Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2017, Blaðsíða 72
Helgarblað 14. júlí 2017
44. tölublað 107. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
PALLALEIKUR
BYKO
Vertu með!
1. ÞÚ KAUPIR GAGNVARIÐ PALLAEFNI FYRIR 50.000 KR.
EÐA MEIRA Á TÍMABILINU 1. MAÍ - 17. ÁGÚST 2017.
2. ÞÚ SKRÁIR NÓTUNÚMER OG AÐRAR NAUÐSYNLEGAR
UPPLÝSINGAR Á www.byko.is/pallaleikur
3. ÞÚ ERT KOMINN Í POTTINN OG GÆTIR UNNIÐ
VEGLEGA VINNINGA!
Vinningshafar eru kynntir
á Facebooksíðu BYKO
á hverjum föstudegi frá 14. júlí.
FJÖLDI FRÁBÆRRA VINNINGA
REIKNAÐU ÚT
EFNISKOSTNAÐ
Á BYKO.IS
NÚ ER TÍMINN!
ÞÚ FÆRÐ ALLT
EFNIÐ Í PALLINN
OG SKJÓLVEGGINN
HJÁ OKKUR 0058324 27x95 mm. 2.040 kr./m2 204 kr./lm*
0058325 27x120 mm. 1.864 kr./m2 233 kr./lm*
0058326 27x145 mm. 2.070 kr./m2 309 kr./lm*
0058252 22x45 mm. 89kr./lm
0059253 22x70 mm. 148kr./lm
0058254 22x95 mm. 176kr./lm*
0058255 22x120 mm. 235kr./lm
0058502 45x45 mm. 173kr./lm*
0058504 45x95 mm. 280kr./lm*
0058506 45x145 mm. 461kr./lm*
0059954 95x95 mm. 679kr./lm*
GAGNVARIN FURA
PALLURINN
SKJÓLVEGGURINN
GRIND OG UNDIRSTAÐA
timbur@byko.is
Fáðu verð
í pallinn
hjá okkur!
*4,5 m og styttra.
55 ára1962-2017
Villi fallinn?
Íslenska sumarið
er ekki á Twitter
n Svo virðist sem Íslendingar
séu margir farnir að örvænta
um að sumarið láti sjá sig í ár. Á
Twitter krefst Baggalúturinn og
sjónvarpsmaðurinn Bragi Valdi-
mar þess að júlímánuður segi af
sér. Þá birtir Svanhildur Hólm,
aðstoðarmaður Bjarna Bene-
diktssonar forsætisráðherra,
mynd af hundblautum sólbekk.
Hún kallar verkið íslenska sum-
arið í hnotskurn: Pollur á sól-
bekk. Sú eina sem virðist hafa
fundið sumarið, á Twitter að
minnsta kosti, er fjölmiðlakon-
an Fanney Birna Jónsdóttir.
Hún sendir fylgjendum sínum á
Twitter sumarkveðju frá Þýska-
landi. Þar segir hún að sumar-
ið sé ein löng hamingjuælupest
áður en hún blessar það. Sem
sagt, það er
erfitt að finna
íslenska
sumarið á
Twitter þessa
dagana.
Sveitabrúðkaup
ársins
n Kristín Tómasdóttir rithöf-
undur og Guðlaugur Aðalsteins-
son, auglýsingamógull í Brand-
enburg, gengu í það heilaga á
dögunum og héldu glæsilegt
sveitabrúðkaup í Borgarfirði.
Fjölmenni samfagnaði þeim
og fór veislustjórinn Kristín Þóra
Haraldsdóttir á kostum. Tjald-
stæðameistari var engin önnur
en Björt Ólafsdótt-
ir umhverfisráð-
herra, en veislu-
höldin
stóðu frá
föstu-
degi til
sunnudags.
Eiríkur lærði Despacito
É
g hef enga hugmynd um hvað
ég er að syngja.“ Þetta seg-
ir trúbadorinn Eiríkur Hafdal
sem lærði nýverið að syngja
lagið Despacito. Lagið, í flutningi
Luis Fonsi og Justins Bieber, er það
allra vinsælasta í heiminum um
þessar mundir. Ísland er þar engin
undantekning, en Despacito hef-
ur trónað á toppi vinsældalista ís-
lensku útvarpsstöðvanna sem og
Iceland top 50 á Spotify undan-
farnar vikur. Fáir geta þó státað sig
af því að geta sungið lagið, sem er
að megninu til á spænsku. „Í byrj-
un júní áttaði ég mig á því að ég
þyrfti að læra Despacito ef ég ætl-
aði að þrauka sumarið. Allir voru
og eru enn að biðja um þetta,“ seg-
ir Eiríkur. Eftir að hafa hlusta á lag-
ið í heila viku á „repeat“ var hann
búinn að læra viðlagið og fyrstu sex
línurnar í laginu utan að. „Þetta er
allt að koma,“ segir Eiríkur sem
leggur mikið upp úr því að læra öll
þau óskalög sem hann er beðinn
um þegar hann er að spila. „Það er
gaman að taka óhefðbundin lög.“
Inntur svara um hvaða lag hon-
um þyki leiðinlegast að spila svar-
ar hann hratt og örugglega: „Það
er Wonderwall með Oasis. Ég fæ
grænar bólur þegar ég svo mikið
sem hugsa um það.“
Í góðum gír Eiríki finnst gaman að
taka óhefðbundin lög.
Leikarinn sá
greindasti
n Alþingismaðurinn Vilhjálm-
ur Bjarnason birti á dögum
niðurstöður greindarprófs á
Facebook-síðu sinni. Státaði há-
skólamaðurinn fyrrverandi af
146 stigum á mælikvarða forrits-
ins og var eflaust hreykinn af.
Hinn kappsami samherji hans
í ríkisstjórninni, Benedikt Jó-
hannesson fjármálaráðherra
upplýsti þá Vilhjálm um að
hann hefði tekið sama próf og
fengið 164 stig. „Þetta er léttasta
próf sem ég hef tekið,“ sagði
Benedikt við það tilefni. Sjálfs-
mynd stjórnmálamannanna
brotlenti án efa þegar leikar-
inn Damon Younger, sem sló í
gegn í myndinni
Svartur á leik,
birti niðurstöðu
sína úr próf-
inu. „Æ,æ ...,“
sagði Damon
og lét fylgja
með mynd af
tölunni
166.