Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2017, Síða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2017, Síða 44
2015 Dánardómstjóri staðfesti að B.B. King hefði látist af nátt- úrulegum orsökum tengdum Alzheimersjúkdómi sem hann þjáðist af, en ekki myrtur. Tvær dætra hans höfðu sakað aðstoðarmenn Kings um að hafa átt sök á dauða hans. Hvað gerðist 14. júlí? Eftirminnilegir viðburðir í tónlistarsögunni Fjölmargir viðburðir gerast í tónlistarsögunni alla daga, sumt þó eftirminnilegra en annað. Hér eru nokkrir viðburðir í erlendri tónlistarsögu þann 14. júlí. 1945 Jim Cordon, einn eftirsóttasti trommari síns tíma, fæddist 14. júlí í Bandaríkjunum. Cordon samdi Layla með Eric Clapton og vann með tónlistarmönnum á borð við The Everly Brothers, George Harri- son, John Lennon, The Carpenters, Frank Zappa og fleiri. Cordon, sem greindur var með geðklofa, hlaut 16 ára fangelsisdóm 1984 eftir að hafa myrt móður sína með því að slá hana ítrekað með hamri í höfuðið þann 3. júní 1983. 1967 David Bowie gaf út lagið Love You Till Tuesday, sem komst ekki inn á vinsældalista. Samnefnd kvikmynd Bowies var síðan sýnd 1969. 1979 Donna Summer náði þriðja laginu í 1. sæti breska listans með smellinum Bad Girls af samnefndri plötu, sem hóf jafnframt fimm vikna setu í 1. sæti plötulistans. Summer fékk innblástur að laginu eftir að aðstoðarkona hennar sagði að lögreglumaður hefði haft afskipti af henni þar sem hann taldi hana vera vændiskonu. 1982 Kvikmynd Pink Floyd, The Wall, var frumsýnd í The Empire á Leicester-torgi í London. Myndin tók inn 22 milljónir dollara á fyrsta árinu og vann til tvennra breskra verðlauna. 1986 Madonna var á toppi breska listans með Papa Don't Preach. Plata hennar True Blue sat einnig í fyrsta sæti plötulistans. 2009 Aðdáendur Michaels Jackson söfnuðust sa man í O2-tónleikahöllinni í London, þar sem söngvarinn ætlaði að hefja fyrstu tónleika sína af alls 50. Mínútuþögn var ha ldin kl. 18.30 að staðartíma, á þeim tíma s em aðdáendum hefði verið hleypt inn í höllina. Mynd danny Martindale

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.