Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2017, Qupperneq 33
Helgarblað 6.–9. janúar 2017 Fólk Viðtal 25
léttir þegar hann opnaði sig loksins
og hún hafi gert ráð fyrir því að
hann fengi í framhaldinu viðeigandi
læknisaðstoð til að koma lífi sínu í
réttan farveg. En svo var ekki. Þá seg-
ist Elva hafa hvatt Þórlaug til að hafa
samband við bestu vini sína og segja
þeim hvernig staðan væri því það
væri mikilvægt að eiga góða að við
svona erfiðar aðstæður. Hann gerði
það ekki.
„Eftir að Þórlaugur dó og við
sögðum vinum hans frá veikindum
þá komu þeir alveg af fjöllum þar
sem hann virtist alltaf svo hress og
kátur þegar þeir hittu hann. Það er
algengt hjá fólki sem glímir við and-
leg veikindi þar sem það sést ekki
alltaf utan á manni hvernig manni
raunverulega líður.“
Upplifði mikla höfnun
Eftir að Þórlaugur játaði fyrir móður
sinni og ömmu hvernig honum leið
var hann sammála þeim um að hann
þyrfti á utanaðkomandi aðstoð að
halda. Það tók þær þó nokkra daga
að sannfæra Þórlaug um að fara á
bráðamóttökuna til að hitta lækni.
Þar beið Þórlaugur í fimm og hálfa
klukkustund eftir læknisaðstoð. „Það
er algjörlega fáránlegt að svona veik-
ur einstaklingur sé látinn bíða svona
lengi. Ef hann hefði verið með verk
fyrir hjarta þá hefði hann verið tek-
inn strax inn. Ef hann hefði verið með
krabbamein hefði allt verið gert til að
hjálpa honum. En af því að hann var
unglingur með sjálfsvígshugsanir þá
var hann ekki metinn nægilega veikur
til að fá viðeigandi aðstoð.“
Elva segir að Þórlaugur hafi upp-
lifað mikla höfnun eftir viðtalið sem
hann fékk við unglækni. Þórlaugur
var leystur út úr viðtalinu með upp-
áskrifuð þunglyndislyf frá geðlækni
sem hann fékk þó aldrei að hitta
augliti til auglits. Geðlæknir skrifaði
upp á lyfin fyrir unglækninn og setti
nafn sitt við bráðamóttökuskrána án
þess þó að hitta Þórlaug.
Fyrsta sjálfsvígstilraunin
Nokkrum dögum eftir viðtalið reyndi
Þórlaugur að svipta sig lífi. Í sjálfsvígs-
bréfi sem hann skrifaði til kærustunn-
ar sinnar þann 27. nóvember sagðist
hann ætla að keyra upp á Öxnadals-
heiði og bíða eftir því að stór vöru-
flutningabíll kæmi keyrandi. Þá ætl-
aði hann að svipta sig lífi með því að
keyra beint framan á hann.
Fyrir tilviljun fann kærasta Þór-
laugs bréfið og hringdi á lögregluna
áður en honum tókst ætlunarverk-
ið. „Maðurinn minn er lögreglumað-
ur og það var hringt í hann. Þeir létu
staðsetja símann hans og fóru strax
af stað að leita að honum. Maðurinn
minn kom svo með Þórlaug heim,“
segir Elva.
Við tóku erfiðar samræður við Þór-
laug um alvarleika málsins og fjöl-
skyldan grátbað hann um að fara aftur
til læknis og biðja um aðstoð. „Daginn
eftir samþykkti hann loks að koma
með okkur upp á bráðamóttöku. Hann
var mjög ragur að koma sér af stað þar
sem hann nennti ekki að bíða í marga
klukkutíma og svo yrði ekkert gert.“
Hann lét þó til leiðast og fór ásamt
móður sinni og stjúpföður á
bráðamóttökuna þar sem vakt-
læknir var kallaður til fundar við
þau. „Læknirinn bað hann um
að finna öryggisorð. Eitthvert
orð sem hann ætti að senda
okkur eða hringja og segja ef
honum myndi aftur líða svona
illa. Þá bað læknirinn hann um
að gera þetta ekki aftur. Síðan
fórum við heim.“
Aðspurð af hverju Þórlaugur
hafi ekki verið lagður inn eftir
þetta segir Elva: „Ég veit það ekki.
Þetta var ekki talið nógu alvarlegt.
Hann var ekki með neina áverka og
það var enginn skaði skeður. Það sést
á fólki ef það tekur inn lyf. Kannski er
það ekki talið nógu alvarlegt að ætla
að keyra framan á bíl.“
Kom að lokuðum dyrum
Í framhaldinu fann Elva sálfræðing
fyrir Þórlaug. Eftir tvo tíma sagðist
Þórlaugur ekki vilja fara lengur.
„Hann sagðist ekkert hafa að gera
þangað þar sem sálfræðiaðstoðin
væri ekki að virka. Það stóð líka í hon-
um hvað þetta var dýrt. Þess vegna
vildi hann eiginlega ekki fara. Ég sagði
honum ekki að hafa áhyggjur af því.
