Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2017, Síða 64
40 menning Helgarblað 14. júlí 2017
Metsölulisti
Eymundsson
5. – 12. júlí 2017
Allar bækur
1 NorninCamilla Läckberg
2 Með lífið að veðiYeonmi Park
3 Independent People Halldór Laxness
4 Drekkingarhylur Paula Hawkins
5 Sagas of the Icelanders
Ýmsir höfundar
6 Iceland in a BagHalldór Laxness
7 Litla bakaríið við Strandgötu
Jenny Colgan
8 Ítalskir skór Henning Mankell
9 Gestir utan úr geimnum
Ævar Þór Benediktsson
10 Njals saga
Handbækur / Fræði-
bækur / Ævisögur
1 Með lífið að veðiYeonmi Park
2 Stofuhiti Bergur Ebbi Benediktsson
3 TeppaprjónÞuríður Magnúsdóttir/
Guðrún S. Magnúsdóttir
4 VegahandbókinSteindór Steindórsson
Ýmsir höfundar
5 Ég er drusla Druslugangan/Ýmsir
6 171 Ísland Áfanga-staðir í alfaraleið
Páll Ásgeir Ásgeirsson
7 Kortabók 2016-2017
8 Ferðakortabók 2016
9 Sterkari í seinni hálfleik
Árelía Eydís Guðmundsdóttir
10 Volcano SudokuÝmsir höfundar
M
aðurinn mun líklega
alltaf segja sögur í ein-
hverri mynd en það er
ekki sjálfgefið að í fram-
tíðinni verði til sagnaskáldskapur
á bókum sem fólk getur speglað líf
sitt í. Bóklestur fer minnkandi og
það vaxa úr grasi kynslóðir af fólki
sem að meirihluta les ekki bækur
sér til ánægju. Útbreiddasta form
skáldsögunnar í dag er spennu-
sagan og margt er afar vel gert á
því sviði, en það sagnaform sem
helst hefur átt undir högg að sækja
á síðustu áratugum er smásagan.
Ég veit ekki hvort það er tilvilj-
un eða merki um nýja hneigð en
töluvert hefur komið út af íslensk-
um smásagnasöfnum undanfar-
in misseri. Steinar Bragi sendi frá
sér stórt og flott smásagnasafn í
fyrra, Andri Snær Magnason gaf
sömuleiðis út smásagnasafn sem
ég hef ekki lesið en hefur mælst
mjög vel fyrir og smásagnasafn
eftir Friðgeir Einarsson fékk prýði-
legar og verðskuldaðar viðtök-
ur. Enn fremur gáfu stórskáldin
Þórarinn Eldjárn og Gyrðir Elí-
asson út smásagnasöfn.
Ný bók eftir óþekktan höfund,
Björn Halldórsson, Smáglæpir,
sem var að koma út hjá Sæmundi,
forlagi Bjarna Harðarsonar á Sel-
fossi, sómir sér vel í þessari óvæntu
flóru nýlegra smásagnasafna. Um
er að ræða sjö sögur sem gerast í
úthverfum höfuðborgarsvæðisins
í nútímanum. Þetta eru raunsæ-
isverk í mjög hefðbundnu smá-
sagnaformi, meitluð og bein-
skeytt. Ljóst er að höfundur er vel
að sér um smásagnagerð en auk
þess bera sögurnar vitni um að
höfundi liggi mikið á hjarta því
undir fáguðu og hófstilltu yfir-
borðinu ólgar sársauki og ástríða;
því til viðbótar hefur hann umtals-
verða stílhæfileika.
Án þess að hér verði nokk-
uð fullyrt um áhrif frá einstökum
höfundum á Björn Halldórsson
þá vekja þessar sögur upp minn-
ingar um verk bandaríska höf-
undarins Raymond Carver sem
lést fyrir aldur fram árið 1988 en
átti stutt og ódauðlegt blómaskeið
sem smásagnahöfundur frá miðj-
um áttunda áratugnum fram til
dauðadags. Í stað hversdagslegra
andhetja Carvers úr smábæjum
og borgarhverfum verkalýðsstétt-
arinnar í Bandaríkjunum hittum
við hér fyrir Íslendinga nútím-
ans í úthverfum Reykjavíkur og
nágrannabæjum, en frá-
sagnartæknin, efnisvalið
og stíllinn hljóma stund-
um saman – að minnsta
kosti fyrir augum þessa
lesanda sem Carver hefur
lengi verið minnisstæður.
