
mig fyrir það þá datt ég niður stiga
og braut hitt og þetta, ég er nefni-
lega hrakfallabálkur, þannig að það
stoppaði mig af. En svo fór ég inn
tveimur árum seinna en þá varð ég
ófrísk og hætti í sex ár. Þannig að ég
átti aldrei að verða leikari. Enda ætl-
aði ég að hætta á þessum tíma þegar
ég var heima með börnin og ég er
bara þannig að ég var mjög upptekin
af hreiðurgerðinni. Á þeim tíma ætl-
aði ég að fara að verða eins og annað
fólk en það hefur nú alltaf mistekist
í hvert skipti sem ég hef reynt það.
En þarna var ég búin með fyrsta
bekk í skólanum og svo fór ég í
píanótíma og eins í útvarpið og var
þar að velja lög í þátt sem hét Þetta
vil ég heyra. Þá sá ég á göngunum
fullt af þessum krökkum sem voru
í skólanum, þau voru að leika í
útvarpsleikriti, og þá bara hugsaði ég
með mér: Þau eru ekkert betri en ég.
Þannig að ég keyrði beint út á Mela
til Guðlaugs Rósinkranz og spurði
hvort það væri möguleiki að þreyta
próf upp í þriðja bekk því í milli-
tíðinni var búið að lengja þetta um
eitt ár. Hann var svo ljúfur og það var
haldinn fundur með kennurunum og
ég hafði svo sem heilmikið þroskast
á þessum tíma og var búin að fást við
ýmislegt. En Guðlaugur gerði þetta
fyrir mig og ég kom inn með nýjum
hóp sem var hörkuduglegur.
Þannig var þetta, það komu alltaf
einhverjar girðingar en ég hélt áfram.
Átti samt aldrei von á því að ég fengi
eitthvað að gera enda var ég orðin
27 ára þriggja barna móðir þegar ég
útskrifaðist og alltaf var ég nervus við
að fara á svið. Það breyttist ekkert.
Ég gat bara ekki hugsað mér að
segja þessa setningu sem ég hafði
heyrt svo marga segja: Ef ég hefði
klárað þetta. Ef ég hefði gert þetta.
Og svo finnst jafnvel börnum þessara
einstaklinga að þau beri ábyrgð á því
að hafa stoppað ferilinn eða eitthvað
slíkt og það vildi ég ekki. Þannig að
Markvisst niðurbrot á fólki
Margrét Helga Jóhannsdóttir á að baki glæstan feril í leikhúsi og kvikmyndum. Hún segist hafa verið hrakfalla-
bálkur alla tíð, að henni hafi tæpast verið ætlað verða leikkona og nú sé svo komið að henni sé meinað að vinna.
Margrét Helga
Jóhannsdóttir
leikkona segir
að ef ekki hefði
orðið af leiklistar-
ferlinum hefði
hún viljað starfa
við umönnunar-
störf því að hún
vilji fara í vinnu til
þess að gera eitt-
hvert gagn og sjá
árangur.
Fréttablaðið/
SteFán
númer eitt var að klára þetta og ég
fékk strax eitthvað að gera sem kom
mér satt best að segja á óvart.
En svo ætlaði ég að hætta fjórum
árum seinna, var þá uppi í Þjóð-
leikhúsi og andinn þannig þá að ég
varð fyrir vonbrigðum, svo ég var
búin að skrá mig í sjúkraliðann. En
þá hringdi Sveinn Einarsson í mig
og bauð mér Uglu í Atómstöðinni.
Ég hafði lesið þessa bók þegar hún
kom út, þá var ég átta ára, og mundi
enn eftir kápunni. Mér fannst ég hafa
fengið Ólympíuverðlaun, að fá að
leika Uglu. Þá hvarf allt annað.“
Horfir alltaf fram á við
Margrét Helga segir að í framhaldinu
hafi hún verið áfram niðri í Iðnó en
það hafi þó liðið einhver ár áður en
hún fékk samning. „Ég þurfti því alltaf
að fá mér vinnu á sumrin og svo var
þetta mjög illa launað á þessum tíma.
Það rifjast nú stundum upp fyrir
mér þegar unga fólkið er að kvarta
undan því hvað það er þreytt að
þegar maður var búinn að leika á
kvöldin fór maður á næturvakt og
hugsaði um lamað fólk og svaf svo
á meðan börnin voru í skólanum.
En um helgar var stokkið á stað eftir
leiksýningar og brunað í Austur-
bæjarbíó til þess að leika miðnætur-
sýningarnar sem við stóðum fyrir til
þess að safna fyrir nýju leikhúsi.
Stundum var tæpt að ná á milli og
ég man sérstaklega eftir einni sýn-
ingu en þá sat ég aftur í leigubílnum á
leiðinni en Soffía Jakobsdóttir í fram-
sætinu og ég sá um að festa á hana
hárkolluna. Þannig að það gekk oft
mikið á en maður var alsæll. Fékk að
vera í leikhúsinu með þessu stórkost-
lega fólki enda ofboðslega heppin
með fólkið sem tók á móti mér í Iðnó
og ég vann með þar í mörg ár.“
Margét Helga segir að hún hafi
aldrei horft mikið um öxl eftir þetta
eða séð eftir því að hafa helgað starfs-
ævi sína leikhúsinu. „Nei, ekki frekar
en öðrum misviturlegum ákvörð-
unum sem ég hef tekið í lífinu,“ segir
Margrét Helga og skellihlær og bætir
við: „Það sem er búið, það er búið.
Mér fannst
ég hafa
fengið
ÓlyMpíu-
verðlaun,
að fá að
leika uglu.
Þá hvarf
allt annað.
ég gat bara ekki hugs-
að Mér að segja Þessa
setningu seM ég hafði
heyrt svo Marga segja:
ef ég hefði klárað
Þetta.
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
↣
2 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r26 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
0
2
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
A
5
-D
8
1
0
1
D
A
5
-D
6
D
4
1
D
A
5
-D
5
9
8
1
D
A
5
-D
4
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
1
2
0
s
_
1
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K