Við myndum borga sálfræðinginn.“
Þá harðneitaði Þórlaugur að
prófa annan sálfræðing. „Hann
sagði bara nei, nei og að hann vildi
það ekki. Mig grunar að þarna hafi
hann hreinlega verið búinn að gefast
upp.“
Desembermánuður reyndist Þór-
laugi og hans nánustu gríðarlega
erfiður. „Hann var búinn að leita sér
hjálpar en fannst það ekkert gera
fyrir sig. Þórlaugur sá einfaldlega
enga leið út úr þessu. Hann vildi ekki
lifa svona. Honum fannst hann líka
vera svo mikil byrði á kærustunni og
að það hlyti að vera hræðilegt fyrir
hana að hafa hann svona veikan.
Kvöldið áður en hann dó sagði hann
við mig að eina leiðin fyrir hana til að
losna við hann væri ef hann myndi
deyja.“
Þá segir Elva að hún hafi reynt
að telja hann ofan af því að fremja
sjálfsvíg með því að keyra fram-
an á annan bíl. Hann væri ekki ein-
göngu að stofna sínu lífi í hættu
heldur einnig lífi fólksins í hinni bif-
reiðinni. Hann kvaðst skilja það en
samt gerði hann það ekki.
„Þórlaugur var auðvitað
bara nýorðinn 18 ára og
því ekki mjög lífsreynd-
ur.“ Hann einfaldlega gat
ekki tekist á við svona stórt
verkefni einsamall. Þetta
kvöld bað Elva son sinn ít-
rekað um að koma með sér
upp á sjúkrahús. Þórlaugur
tók það ekki í mál þar sem
hann fengi hvort eð er enga
aðstoð.
22. desember 2015
Klukkan korter í fjög-
ur síðdegis þann 22. des-
ember 2015 hringdi Elva í
Þórlaug. Hún var í klipp-
ingu en þau ætluðu í fram-
haldinu að hittast og kaupa
jólagjafir. „Hann hljómaði
ekkert öðruvísi í þessu sím-
tali. Ég man samt að þegar
hann kvaddi mig þá hljóm-
aði orðið bless mjög lang-
dregið. Eins og það hafi verið
erfitt fyrir hann að segja það.“
Korteri síðar, eða um klukk-
an fjögur, keyrði Þórlaugur framan á
stóran flutningabíl á Þjóðvegi 1 norð-
an við Akureyri. Þórlaugur, sem var
ekki í belti, lést samstundis. Tveir far-
þegar voru í flutningabílnum auk bíl-
stjórans. Engan sakaði líkamlega. Þau
voru hins vegar niðurbrotin andlega
eftir áreksturinn.
Elva var nýbúin í klippingu þegar
maðurinn hennar kom rúmlega fjög-
ur að sækja hana á hárgreiðslustofuna.
„Hann sagði við mig að við þyrftum að
fara strax upp á sjúkrahús. Þórlaugur
hefði látið verða af þessu. Örvæntingin
yfirtók alla skynsemi og við brunuðum
af stað. Þegar við komum inn á slysa-
deildina var okkur samstundis vísað
inn í aðstandendaherbergi. Það fyrsta
sem ég sá var prestur og þá vissi ég að
Þórlaugur væri dáinn. Ég gat ekkert
gert nema að öskra, aftur og aftur – af
hverju var honum ekki hjálpað?“
Þarna var Elva ekki að vísa til af-
leiðinga árekstursins heldur þess að
Þórlaugur fékk ekki viðeigandi að-
stoð þegar hann leitaði sér aðstoðar
vegna andlegra veikinda sinna.
Ónærgætinn fréttaflutningur
Elva treysti sér fyrst til að fara á slys-
staðinn fimm dögum síðar eða þann
27. desember 2015. Þá settu þau nið-
ur kross, lögðu kerti og kort á stað-
inn þar sem áreksturinn varð. Þá
treysti Elva sér ekki til að sjá bílinn
eftir áreksturinn en systir hennar
sem og fleiri nánir vinir Þórlaugs og
ættingjar sáu bílinn óvænt í frétt-
„Kerfið
brást ekki
Þórlaugi“
Erfitt að spá fyrir um
sjálfsvíg ungmenna
„Ég get ekki tekið undir það að kerfið
hafi brugðist Þórlaugi.“ Þetta segir Helgi
Garðar Garðarsson, forstöðulæknir
geðlækninga á Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Helgi hafði sjálfur ekki beina
aðkomu að málinu en segir að
almennt geti verið erfitt að spá fyrir
um sjálfsvíg ungmenna. Helgi bendir
á að Þórlaugi hafi verið vísað áfram
til heimilislæknis og ráðlagt að leita
til sálfræðings. Þá var hann settur á
þunglyndislyf. Hann telur því að lækn-
ar sjúkrahússins hafi gert viðeigandi
bráðamat þrátt fyrir að mál Þórlaugs
hafi fengið svo hörmulegan endi.
