Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2017, Blaðsíða 37
Lady GaGa Söngkonan er með tilvitnun á þýsku úr
Letters to a Young Poet eftir Rainer Maria Rilke, á upp-
handleggnum, auk dagsetningarinnar 12/18/1974, sem
er fæðingardagur frænku hennar sem lést áður en Gaga
fæddist, en sem Gaga segist hafa sterka tengingu við.
KendaLL Jenner Jenner fékk sér líklega minnsta mögulega flúrið,
einn hvítan punkt. Flúrarinn JonBoy segir: „Það eru litlu hlutirnir sem
skipta hana máli. Og hún valdi hvíta litinn svo það væri ekki áberandi
við fyrirsætustörfin og svoleiðis.“
KyLie Jenner Sú yngsta í Kardashian-klaninu fékk sér
flúrið sanity á mjöðmina, líklega veitir ekki af góðri geð-
heilsu í fjölskyldu hennar.
anGeLina JoLie Leikkonan
er alsett flúri, þetta sýnir hnit
fæðingarstaða allra barna henn-
ar, og fæðingarstaður fyrrverandi
eiginmannsins, Brad Pitt ,er
þarna líka.
emma Stone Flúr leikkonunnar Emmu Stone sýnir sterka tengingu hennar við móður hennar og bítilinn Paul
McCartney. Til að fagna því að móðir hennar var úrskurðuð krabbameinslaus fengu þær sér eins flúr með vísan í
uppáhaldslag þeirra, Blackbird eftir Bítlana, flúrið hannaði McCartney sjálfur. Stone skrifaði bréf til hans og bað
um mynd af fuglafótum sem hún ætlaði að gera að flúri og hann teiknaði þessa mynd og sendi til baka.
SeLena Gomez Nýjasta flúr
söngkonunnar er á arabísku og
þýðir einfaldlega „elskaðu sjálfa
þig fyrst.“
Sam Smith Söngvarinn fékk sér nýlega fjögur flúr sem öll hafa
merkingu. Eitt þeirra, sem er á baugfingri vinstri handar, táknar
jafnrétti og segir Smith það skýra sig sjálft. „Það sýnir afstöðu
mína til hjónabands samkynhneigðra og jafnrétti fyrir okkur öll,“
en söngvarinn er samkynhneigður.
Þessi hundur á fleiri vini á Face-
book og Instagram en flestir
Rambo er sá nýjasti til að fylgjast með á Instagram.
Hundurinn, sem er fimm ára gamall, er með yfir 300
þúsund fylgjendur á Facebook-likesíðu sinni og 26
þúsund á Instagram.
Eigandinn kom heim með hann þegar Rambo var 11 vikna gamall og hefur hann heillað
alla upp úr skónum síðan þá. „Hann
er vinalegasti og félagslyndasti
hundur sem ég hef kynnst. Hann
gjörsamlega elskar börn.“
Rambo elskar líka að vera í
sólskini, sem útskýrir sennilega
risastórt sólgleraugnasafn hans.
Hann er líka alltaf uppáklæddur
og smart til fara og kaupa eigendur
hans fötin á hann í barnadeild næstu
fataverslunar.