Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2017, Page 20
Helgarblað 6.–9. janúar 201720 Fréttir Erlent
L
angt inn í miðju landi
Bandaríkjanna, í vestur-
hluta Suður- Dakóta, stendur
þyrping meðalstórra neðan-
jarðarbyrgja sem láta ekki
sérstaklega mikið yfir sér. Áður fyrr
gegndu þessi neðanjarðarbyrgi
hernaðarlegum tilgangi en í dag
er tilgangur þeirra annar og meiri.
Þarna munu þeir sem eiga peninga
geta leitað ef allt fer til fjandans.
Dýrt öryggi
Rekstraraðili byrgjanna er fyrirtæki
sem heitir Vivos Group og sinnir
ört stækkandi markaði þeirra sem
vilja tryggja framtíð sína. Ef kjarn-
orkustyrjöld brýst út, alvarleg-
ir sjúkdómsfaraldrar ógna framtíð
mannkyns eða loftsteinn lendir á
jörðinni geta þeir sem hafa tryggt
sér byrgin leitað í þau.
Vivos keypti umrædd neðan-
jarðarbyrgi á síðasta ári og verða
þau leigð þeim sem vilja tryggja
framtíð sína á óvissutímum. Hægt
verður að leigja þau til 99 ára og
er ársleiga þúsund Bandaríkja-
dalir, 115 þúsund krónur á núver-
andi gengi. Fyrirtækið krefst þess
að leigjendur greiði 25 þúsund
dala tryggingu fyrirfram, eða tæpar
þrjár milljónir króna. Þessa dagana
er unnið að því að koma byrgjun-
um í stand og hefur fyrirtækið aug-
lýst þau til leigu. Sú vinna er sögð
ganga ágætlega og vonast forsvars-
menn fyrirtækisins til þess að að-
staða fyrir starfsmenn, skrifstofur
og fleira verði tilbúin fyrir haustið.
Afþreying í boði
Byrgin eru leigð í núverandi ástandi
og án rafmagns, vatns og loftræsti-
búnaðar svo dæmi séu tekin. Fólki
stendur til boða að fá þau fullbúin,
til dæmis með húsgögnum og af-
þreyingu, biljarðborðum og sjón-
vörpum þar á meðal, en fyrir það
þarf að greiða sérstaklega. Þegar
öllu er á botninn hvolft munu þess-
ar viðbætur kosta fleiri milljónir
króna.
Neðanjarðarbyrgin voru byggð
af hernum árið 1942 þegar síðari
heimsstyrjöldin stóð sem hæst og
voru þau í notkun, ef svo má segja,
til ársins 1967. Síðan þá hafa þau
staðið tóm. Byrgin, sem eru 575
talsins, eru þannig úr garði gerð að
þau geta þolað ýmislegt, til dæmis
mjög öflugar sprengingar.
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
Neðanjarðarbyrgi Alls er um að ræða 575 neðanjarðarbyrgi.
DómsDagshveLfingar
„Hver sem
hættan verður þá
eru byrgin okkar byggð
þannig að þau geta þolað
nánast hvað sem er.
Fyrirtækið Vivos býður fólki að leigja neðan-
jarðarbyrgi ef allt fer til fjandans
fyrir þá ofurríku
S HELGASON
- Steinsmiðja síðan 1953