Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2017, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2017, Side 13
Helgarblað 14. júlí 2017 fréttir 13 Slagsmál á Hrauninu: „Ég beit af honum vörina“ Baldri Kolbeinssyni og Styrmi Haukdal lenti saman með blóðugum afleiðingum T il alvarlegra átaka kom á Litla-Hrauni í miðri viku sem endaði með því að fangi beit efri vörina af sam- fanga sínum. Atvikið átti sér stað á meðan útivistartíma fanganna stóð, nánar tiltekið á gervigras- velli við fangelsið. Hinn slasaði var þegar fluttur undir læknishendur á meðan gerandinn var látinn sæta einangrun. Spýtti stykkinu út úr sér Samkvæmt heimildum DV hófst atburðarásin þannig að föngun- um Baldri Kolbeinssyni og Styrmi Haukdal Snæfeld Kristinssyni varð sundurorða. „Þeir voru að rífast um fíkniefni og síðan fóru þeir að slást. Það reyndi einn fangi að stíga inn á milli en sá fékk þung högg frá báðum aðilum. Hann er með gervigóm sem brotnaði í þrjá hluta,“ segir sjónarvottur í samtali við DV. Að hans sögn hafði Styrmir betur í slagsmálunum og hafði bar- ið Baldur „í spað“ þegar að blóð- ugum endalokunum kom. Þessu lauk með þeim hætti að Styrmir tók sér stöðu klofvega yfir Baldri og hugðist halda barsmíðunum áfram þegar Baldur reisti sig upp og beit í andlit Styrmis. Náði Bald- ur að bíta efri vör Styrmis og beit hana í sundur af öllu afli. Hann spýtti síðan stykkinu út úr sér á gervigrasið. Herma heimildir að Styrmir hafi orgað af sársauka og foss- blæddi úr honum, meðal annars yfir Baldur. Fangaverðir brugðust fljótt við og tóku Baldur úr umferð en Styrmi var veitt aðhlynning. „Það var hrikalegt að sjá Styrmi skríða alblóðugan um gervigras- ið í leit að stykkinu úr efri vör- inni,“ segir sjónarvotturinn. Þegar Baldur var dreginn í burtu öskraði hann hróðugur: „Ég beit af honum vörina.“ Samkvæmt heimildum DV tókst læknum að sauma vörina aftur á Styrmi. Tróð saur upp í samfanga sinn Tvímenningarnir eiga langan sakaferil að baki. Baldur hefur áður átt í skærum við samfanga sína. Þann 10. maí 2014 veittist hann að samfanga sínum, sem dæmd- ur hafði verið fyrir kynferðis brot gegn barni, og makaði saur í and- lit hans. Í frétt DV frá þeim tíma kemur fram að Baldur hefði tekið um höfuð mansins og „makað og troðið saur í andlit hans og munn og því næst slegið hann tvisvar til þrisvar í höfuð og líkama.“ Hafði Baldur saurinn meðferðis í poka innanklæða. Þá var greint ítarlega frá sam- skiptum Baldurs og strokufangans Matthíasar Mána Erlingssonar. Þeir réðust gegn fangaverði á Litla- Hrauni í maí 2013 og nokkrum mánuðum síðar réðst Baldur fólskulega á Matthías Mána í félagi við annan mann og barði hann ít- rekað með lás í andlitið. Baldur, sem er fæddur árið 1990, afplánar nú 18 mánaða dóm sem hann hlaut 4. maí síðast- liðinn. Um var að ræða alls ellefu brot, meðal annars húsbrot, þjófn- aði, tilrán til ráns, hylmingu og fíkniefna- lagabrot. Skar móður sína á háls Styrmir, sem fæddur er árið 1977, afplánar fjögurra ára fangelsis- dóm fyrir að hafa stungið mann í brjóstið fyrir utan smáhýsi við Fiskislóð í Reykjavík í byrjun árs 2015. Árásin kom í kjölfar þess að Styrmir og brotaþolinn höfðu tek- ist á um talsverða hríð og brúk- að meðal annars tunnur, skóflur og grindur til verksins. Átökunum lauk með hnífstungunni en af- leiðingarnar voru þær að fjögurra sentimetra sár myndaðist á brjósti brotaþola. Báðir voru undir áhrif- um eiturlyfja þegar atvikið átti sér stað. Styrmir hefur ellefu sinnum verið dæmdur fyrir brot gegn al- mennum hegningar- og um- ferðarlögum. Hann hefur fimm sinnum verið dæmdur í fangelsi fyrir líkamsárás, fyrst árið 1994, og setið vel á sjötta ár innan veggja fangelsa landsins. Hann viðtali við hann í DV í maí 2004 kom fram að hann hefði skorið móður sína á háls þremur árum fyrr. Styrmir var dæmd- ur ósakhæfur vegna geðklofa en blessunarlega lifði móðir hans árásina af og hlaut ekki varan- legan skaða. n Litla-Hraun Slagsmálin áttu sér stað á útisvæði fangelsisins og enduðu með því að Baldur Kolbeins- son beit efri vörina af samfanga sínum, Styrmi Haukdal. „Það var hrikalegt að sjá Styrmi skríða alblóðugan um gervigrasið í leit að stykkinu úr efri vörinni Styrmir Haukdal Kristinsson Hlaut hrikalega áverka eftir átök við Baldur Kolbeinsson Góðar sængur sem má þvo við 95° hita Teygjulök í öllum stærðum á góðu verði Dýnuhlífar, rakaheldnar, þola þvott við 95° Rúmfatnaður, vandaður, 100% cotton satin með 300TH. 60/60µ. Handklæði, gæðavara, 500 gsm. 100% cotton satin með 300TH. 60/60µ. Frábærar vörur fyrir hótel, og bændagistingu og sjúkrastofnanir Stórhöfði 17 • 110 Reykjavík • Sími 5877685 • Netfang: elias@egheild.is • www.egheild.is HEILD EHF Opið frá kl. 13 til 18 virka daga. Vinsamlegast sendið net- skilaboð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.