Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2017, Page 43
Helgarblað 6.–9. janúar 2017 Lífsstíll 35
Retor Fræðsla
Íslenskukennsla fyrir innflytjendur
Vorönn 2017
er að hefjast!
Hafðu samband
á retor.is eða í
síma 519 4800
Retor Fræðsla - Hlíðasmára 8, Kópavogi - Sími: 519 4800 - www.retor.is
Hringsjá
Náms- og starfsendurhæfing
ER EKKI KOMINN TÍMI
TIL AÐ GERA EITTHVAÐ
Fjölbreytt námskeið
framundan
Frekari upplýsingar og skráning í síma 510 9380 eða á hringsja.is
Staðreyndir um
fæðubótarefni
M
arkaðurinn með svoköll-
uðum heilsuvörum, hvort
sem það er nú fæðubót-
arefni, fæðuauki, plöntu-
extraktar eða annað, hef-
ur farið stækkandi undanfarin ár og
var hann þó orðinn stór fyrir. Oft eru
vörur boðnar til sölu sem virka eins
og þær eru sagðar virka í auglýsing-
um en því miður er það þó mjög oft
svo að fólk kaupir köttinn í sekknum.
Hér má sjá fullyrðingar sem oft heyr-
ast þegar tveir eða fleiri koma saman
og ræða þessi mál. n
B-12 vítamín læknar þynnku?
Það er ljóst að það gengur á B-vítamínforðann við langvarandi drykkju. Aftur á móti er
ekkert í vísindunum um jákvæð áhrif af stærri skömmtum af B-12 vítamíni á þynnku sem
kemur í kjölfar einstaka ofdrykkju.
Ginseng gerir þig gáfaðri?
Til eru mismunandi tegundir af ginseng sem hafa að einhverju leyti mismunandi áhrif.
Ekkert er í vísindunum um það hvort ginseng geri mann gáfaðri. Hitt er annað mál að
flestar tegundir af ginseng hafa einhver örvandi áhrif og við örvun miðtaugakerfis,
þ.m.t. heilans, má vel vera að fólki finnist það vera gáfaðra.
Sólhattur læknar flensu?
Sólhattur læknar ekki flensu. Mjög mismunandi er þó hvort niðurstöður rannsókna
styðji að sólhattur geti dregið úr áhrifum flensu, líkt og haldið hefur verið fram með
C-vítamín. Líkur á eituráhrifum vegna neyslu á sólhatti eru litlar ef neyslan er í samræmi
við ráðleggingar og því getur neysla á sólhatti sennilega ekki gert neitt ógagn en spurn-
ingin er hvort sólhattur geri eitthvert gagn.
A-vítamín bætir sjónina?
Ef um er að ræða skort á A-vítamíni, sem er ekki tilfellið hjá flestum Íslendingum, þá get-
ur viðbót af A-vítamíni bætt sjónina. Hins vegar getur A-vítamín í formi retínóla (retinol,
retinal) verið mjög skaðlegt í stórum skömmtum. Því er mikilvægt að halda sig sem næst
ráðlögðum dagskammti (RDS) og neyta ekki meira af A-vítamíni en nauðsynlegt er.
Kreatín gerir þig sterkari?
Kreatín er oftast á forminu kreatín-fosfat (CP). Adenósín-þrí-fosfat (ATP) er geymslu-
staður orku í líkamanum. Við aukna neyslu á kreatín-fosfati stuðlum við að því að hafa
meira af ATP við áreynslu í stutt, snörp átök (1-10s). Því er talið að við getum bætt ákefð
í stuttum, snörpum átökum ef við neytum fæðubótarefna sem innihalda kreatín. Niður-
stöður rannsókna, sem nær eingöngu hafa verið gerðar á karlmönnum 18–35 ára, benda
til þess að neyslan sé án óæskilegra hliðarverkana fyrir þann hóp. Upplýsingar varðandi
aðra hópa liggja ekki fyrir og því ættu börn og unglingar ekki að neyta kreatíns.
C-vítamín dregur úr skaða af völdum reykinga?
Best er fyrir líkamann ef fólk reykir ekki. C-vítamín er andoxari og getur því dregið úr
skaðlegum áhrifum, t.d. súrefnis, á frumuhimnur líkamans. Skaðleg áhrif vegna oxunar
eru meiri hjá reykingamönnum vegna sígarettureyksins en hjá þeim sem ekki reykja. Það
virðist sem neysla á C-vítamíni, allt að 100mg á dag, geti komið að gagni við að draga úr
oxunarskaðsemi reykinga. Þess ber þó að geta að skaðsemi reykinga er ekki eingöngu
bundin við þennan þátt.
