Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2017, Page 44
Helgarblað 6.–9. janúar 201736 Menning
Bílahitari
Við einföldum líf bíleigandans
Termini 1700 bílahitarinn er tilvalin lausn. Hann er lítill og nettur
og auðvelt að koma honum fyrir t.d. undir mælaborði bílsins.
Allur tengibúnaður fylgir ásamt tímarofa sem ræsir hitarann t.d.
klukkutíma áður en þú leggur af stað.
Verð kr. 39.000
Væri ekki dásamlegt að sleppa við að skafa glugga og geta sest inn í
heitan og notalegan bílinn á köldum vetrarmorgni?
Láttu verkstæðið sjá um ísetninguna.
Verð frá kr. 49.900 með ísetningu.
11.0
52
Stjörnur á ritvellinum
H
eimsfrægar kvikmyndastjörn-
ur hafa haslað sér völl á rit-
vellinum með fremur eftir-
tektarverðum hætti. Hér eru
nokkur dæmi. n
Góðir
dómar
Hugh Laurie hugðist gefa skáldsögu sína, The
Gun Seller, út undir dulnefni en útgefandi hans var svo
ánægður með verkið að leikaranum snerist hugur og setti
nafn sitt við hana. Bókinni var afar vel tekið. Fyrrver-
andi hermaður sem orðinn er drykkfelldur og ráðþrota
samþykkir að gerast leigumorðingi. Bókin mun vera full
af óvæntum atburðum, spennuþrungin og afar vel
skrifuð. Lengi hafa verið sögusagnir um
að framhaldsbók sé væntanleg.
Misjafnir dómar
John Travolta er höfundur bókarinnar Propeller One-Way Night
Coach og þar er sagt frá hinum átta ára gamla Jeff sem dreymir
um að fara í flugferð og fær draum sinn uppfylltan þegar móðir
hans ákveður að fara til Hollywood og verða leikkona. Bókin fékk
misjafna dóma, einhverjir gagnrýnendur hrósuðu henni meðan
aðrir sögðu hana skorta dýpt.
Dugmikill
skáldsagna-
höfundur
Fyrsta skáldsaga James Franco nefn-
ist Palo Alto eftir heimabæ hans og er
uppvaxtarsaga. Leikarinn hefur sagt
að bókin sé að hluta til byggð á eigin
reynslu. Gagnrýnendur hældu leikar-
anum fyrir snjallan og tilgerðarlausan
stíl. Kvikmynd var gerð eftir bókinni
árið 2013 og þar var Franco vitanlega
í hlutverki. Síðan hefur leikarinn sent
frá sér þrjár aðrar skáldsögur.
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is