Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2017, Blaðsíða 42
Fyrsti fornbíllinn sem ég gerði upp var Cadillac Eldorado ár-gerð 1968 og ég á hann enn-
þá,“ segir Steini. Sá bíll er einn af
fjórum sem Steini á og sá fimmti er
að bætast í safnið, en Steini er núna
að gera upp AMC Pacer árgerð
1978. Bílarnir eru þó ekki geymdir
á safni, heldur er Steini með þá hér
og þar og keyrir þá alla reglulega.
„Þeir eru allir eins og nýir.“
Steini segir marga fornbíla til á
landinu og úti um allt land, sumir
á söfnum en aðrir sem eru bara
geymdir í bílskúrum eða geymsl-
um, sjaldan keyrðir og í raun
aðeins eigandanum til ánægju.
„Eigandinn í raun bara labbar út í
bílskúr og brosir.“
Félagi í tveimur fornklúbbum
Steini er félagi í bæði Cruiser- og
Cadillac-klúbbnum og einn stofn-
enda þess síðarnefnda, hann er þó
ekki lengur í stjórn og segist ekki
hafa tíma til þess.
„Cadillac-klúbburinn var
stofnaður í tilefni af því að við
keyrðum Route 66 á Cadillac og
þá var sniðugt að vera í ameríska
Cadillac-klúbbnum og fá þjónustu
frá klúbbnum í þessari ferð,“ segir
Steini. Þeir voru fimm félagarnir
sem keyrðu, rithöfundarnir Einar
Kárason og Ólafur Gunnarsson,
Jóhann Páll Valdimarsson, fyrrver-
andi eigandi Forlagsins, og Sveinn
Magnús Sveinsson, kvikmynda-
gerðarmaður. Ferðalagið var gefið
út bæði í bók og kvikmynd. Bókin
Úti að aka: á reykspúandi kadilakk
yfir Ameríku kom út árið 2006.
Samnefnd heimildamynd var svo
sýnd árið 2016.
„Það er fólk á öllum aldri og
af báðum kynjum í klúbbnum og
krakkar hafa mikinn áhuga,“ segir
Steini. „Bílasportið almennt er
mest stundaða hobbí í heimi. Það
er líka geysimikill iðnaður í kring-
um þetta. Heilu verksmiðjurnar
erlendis sem eru að endursmíða
bílana og farið að framleiða mikið
af varahlutum í þá. Í dag getur
þú endurbyggt bíl með nýjum
varahlutum.“
Þegar veður leyfir þá keyrir
Cadillac klúbburinn um á þriðju-
dögum og Cruiser klúbburinn
á fimmtudögum. Á 17. júní og
Menningarnótt keyrir Cadillac-
klúbburinn niður Laugaveg og bíl-
unum er svo stillt upp við Hörpu,
fyrir áhugasama til að skoða.
„Síðan eru hinar ýmsu uppákom-
ur í báðum klúbbum, svona eftir
tilefni og áhuga.“
En af hverju að gera upp
fornbíla og hvenær telst bíll vera
fornbíll?
„Fornbílar eru svo falleg
stykki, ég sé þá bara sem
skúlptúra,“ segir Steini, en bíll þarf
að vera 25 ára til að teljast forn-
bíll. Steini sjálfur er orðinn 71 árs
og hefur gert upp fimm fornbíla.
Hann segist gera fornbíla upp af
því að það sé svo gaman, hann
ætlar hins vegar ekki að gera upp
þann sjötta. „Í þessu hobbíi þýðir
ekkert að horfa í peninga, frekar
en í mörgum öðrum hobbíum,
það er ekkert að hafa upp úr þessu
peningalega.“
Aðalsteinn Ásgeirsson, eða Steini í Svissinum eins og
hann er oftast nefndur, er einn helsti áhugamaður um
fornbíla á landinu. Hann gerir upp fornbíla, er meðlim-
ur í bæði Cadillac- og Cruiser-klúbbnum, auk þess að
vera einn stofnenda fyrrnefnda klúbbsins og hefur keyrt
Route 66 á Cadillac.
„Fornbílar eru eins
og skúlptúrar“
Steini í Svissinum er
áhugamaður um fornbíla
Fyrsti bíllinn Steini er
einn helsti áhugamaður um
fornbíla á landinu. Hér er hann
með fyrsta fornbílinn sinn, en
Elvis Presley ók um á eins bíl.
Hinir
og þessir
Fallegu Forn-
bílar sem eru
í eigu ýmissa að-
ila víðsvegar
um landið
svartur og
stílhreinn
Cadillac
Eldorado.
tveir Ford Ford Mustang, sá vinsælasti, og Ford
Excel, sem mikið var lagt í, en floppaði í sölu.
sjöundi
áratugurinn
Volvo Amazon var
sá flottasti á árunum
1960–1970.
rauður og rennilegur
Chevrolet Impala, árgerð 1962.
borgaralegur bíll Benz, árgerð 1936, var fyrsti
fjöldaframleiddi Bensinn fyrir hinn almenna borgara.
sá stærsti Cadillac, árgerð
1962. Þeir verða varla stærri, bíllinn er 12 fermetrar, 6x2 metrar, sem er eins og meðal barnaherbergi.
Framtíðarbílinn Citroen, árgerð 197
3, þótti
framtíðarbíll að öllu leyti þegar hann kom
á markað
á sínum tíma. Þegar Richard Nixon, forseti
Bandaríkj-
anna, og Georges Pompidou, forseti Frakk
lands, komu
í hemsókn til Íslands keyrðu þeir um á svon
a bíl.