Króm dregur úr sykurlöngun?
Króm er mikilvægur hlekkur í insúlínviðbrögðum líkamans en insúlín hefur m.a. áhrif á
magn sykurs í blóði. Hjá þeim sem eru með sykursýki geta insúlínviðbrögðin verið skert
og því er talið að viðbótar króm geti hjálpað þeim við blóðsykurstjórnun. Aukin neysla á
krómi er ekki talin geta stuðlað að betri blóðsykurstjórnun, og þar með sykurlöngun, hjá
þeim sem eru með eðlilega stjórnun á blóðsykri (þ.e. ekki með sykursýki af neinni tegund).
D-vítamín styrkir bein?
D-vítamín er fituleysanlegt vítamín sem margir vilja frekar kalla hormón-líkt efni vegna
hlutverks þess í líkamanum. D- vítamín hefur m.a. áhrif á það hversu vel við nýtum kalk
úr fæðunni. Kalk er mikilvægt í uppbyggingu og viðhaldi beina og því eru það gömul
og ný sannindi að D-vítamín og kalk eru nauðsynleg í hæfilegu magni til að móta og
viðhalda sterkum beinum. Hreyfing eykur einnig styrk beina.
Kalíum er vöðvaslakandi?
Kalíum (K) gegnir mikilvægu hlutverki í starfsemi taugakerfis og vöðva. Kalíum hefur
m.a. hlutverki að gegna í taugaboðum til vöðva um að slaka skuli á herptum vöðva.
Styrk kalíum er mjög vel stjórnað í líkamanum og ef fólk er á annað borð ekki með neina
sjúkdóma sem brengla kalíumjafnvægi líkamans, m.a. hjartavöðva, er alger óþarfi, og
reyndar óæskilegt, að neyta mikils magns af kalíum sem fæðubótarefnis í þeirri trú að
það hafi vöðvaslakandi áhrif.
Koffín er fitubrennsluefni?
Koffín hefur á óbeinan hátt örvandi áhrif á miðtaugakerfið, þ.m.t. heila. Við örvun
miðtaugakerfis erum við líklegri til að hreyfa okkur og sú hreyfing er í raun ástæða
þess að við brennum meiri orku og þar með meiri fitu frekar en bein fitubrennsluáhrif
koffíns. Þess ber þó að geta að neikvæðar hliðarverkanir geta fylgt neyslu á koffínríkum
matvælum og er ófrískum konum, konum með börn á brjósti, börnum og þeim sem eru
viðkvæmir fyrir koffíni ráðlagt að neyta ekki koffíns í miklu magni.
E-vítamín kemur í veg fyrir bólur?
Margir neyta E-vítamíns í meira magni en ráðlagður dagskammtur segir til um í
þeirri von að það hafi verndandi áhrif gagnvart hjarta- og æðasjúkdómum. Varðandi
bólumyndun þá er sá sjúkdómur vegna annarra þátta (m.a. stærri fitukirtlar vegna
uppsafnaðrar húðfitu) og ekkert í vísindum næringarfræðinnar sem styður þá tilgátu að
E-vítamín geti komið í veg fyrir bólumyndun.
Mikilvægt er fyrir neytendur að gera sér grein fyrir því að margt af því sem er í sölu hér
á landi, sem og annars staðar, er e.t.v. gagnslaust þó svo að neyslan skapi enga hættu
sé farið ráðleggingum varðandi magn. Sem neytendur verðum við að vera gagnrýnin
á þær upplýsingar sem okkur eru veittar og spyrja hvaðan þessar upplýsingar koma.
Ef greinilegt er að upplýsingarnar eru ekki studdar með vísindalegum gögnum og við-
skiptasjónarmið ráða hvernig upplýsingarnar eru framsettar, þá er æskilegt að þessum
upplýsingum sé tekið með varúð. Við val á fæðubótarefnum, fæðuauka, plöntuextrökt-
um og öðrum slíkum efnum er oft gott að hafa eftirfarandi að leiðarljósi:
Ef auglýstir eiginleikar vörunnar eru of góðir til að geta verið sannir, þá eru þeir líklega
ósannir!
Heimild doktor.is