„Oftast þegar ungt fólk hugsar um
að svipta sig lífi er það gert í hvatvísi
sem er augnabliksástand sem enginn
læknir getur séð fyrir.“
Inntur svara við því hvort það hafi
ekki komið óþægilega við læknana
eftir að Þórlaugur svipti sig lífi á
nákvæmlega sama hátt og hann sagði
í viðtali tæpum fjórum vikum áður, og
var ekki metinn nógu veikur til að fá
innlögn eða aðra meðferð á sjúkrahús-
inu, svarar Helgi:
„Það sem einkennir oft geðræn
vandamál ungs fólks er tilfinningalegur
óstöðugleiki. Það þyrmir yfir í ákveðinn
tíma og svo gengur það til baka aftur.
Það er mjög algengt hjá þessum hópi
að vera með sjálfsvígs- og dauðahugs-
anir. Það er allt annað mál að vera í
sjálfsvígshættu.“ Helgi bætir við:
„Sárafáir láta af þessu verða. Það
er að segja reyna fyrir alvöru að svipta
sig lífi. Þá getur verið erfitt að greina
á milli þeirra sem raunverulega eru í
sjálfsvígshættu og þeirra sem eru með
sjálfsvígshugsanir. Það er vandmeðfar-
ið og mikil kúnst að meta hverjir þurfa
nauðsynlega á aðstoðinni að halda.“
Helgi bendir jafnframt á að læknar
sem sinna bráðaþjónustu geti aldrei
vitað alla sögu sjúklinga sinna. „Maður
metur út frá heildinni og því hvernig
normið er.“ Hann segir enn fremur að í
geðlækningum gildi meðalhófsreglan.
Það er að grípa ekki meira inn í en
ástæður gefa tilefni til.
„Stærsta inngripið í geðlækning-
um er innlögn. Hundruð sjúklinga
koma til okkar á hverju ári og tala um
sjálfsvígshugsanir. Við gætum aldrei
lagt alla sem tilheyra þessum hópi inn
á sjúkrahús. Það segir sig sjálft.“
„Kannski
er það
ekki talið nógu
alvarlegt að
ætla að keyra
framan á bíl
Leiðandi á leiksvæðum • Sími 565-1048
jh@johannhelgi.is • www.johannhelgi.is
Lappset
tilboð 2016
Jóhann Helgi & Co ehf, „Stofnað 1990“
Sími 565 1048 - 820 8096
jh@johannhelgi.is – www.johannhelgi.is
Útileiktæki: Rólur, vega ölt,
gormatæki, rennibrautir,
leikkastalar ofl. Frá viðurkenndum
framleiðendum eins og Lappset,
Wicksteed, Stilum, Dynamo, Huck
ofl.
Járnrimlagirðingar fyrir
skóla- og leikskólalóðir, íþróttavelli,
fjölbýlishús og einkaló ir. Þýsk gæði
frá Legi.
Hjólabrettapallar frá Rhino
Ramps í Belgíu, komnir upp víða
um land við frábærar undirtektir
notenda.
Fallvarnarefni: Gúmmíhellur
frá Þýskalandi og gúmmímottur á
gras, þar sem grasið vex upp í gegn
um motturnar og motturnar hlífa
grasinu og virka sem fallvörn.
Leikföng, húsgögn og
búnaður fyrir leikskóla frá
stærsta dreifingaraðila Danmörku,
Lekolar (áður Rabo - Brio).
Mörk og körfur,
útiþrektæki og ýmsar
gerðir af sparkvöllum frá
viðurkenndum framleiðendum eins
og t.d. Sure Shot, Lappset, Wicksteed
og Saysu.
Bekkir, ruslafötur,
stubbahús, skýli,
reiðhjól grindur,
trjágrindur, pollar,
ljósastaurar, blómaker ofl.
frá GH Form, Vekso, Nifo, Orsogril
Vestre o.fl.
Bændur og hestamenn:
Nótuð plastborð, fjárhúsgólf,
búgarðagirðingar (Dallas), gerði
og girðingarstaurar. úr plasti,
básamottur og fóðurgangamottur.
BJóðuM HeiLdarLausnir á
LeiksvæðuM. uppsetning,
viðHaLd og þJónusta
Leitið tiLBoða
w
w
w
.jo
ha
nn
he
lg
i.i
s
Sumarhúsið og garðurinn 2. 2009 33
M
yn
di
r f
rá
F
er
ða
þj
ón
us
tu
nn
i V
at
ns
ho
lti
w
w
w
.s
ta
yi
ni
ce
la
nd
.is
Þórlaugur Ragnar
Var ný orðinn 18 ára
þegar hann lést.
Mynd ÚR einKasaFni
Fjölskylda Hér er Þórlaugur ásamt móður sinni, upp-eldisföður og litla bróður sínum. Mynd ÚR einKasaFni