Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2017, Side 70

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2017, Side 70
46 fólk Helgarblað 14. júlí 2017 Mark Zuckerberg Stofnandi Facebook og eiginkona hans lýstu því yfir eftir fæðingu dóttur sinnar að þau myndu gefa 99 prósent af auðæfum sínum til góðgerðarmála. Elton John Elton John á tvo syni og segist vilja skapa þeim fjárhagslegt öryggi. Um leið segir hann skelfilegt að alast upp með silfurskeið í munninum. Það eyðileggi líf viðkomandi. Hann segist vilja ala syni sína upp þannig að þeir beri virðingu fyrir vinnu og eðlilegu lífi. Sting Tónlistarmaðurinn Sting, sem hefur látið miklar fjárhæðir renna til góðgerðarmála, segist hafa sagt börnum sínum að þau skuli ekki búast við miklum arfi. Hann segist vitaskuld myndu aðstoða börn sín væru þau í fjárhagsvandræðum en til þess hefði þó ekki komið því börn- in sæju fyrir sér sjálf og hefðu sterka siðferðisvitund. Vilja ekki ofdekra börnin Þ au eiga það sameigin legt að vita ekki aura sinna tal en vilja ekki ofdekra börn sín. Um leið er þetta fólk sem styrkir alls kyns góð málefni. Flest- ir ætla að láta stóran hluta auðs síns renna til góðgerðarmála eftir sinn dag. Engin ástæða er þó til að ætla að börnin verði sett úti á guð og gaddinn þótt þau fái ekki allan peninginn. n Bill og Melinda Gates Bill Gates hefur sagt að hann telji sig ekki gera börnum sínum greiða með því að erfa þau að miklum auð. Hann og eiginkona hans ætla að láta megnið af auði sínum renna til góðgerðarmála. Simon Cowell Cowell er risi í tónlistarheiminum og er vellauðugur. Hann hefur sagt að hann hafi enga trú á því að það sé til góðs að auður gangi í erfðir. Hann segist ætla að láta auð sinn renna til góðgerðarmála að sér látnum. Um leið er líklegt að hann sjái til þess að elskaður sonur hans Eric þurfi ekki að svelta. Nigella Lawson Sjónvarpskokkurinn vinsæli segir að þegar börn hennar hafi lokið skólagöngu muni þau þurfa að sjá fyrir sér sjálf. „Það eyðileggur fólk að þurfa ekki að vinna fyrir sér,“ segir hún en þvertekur um leið fyrir að ætla að gera börnin arflaus. Warren Buffett Auðjöfurinn hefur oft sagst hafa engan áhuga á því að erfa fjölskyldumeðlimi að auði sínum, en hann á þrjú börn. Hann segir rangt að byggja upp fjölskylduveldi auðmanna meðan stór hluti jarðarbúa svelti. Hann hefur heitið því að láta 99 prósent af auði sínum renna til góðgerðarmála og hefur hvatt aðra auðmenn til að gera það sama. Jackie Chan Leikarinn segist ætla að láta auð sinn renna til góðgerðarsamtaka og sonurinn fái ekkert. „Hann getur sjálfur unnið fyrir sínum peningum,“ sagði Chan í viðtali.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.