Þannig kallast fyrsta sagan
í bók Halldórs, Barnalæti,
skemmtilega á við sögu eft-
ir Carver sem heitir Nobody
Said Anything, þó að margt
sé ólíkt í sögunum. Við-
fangsefni beggja er fjar-
lægðin á milli annars vegar
veraldar barna og unglinga
og hins vegar amsturs for-
eldra þeirra; og í báðum
sögum lýstur þessum heim-
um saman.
Sagan Ef þið hefðuð hr-
ingt (skemmtilega Carver-
legur titill) er leiftrandi snjöll
og kennslubókardæmi um
vel heppnaða frásagnar-
tækni í smásögu, hugsanlega best
stílaða saga bókarinnar. Sagan
sem er bráðfyndin segir frá heim-
sókn fullorðinna barnabarna til
aldraðs ekkils sem er önugur og
lokaður. Á örfáum blaðsíðum eru
persónur dregnar skýrum drátt-
um með hlutlausum lýsingum og
samtölum. Þess má geta að fín-
an húmor er víða að finna í þess-
um sögum þó að umrædd saga sé
fyndnust.
Fjölskyldan og erfið samskipti
innan hennar eru eitt helsta við-
fangsefni bókarinnar. Titillinn
Smáglæpir er áhugaverður og á
bókarkápu segir að í sögunum
séu skoðaðar ákvarðanir sem ekki
verða aftur teknar og eftirsjá sem
varir út ævina: „Þetta eru smá-
glæpirnir: tilfinningasárin sem
við völdum, tækifærin til að breyta
rétt sem við misstum af, orðin
sem við létum ósögð.“ Þetta er
ágæt lýsing á efni sagnanna en við
þetta má bæta að í tveimur sögum
kunna að hafa verið framdir stór-
glæpir. Glæpamenn eru líka ekki
furðuverur heldur venjulegt fólk
sem á fjölskyldur.
Það eru þekktar dyggðir smá-
sagnahöfundarins að segja mikið í
fáum orðum, temja sér hlutlausan
frásagnarstíl, draga upp lifandi
sviðsmyndir í stað þess að segja
frá, setja þröngan efnisramma og
hafa fáar persónur. Þegar til lengd-
ar lætur verða allir höfundar hins
vegar að brjóta þessar reglur til að
forðast einhæfni og endurtaka sig.
Lokasaga bókarinnar, Að lemja
konur, er flóknust sagnanna þó að
hún sé af venjulegri lengd. Sagan
virðist vera tilraun til að sýna mót-
un ofbeldismanns út frá atviki á
skólalóðinni í æsku og við sögu
koma ýmis önnur samskipti og
aukapersónur. Þetta virkaði ekki
sannfærandi á mig og tilraun höf-
undar til að fara gegn venjunni og
segja margt í mörgum orðum og
mörgum atvikalýsingum fer út um
þúfur. Er þetta lokaverk slakasta
saga bókarinnar.
En eftir standa sex vel heppn-
aðar sögur þar sem stundum
bregður fyrir meistaratöktum. Það
er ánægjulegt að sjá íslensk út-
hverfi nútímans lifna við í klass-
ísku smásagnaformi og það er hik-
laust mikill fengur að þessari bók
Björns Halldórssonar. n
Ágúst Borgþór Sverrisson
agustb@dv.is
Bækur
Smáglæpir
Höfundur: Björn Halldórsson
Útgefandi: Sæmundur
142 bls.
Meitlaðar, fyndnar og
sársaukafullar sögur„Sögurnar bera
vitni um að höf-
undi liggi mikið á hjarta
því undir fáguðu og hóf-
stilltu yfirborðinu ólgar
sársauki og ástríða.
Björn Halldórsson Íslensk
úthverfi nútímans lifna við í
fyrstu bók Björns, smá-
sagnasafninu Smáglæpir.