Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2017, Page 10
Helgarblað 6.–9. janúar 201710 Fréttir
L
æknirinn minn segir að ég
hefði getað látið lífið þarna úti
vegna lyfjaleysis, eða um borð
í vél Icelandair,“ segir Helgi
Ólafsson sem segir farir sínar
ekki sléttar af ferðalagi til Barcelona
í byrjun desember. Hann varð fyrir
því óláni að ferðataska hans gufaði
hreinlega upp og skilaði sér aldrei
á leiðarenda. Í töskunni voru meðal
annars lyf sem honum eru nauðsyn
leg til að komast í gegnum daginn.
Lyf sem hann tekur vegna meiðsla
á baki og langvarandi veikinda.
Mistökin eyðilögðu ferðalagið fyrir
honum og vini hans sem var með í
för. Nú, mánuði seinna, bólar enn
ekkert á töskunni og er Helgi afar
ósáttur við viðbrögð Icelandair og
það viðmót sem hann hefur fengið
við kvörtunum sínum. Flugfélagið
metur frásögn hans og kröfugerð
vegna þeirra muna sem eiga að hafa
glatast, ótrúverðuga.
Taskan horfin í París
Helgi flaug ásamt félaga sínum frá
Keflavík 2. desember síðastliðinn,
millilent var í París og flogið með
tengiflugi þangað til Barcelona.
Í París kom hins vegar í ljós að
farangur þeirra hafði ekki skilað sér.
Vegna ástands síns segir Helgi að
hann tilkynni ávallt um veikindi sín
áður en hann ferðast til útlanda og
kveðst hafa þráspurt við innritun
ina hvort taskan yrði innrituð alla
leið og ávallt fengið þau svör að
hann þyrfti engar áhyggjur að hafa,
taskan myndi skila sér til Barcelona.
Helgi hafði tekið með sér lyf í
handfarangri en aðeins það magn
sem hann taldi sig þurfa um borð í
vélunum. Afganginum, sem átti að
duga alla utanlandsferðina, hafði
verið pakkað ofan í töskuna sem ekki
hafði skilað sér. Þá hafði farangur fé
laga hans ekki heldur skilað sér alla
leið. „Ég fór áhyggjulaus um borð í
flugvélina. En ég veiktist strax daginn
eftir úti í Barcelona, 3. desember. Í
kjölfarið leitaði ég læknisaðstoðar á
Spáni, mér voru gefin lyf til að halda
einkennum í skefjum og ráðlagt að
ferðast ekki frekar um sinn.“
Helgi segir að tilefni ferðarinnar
hafi verið að fara á knattspyrnuleiki
og spila golf. Hann hafi reyndar látið
sig hafa það að sitja í stúkunni, þrauka
og horfa á leikina, enda hafi miðarnir
verið dýrir og hann ekki getað hugsað
sér að láta þá fara til spillis.
Vanlíðan og fráhvörf
„Ferðin var hreinlega ónýt þar
sem ég fékk ekki lyfin við mínum
sjúkdómi. Vegna þessa varð ég fyr
ir miklum heilsubresti og veiktist
hastarlega. Eftir að hafa verið úti
í einn dag í íbúð í Saloh veiktist ég
enn frekar og læknir sem kallaður
var til mældi eindregið með því að
ég flytti inn á hótel ef þörf væri á
frekari inngripum og styttra væri í
næsta sjúkrahús,“ segir Helgi. Þegar
þangað var komið óskaði hann aft
ur eftir lækni en hjá honum fékk
hann ekki þau lyf sem hann þurfti
til að bregðast við veikindum sín
um. „Auk þess sem sá læknir þekkti
ekki mína sögu að fullu. Áfallið var
mikið þegar ég fékk engin svör um
hvar taskan væri niðurkomin og
ferðin ónýt. Ferðalaginu var lokið
sama dag og ég lenti á Spáni. Lyfja
leysið varð til þess að vanlíðan og
fráhvörf voru mikil og ég gat með
engu móti notið þess að horfa á
fótboltaleiki sem ég var búinn að
greiða himinháa upphæð fyrir við
þessar kringumstæður. Ferðin sem
var fyrst og fremst til þess farin að
horfa á fótbolta og spila golf. Fót
bolti og golf eru mín aðaláhugamál
og var ég lengi búinn að skipuleggja
og safna fyrir ferðinni.“
Þar sem þeir félagar voru nær
allslausir í Barcelona fengu þeir
heimild hjá flugfélaginu til að
kaupa fatnað og nauðsynjar. Helgi
kveðst hafa keypt skynsamlega inn
og tekið nótur fyrir öllum kaupum.
Þrátt fyrir að hafa haldið bókhald
fyrir öllum kaupum, eins og hann
var beðinn um, hefur hann ekki
fengið endurgreitt.
Hann segir að heimferðin hafi
verið skelfileg. Hann hafi ekki verið
búinn að fá lyfin sín í marga daga.
„Ég spurði hvort ég gæti fengið að
sitja í fyrsta farrými þar sem ég sá
að fáir voru og þegar vanlíðanin er
svona mikil vill maður fá að vera í
friði og ró. Ég lýsti í stuttu máli fyrir
starfsmanni um borð hvað hefði
gerst og þvílíkum dónaskap hef ég
aldrei mætt á minni ævi. Ég var bara
húðskammaður fyrir að kunna ekki
að pakka í tösku og var niðurlægður
fyrir framan aðra farþega.“
Krafan metin ótrúverðug
Þegar heim var komið fór Helgi á
fund með yfirmanni hjá Icelandair.
„Þar var mér tjáð að þetta væri svo
ótrúlegt að þetta líktist frekar ein
hverju svindli og taldi hann ólík
legt að krafa mín yrði samþykkt. Þá
var mér öllum lokið.“ Helgi segir að
hann muni beina viðskiptum sín
um annað í framtíðinni.
„Ferðin í heild var hreint út
sagt ömurleg og viðmót Icelandair
finnst mér til skammar. Og hvar
er farangurinn minn?“ spyr Helgi
sem síðan fékk það endanlega stað
fest nú á miðvikudag að krafa hans
þætti ótrúverðug og að Icelandair
myndi ekki samþykkja hana.
„Ég spurði af hverju og þá kemur
í ljós að maður má greinilega ekki
eiga fína og flotta hluti án þess að
verða ótrúverðugur. Tilteknir voru
sérstaklega þrír hlutir sem ég var
með í töskunni og tilkynnti tapaða.
Armbandsúr, Hugo Bossleðjurjakki
og Hugo Bossblazerjakki. Mér
finnst þetta algjörlega fráleitt.“
DV leitaði viðbragða Icelandair
við frásögn Helga.
„Við teljum ekki rétt að tjá okkur
um þetta mál að öðru leyti en því
að við teljum að farþeginn sem DV
spyr um hafi ekki fært sönnur á kröf
ur sínar,“ segir Guðjón Arngríms
son, upplýsingafulltrúi Icelandair, í
skriflegu svari. n
n Draumaferð Helga til Barcelona varð að martröð n Taska með nauðsynlegum lyfjum gufaði upp
„Ferðalaginu var lokið
sama dag og ég lenti“
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
„Ferðin var hrein-
lega ónýt þar sem
ég fékk ekki lyfin mín.
Eyravegi 23, Selfossi - S: 555 1314 - ha@hannyrdabudin.is
Hannyrðab
udin.isNý hei
masíða
Ótrúlegtúrval!