Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2017, Blaðsíða 70
46 fólk Helgarblað 14. júlí 2017
Mark Zuckerberg
Stofnandi Facebook og eiginkona hans lýstu því yfir eftir fæðingu dóttur sinnar að þau
myndu gefa 99 prósent af auðæfum sínum til góðgerðarmála.
Elton John
Elton John á tvo syni og segist vilja skapa þeim
fjárhagslegt öryggi. Um leið segir hann skelfilegt
að alast upp með silfurskeið í munninum. Það
eyðileggi líf viðkomandi. Hann segist vilja ala
syni sína upp þannig að þeir beri virðingu fyrir
vinnu og eðlilegu lífi.
Sting
Tónlistarmaðurinn Sting, sem
hefur látið miklar fjárhæðir renna
til góðgerðarmála, segist hafa
sagt börnum sínum að þau skuli ekki
búast við miklum arfi. Hann segist
vitaskuld myndu aðstoða börn sín
væru þau í fjárhagsvandræðum en til
þess hefði þó ekki komið því börn-
in sæju fyrir sér sjálf og hefðu
sterka siðferðisvitund.
Vilja ekki ofdekra börnin
Þ
au eiga það sameigin legt að
vita ekki aura sinna tal en
vilja ekki ofdekra börn sín.
Um leið er þetta fólk sem
styrkir alls kyns góð málefni. Flest-
ir ætla að láta stóran hluta auðs
síns renna til góðgerðarmála eftir
sinn dag. Engin ástæða er þó til að
ætla að börnin verði sett úti á guð
og gaddinn þótt þau fái ekki allan
peninginn. n
Bill og Melinda Gates
Bill Gates hefur sagt að hann telji sig ekki gera börnum sínum greiða með því að erfa
þau að miklum auð. Hann og eiginkona hans ætla að láta megnið af auði sínum renna til
góðgerðarmála.
Simon Cowell
Cowell er risi í tónlistarheiminum og er vellauðugur. Hann hefur sagt að hann hafi enga trú á því að það sé til
góðs að auður gangi í erfðir. Hann segist ætla að láta auð sinn renna til góðgerðarmála að sér látnum. Um leið er
líklegt að hann sjái til þess að elskaður sonur hans Eric þurfi ekki að svelta.
Nigella Lawson
Sjónvarpskokkurinn vinsæli segir að þegar börn hennar hafi lokið skólagöngu muni
þau þurfa að sjá fyrir sér sjálf. „Það eyðileggur fólk að þurfa ekki að vinna fyrir sér,“
segir hún en þvertekur um leið fyrir að ætla að gera börnin arflaus.
Warren Buffett
Auðjöfurinn hefur oft sagst hafa engan áhuga á því að erfa fjölskyldumeðlimi að
auði sínum, en hann á þrjú börn. Hann segir rangt að byggja upp fjölskylduveldi
auðmanna meðan stór hluti jarðarbúa svelti. Hann hefur heitið því að láta 99
prósent af auði sínum renna til góðgerðarmála og hefur hvatt aðra auðmenn til að
gera það sama.
Jackie Chan
Leikarinn segist ætla að láta auð sinn renna til góðgerðarsamtaka og sonurinn fái
ekkert. „Hann getur sjálfur unnið fyrir sínum peningum,“ sagði Chan í viðtali.