Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2017, Page 40
Æska landsins fyllti Silfurberg
Rapparinn Post Malone er einn sá heitasti á rappsen-
unni í dag og síðastliðinn miðvikudag, 11. júlí, fyllti hann
Silfurberg í Hörpu. Æska landsins flykktist á tónleikana
til að hlýða á lög hans og íslensku tónlistarmannanna
Auðs og Alexanders Jarls sem sáu um upphitun.
Í febrúar 2015 setti Post Malone lagið White Iverson inn á tón-listarveituna SoundCloud. Tón-
listarmenn á borð við Wiz Khalifa
og Mac Miller fóru að tvíta um
hann og lofa hann í bak og fyrir.
Tónlistarhátíðir, boð um samstarf
frá Kanye West, Jay-Z og 50 Cent,
auk baráttu stóru útgáfurisanna um
hann fylgdi svo í kjölfarið. Í ágúst
sama ár samdi hann við Republic
Records. Fyrsta platan, Stoney, kom
út 9. desember 2016.
Lagið White Iverson er orðinn
risasmellur; en það náði 1. sæti
á Rhythm Radio-listanum og er
þreföld platínumsmáskífa. Því
hefur verið streymt yfir 250 milljón
sinnum á Spotify og er með rúm-
lega 280 milljón áhorf á YouTube
og Vevo.
Post Malone er nýkominn úr
heimstónleikaferðalagi þar sem
hann hitaði upp fyrir vin sinn
Justin Bieber og ferðast nú um
heiminn með heilmikið af glænýju
eigin efni.
Fylgist vel með rappsenunni
Leiklistarneminn og Snapchat-
stjarnan Aron Már Ólafsson eða
Aron Mola eins og hann kallar sig
á Snapchat var hæstánægður með
tónleika Post Malone. „Þetta voru
mjög vel heppnaðir tónleikar,“ segir
Aron. „Ég er mikill aðdáandi Post
Malone, en ég fór að fylgjast með
honum einhvern tíma á síðasta ári.“
Aron fylgist vel með rappsen-
unni, bæði hér heima og erlendis,
enda rótgróinn í henni hér heima
og segir hann að hér heima fylgist
rapparar hver með öðrum og hjálp-
ist að. Aron stundar nú nám í leik-
list og er á öðru ári. Hann er einnig
aðallega í því að taka upp, klippa
og leikstýra tónlistarmyndbönd-
um og það nýjasta er Joey Cypher
sem rappararnir Joey Christ, Hr.
Hnetu smjör, Aron Can og Birnir
gerðu saman, en myndbandið var
tekið upp í verslun Costco í Kaup-
túni. „Post Malone er tiltölulega
nýr tónlistarmaður á rappsenunni
og því er markhópurinn hans
kannski aðeins yngri,“ segir Aron.
En ætla má að meðal aldurinn á
tónleikunum hafi verið 15–18 ára,
en helgast það kannski líka af því
að jafnan er aldurs takmark á slíka
tónleika hér heima vegna áfengis-
sölu. Og líklega eiga margir
þeirra sem eldri eru bara eftir að
uppgötva Post Malone og tónlist
hans.
Post Malone raPPar af list
Vel flúrAður og Vinsæll Post
Malone heilsar tónleikagestum. Mynd
MuMMi Lú
DJ-Að Af snillD Mynd MuMMi Lú
Töff á sViði Post Malone er hress
á sviðinu. Mynd MuMMi Lú
TAkTu í hönDinA á Mér Það er alltaf töff að geta tekið í höndina á frægum tónlist-armanni. Mynd MuMMi Lú