Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2017, Side 15
Helgarblað 14. júlí 2017 fréttir 15
É
g ætla ekki að kæra niður
stöðuna. Ég er sátt núna.”
Þetta segir Dayna Alves
en hún ásakaði, fyrir hönd
móður sinnar, Önu Mariu Alves,
lækni á Læknavaktinni í Kópa
vogi um meint læknamistök sem
hún segir að hefðu getað kostað
móður hennar lífið. Atvikið átti
sér stað í nóvember 2016 en þá
yfirsást heimilislækninum sem
skoðaði Önu þrír blóðtappar í
fæti hennar. Dayana kvartaði í
framhaldinu til Embættis land
læknis vegna meintra mistaka
við veitingu á heilbrigðisþjón
ustu hjá Læknavaktinni. Þann 29.
júní síðastliðinn fékk hún loks
fullnægjandi svar við kvörtun
inni. Niðurstaða Birgis Jakobs
sonar landlæknis í málinu er sú
að mistök hafi átt sér stað.
Fótleggurinn bólgnaði
Forsaga málsins sem DV fjallaði
um í lok febrúar 2017 er sú að Ana
Maria Alves sem er búsett í Bras
ilíu, hafði dvalið hjá dóttur sinni,
Dayönu Alves og tengdasyni, Knúti
Einarssyni, í tæpa þrjá mánuði
þegar annar fótleggur hennar byrj
aði að bólgna fjórum dögum áður
en hún átti flug aftur heim til Bras
ilíu. Bólgan og verkirnir stigmögn
uðust með hverjum deginum sem
leið. Kvöldið áður en Ana átti að
mæta í flug fóru þær Dayana á
Læknavaktina í Kópavogi þar sem
þær vildu fullvissa sig um að Ana
væri nógu heilsuhraust til að fara
í flugferðirnar fjórar sem hún átti
bókaðar í til að komast til síns
heima í Brasilíu. Læknirinn sem
tók á móti Önu á Læknavaktinni
mældi blóðþrýsting og gaf henni
parkódín vegna verkja í fæti. Ekki
var minnst á að hún gæti verið
með blóðtappa. Þá var hún heldur
ekki send í frekari rannsóknir. Önu
var heldur ekki ráðlagt að fresta
flugferðinni en læknirinn ráðlagði
henni hvernig ætti að fyrirbyggja
blóðtappa.
Ferðaðist til Brasilíu
Önu beið 30 klukkustunda
ferðalag morguninn eftir.
Strax í fyrstu flugferðinni jókst
bólgan í fætinum. Þegar hún
komst loks á leiðarenda var fót
urinn orðinn svo stokkbólginn
að Ana gat með engu móti stig
ið í hann. Henni var samstundis
ekið á sjúkrahús þar sem brasil
ískir læknar fundu þrjá blóð
tappa í fætinum. Þeir segja
kraftaverk að Ana skyldi lifa
ferðalagið af. Dayönu og Knúti
var mjög brugðið þegar þau
heyrðu hversu alvarleg veikindi
Önu voru. Í framhaldinu lögðu
þau fram formlega kvörtun til
Embættis landlæknis. Fyrsta
svarið sem þau fengu frá emb
ættinu, í febrúar 2017, var að
þeirra mati ófullnægjandi. Þau
héldu fast við að málið væri
skýrt dæmi um grafalvarleg
læknamistök. Því öfluðu þau sér
frekari gagna í málinu sem var
í framhaldinu tekið til endur
skoðunar.
Gerði ekki nóg
Niðurstaða í málinu sem er
dagsett þann 29. júní síðast
liðinn, er sú að læknirinn sem
tók á móti Önu á Læknavaktinni
þann 20. nóvember 2016 hafi
ekki gert nóg fyrir hana. Í áliti
landslæknis vegna kvörtunar
innar segir meðal annars:
„Alþekkt er að blóðtappa
áhætta er mjög aukin í löngum
flugferðum og því meiri sem
flugið er lengra. Hér var um að
ræða fyrirhugað flug til Brasilíu
með allmörgum millilending
um. Bjúgur og bólga á öðrum
ganglim, en ekki báðum, bendir
mjög sterklega til aukinnar
áhættu á blóðtappamyndun.
Ekkert verður afráðið um það
hvenær blóðtappamyndun hafi
átt sér stað, hvort það var fyrir
eða í umræddri flugferð.”
Niðurstaða landlæknis í mál
inu var því sú að rétt hefði verið
að vísa Önu til frekari rannsókna
á ganglim áður en samþykkt
hefði verið að hún færi í svo
langa og erfiða flugferð.
Sátt við niðurstöðuna
Þá segir landlæknir að honum sé
kunnugt um þau þröngu mörk
sem sjúklingafjöldi og tíma
skortur setur vinnu á Læknavakt
inni. Samt sem áður verði að gera
þá kröfu að læknar þar geti greint
alvarlega sjúkdóma á byrjunar
stigi og gripið til viðeigandi ráð
stafana. Því telur landlæknir að
lækninum hafi orðið á mistök.
Blaðamaður DV náði tali af
lækninum sem kveðst lítið geta
tjáð sig um málið. Hann harmar
mistökin. Að sama skapi segir
hann að möguleikinn á að svona
mistök geti gerst sé alltaf fyrir
hendi. „Þetta er í sjálfu sér ekki
auðveld greining. Margir
koma með bjúg á fótum og
yfirleitt er ástæðan annars
eðlis en blóðtappi.”
Dayana er sátt við
niðurstöðuna í málinu.
Hún ætlar ekki að kæra
málið og vonast til þess að
það verði til þess að lækn
ar vandi sig betur í fram
tíðinni. „Það er fáránlegt
að fara til læknis og fá
ekki almennilega skoðun.
Mamma mín hefði getað
dáið. Þetta fór vel að lok
um og mamma hefur það
fínt í dag. Það skiptir mig
mestu máli.” n
„Ég er ekki lengur reið“
n Landlæknir viðurkennir læknamistök á Læknavaktinni sem áttu sér stað í nóvember 2016
n Gaf grænt ljós á 30 klukkustunda ferðalag þrátt fyrir einkenni sem bentu til blóðtappa í fæti
Kristín Clausen
kristin@dv.is
Dayana Alves Sættir sig við niðurstöðuna. MynD
DV ehF / SiGtryGGur Ari
Ana og Dayana á flugvellinum Átti orðið erfitt um gang eftir fyrsta flugið.
UM
BR
OT
SM
AÐ
UR
DV leitar að umbrotsmanni í 100% starf. Starfið felst í umbroti á DV
auk annara blaða Vefpressunnar ásamt auglýsingagerð fyrir prent og
vefi fyrirtækisins. Hún/Hann þarf að geta hafið störf 1. ágúst nk.
ATVINNA
UMSÓKNIR BERIST Á UMBROT@DV.IS