Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2017, Side 37

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2017, Side 37
Lady GaGa Söngkonan er með tilvitnun á þýsku úr Letters to a Young Poet eftir Rainer Maria Rilke, á upp- handleggnum, auk dagsetningarinnar 12/18/1974, sem er fæðingardagur frænku hennar sem lést áður en Gaga fæddist, en sem Gaga segist hafa sterka tengingu við. KendaLL Jenner Jenner fékk sér líklega minnsta mögulega flúrið, einn hvítan punkt. Flúrarinn JonBoy segir: „Það eru litlu hlutirnir sem skipta hana máli. Og hún valdi hvíta litinn svo það væri ekki áberandi við fyrirsætustörfin og svoleiðis.“ KyLie Jenner Sú yngsta í Kardashian-klaninu fékk sér flúrið sanity á mjöðmina, líklega veitir ekki af góðri geð- heilsu í fjölskyldu hennar. anGeLina JoLie Leikkonan er alsett flúri, þetta sýnir hnit fæðingarstaða allra barna henn- ar, og fæðingarstaður fyrrverandi eiginmannsins, Brad Pitt ,er þarna líka. emma Stone Flúr leikkonunnar Emmu Stone sýnir sterka tengingu hennar við móður hennar og bítilinn Paul McCartney. Til að fagna því að móðir hennar var úrskurðuð krabbameinslaus fengu þær sér eins flúr með vísan í uppáhaldslag þeirra, Blackbird eftir Bítlana, flúrið hannaði McCartney sjálfur. Stone skrifaði bréf til hans og bað um mynd af fuglafótum sem hún ætlaði að gera að flúri og hann teiknaði þessa mynd og sendi til baka. SeLena Gomez Nýjasta flúr söngkonunnar er á arabísku og þýðir einfaldlega „elskaðu sjálfa þig fyrst.“ Sam Smith Söngvarinn fékk sér nýlega fjögur flúr sem öll hafa merkingu. Eitt þeirra, sem er á baugfingri vinstri handar, táknar jafnrétti og segir Smith það skýra sig sjálft. „Það sýnir afstöðu mína til hjónabands samkynhneigðra og jafnrétti fyrir okkur öll,“ en söngvarinn er samkynhneigður. Þessi hundur á fleiri vini á Face- book og Instagram en flestir Rambo er sá nýjasti til að fylgjast með á Instagram. Hundurinn, sem er fimm ára gamall, er með yfir 300 þúsund fylgjendur á Facebook-likesíðu sinni og 26 þúsund á Instagram. Eigandinn kom heim með hann þegar Rambo var 11 vikna gamall og hefur hann heillað alla upp úr skónum síðan þá. „Hann er vinalegasti og félagslyndasti hundur sem ég hef kynnst. Hann gjörsamlega elskar börn.“ Rambo elskar líka að vera í sólskini, sem útskýrir sennilega risastórt sólgleraugnasafn hans. Hann er líka alltaf uppáklæddur og smart til fara og kaupa eigendur hans fötin á hann í barnadeild næstu fataverslunar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.