Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2017, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2017, Side 17
Golfgleði Golfskálans vorið 2017 21.04 – 02.05 á Roda Golf Spáni Mörkinni 3 - Sími 578 0120 - golfskalinn.is Ef þú hefur gaman af því að kynnast nýju fólki og taka þátt í skemmtilegum golfmótum þá er 11 daga Golfgleði Golfskálans eitthvað fyrir þig. Golfgleði Golfskálans hefur notið mikilla vinsælda undanfarin ár og fyrir vorið 2017 þá varð Roda Golf fyrir valinu. Roda Golf er mörgum íslenskum kylfingum, sem hafa dvalið á Alicante svæðinu, kunnugur. Virkilega flottur 18 holu golfvöllur sem er staðsettur rétt við Mar Menor (litla hafið). Aðeins um 60 mín. akstur í suður frá flugvellinum í Alicante. Völlurinn er byggður á flatlendi og því auðveldur að ganga. Brautirnar eru fjölbreyttar og flatirnar margar stórar með töluverðu landslagi. Klúbbhúsið er glæsilegt og veitingastaðurinn verðlaunaður sem besti veitinga­ staðurinn á Murcia svæðinu. Gist er í íbúðum, ýmist 2 eða 3 svefnherbergja og allar með 2 baðherbergjum. Þær eru allar búnar öllum helstu þægindum s.s. velbúnu eldhúsi og þvottavél og þurrkara sem getur komið sér vel. Íbúðirnar eru staðsettar við golfvöllinn. Í næsta nágrenni eru bæirnir Los Narejos og Los Alcázares þar sem er að finna góða veitingastaði, matvöruverslanir og fallegar strendur Mar Menor. Frá Roda er aðeins um 2 km. í loftlínu niður á ströndina við Mar Menor. Fyrir þá sem vilja komast í fataverslanir þá er La Zenia verslunarmiðstöðin ekki langt undan. La Zenia er stærsta verslunarmiðstöðin á Alicante svæðinu með öllum þessum helstu verslunum. Það tekur rétt rúmlega 15 mín. að aka frá Roda til La Zenia. Dagskrá ferðarinnar innifelur nokkur golfmót sem eru meira hugsuð sem skemmtun fremur en heimsmeistarakeppnir, sameiginlegt lokahóf og létta golfkennslu svo eitthvað sé nefnt. Golfbílar eru innifaldir fyrstu 18 holur hvers dags. Verð miðað við 4 saman í 2 svefnherbergja íbúð er aðeins kr. 189.900 á mann og kr. 199.900 á mann ef 2 saman. » Flug með sköttum og flutningi á golfsetti og ferðatösku. » Akstur til og frá flugvelli. » Morgunmatur. » Lokahóf með sameiginlegum kvöldverði. » Ótakmarkað golf í 10 daga. » Golfbíll 18 holur á dag. » Handkerrur eru gjaldfrjálsar. » Íslensk fararstjórn. Verð: Innifalið er: 21. apríl - 2. maí 2017 Eigum enn nokkur sæti laus á Alicante Golf í byrjun apríl og eftir 5. maí. Nánar á www.golfskalinn.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.