Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2017, Page 47
Þjóðhátíð 7Helgarblað 4. ágúst 2017 KYNNINGARBLAÐ
Einsi Kaldi: HáKlassavEitingastaður á Hjara vEraldar
Í vestmannaeyjum er að finna einn af bestu veitingastöðum lands-
ins þar sem góður matur,
ferskt hráefni, staðbundin
matargerð og fagmannlegt
handbragð koma saman
og skapa einstaka upplifun
fyrir alla þá sem þar snæða.
veitingastaðurinn Einsi Kaldi
er hugarfóstur matreiðslu-
meistarans Einars Björns
árnasonar. staðinn opnaði
hann árið 2012. „Ég ólst upp
í vestmannaeyjum í faginu,
fór svo og lærði hjá grími
grímssyni og sigga Hall í
reykjavík, en mér fannst ekki
annað hægt en að snúa aftur
til Eyja,“ segir Einar Björn
árnason, matreiðslumeistari
og eyjapeyi með meiru.
Háklassa veitingastaður á
hjara veraldar
Einsi Kaldi er háklassa
veitingastaður þar sem
leitast er við að nota allt það
ferskasta sem finnst í ná-
grenni og við strendur vest-
mannaeyja. „Þar kemst ég í
einstaklega ferskt og stað-
bundið hráefni, s.s.
bjarg- og sjófugl
ásamt ýmiss konar
kryddjurtum sem
tíndar eru hér á
eyjunni,“ segir Ein-
ar. Í eldamennsk-
unni segist hann
hafa mest gaman
af að töfra fram
ljúffenga sjávar-
rétti og fyrir það er
líka hann rómaður.
„Þessi áhugi
ætti kannski ekki
að koma á óvart,
þar sem nálægð-
in við fengsæl
fiskimið gera
mér kleift að
fá spriklandi
ferskan fisk
daglega. Það
hefur gengið
alveg ótrúlega
vel hjá okkur og
það má nefna
að við vorum í
efsta sæti yfir
veitingastaði á
suðurlandi á trip
advisor í þrjú ár
og höfum alltaf
haldið okkur við toppinn,“
segir Einar.
Gott mataræði
gerir gæfumuninn
„Ég var með karlalandsliðinu
úti í Frakklandi á EM í
fyrra og eldaði ofan í
strákana góðan, fersk-
an og næringarmikinn
mat. gott mataræði
skiptir íþróttamenn
auðvitað gífurlega
miklu máli og strák-
arnir stóðu sig líka
alveg frábærlega á
þessu móti. Ég segi
ekki meira …“ segir
Einsi og hlær.
Þjóðhátíðarstemning og
bístrómatargerð
að sögn Einsa er alltaf
gífurlega mikið að gera á
veitingastaðnum á Þjóðhátíð.
„Það var geggjuð landsliðs-
stemning í fyrra þegar karla-
landsliðið tók þátt í EM í fót-
bolta. Þá voru allir þjónarnir í
landsliðstreyjum og staðurinn
var skreyttur í þeim anda.
Heimir landsliðsþjálfari var þá
á barnum og stemningin var
ótrúleg. núna í ár verður pjúra
Þjóðhátíðarstemning með öllu
sem því fylgir. Þetta verður al-
veg ótrúlega skemmtilegt og
við hlökkum öll til. svo skiptum
við starfsfólkið vöktunum á
milli okkar svo við getum öll
kíkt í dalinn. Enda erum við
nær öll með tölu frá Eyjum,“
segir Einar.
Yfir þessa miklu ferða-
helgi hefur Einar brugðið á
það ráð að breyta veitinga-
staðnum í notalegan bístró
með ekta bístróstemningu
og einföldum en góðum mat.
„við slökum auðvitað ekk-
ert á gæðunum og töfrum
fram svakalega flotta ham-
borgara, þjóðhátíðarlokur,
kjúklingasúpu, humarsúpu,
íslenskar kjúklingapönnukök-
ur, þorskhnakka, nautalundir
og fleira í þeim dúr. En þetta
gerum við til þess að þjón-
ustan gangi betur fyrir sig
og einnig til þess að lækka
verðið. á sunnudeginum í
fyrra vorum við til dæmis
með um 600 manns í mat.
Þetta hefur gefist alveg ótrú-
lega vel síðustu ár og það
er alltaf gaman hjá okkur á
Þjóðhátíð,“ segir Einar.
veitingastaðurinn Einsi
Kaldi er staðsettur að
vestmannabraut 28, vest-
mannaeyjum. Opnunartími
er frá 11.00–22.00 alla daga.
nánari upplýsingar má nálg-
ast á vefsíðu Einsa Kalda;
einsikaldi.is, Facebook-síð-
unni og á trip advisor.
Kokkur Eyjafólksins
gunni og Einsi
girnilegir hamborgarar
Einsi á EM
Hafið og
fjaran
Þorskhnakki
alltaf það
ferskasta!