Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2017, Side 2
2 Helgarblað 11. ágúst 2017fréttir
Spurning vikunnar
„Ég held ekki. Ég held að það sé gott framundan.“
Haraldur Sigurðsson
„Nei, alls ekki.“
Teitur Lárusson
„Nei.“
Þórdís Hannesdóttir
„Ég vil ekki fíflast með sumarið.“
Jón Örn Arnarsson
Er sumarið búið?
E
ins og áður hefur verið
greint frá í fjölmiðlum þá
fékk Thomas Möller Olsen,
sem er gefið að sök að hafa
myrt Birnu Brjánsdóttur, Face-
book-skilaboð frá íslenskum
blaðamanni á meðan Birna var
ófundin og rannsókn lögreglu
var á viðkvæmu stigi. Var haft eft-
ir Grími Grímssyni, sem stýrði
rannsókn málsins á sínum tíma,
að sú tilraun blaðamannsins að
leita upplýsinga í málinu beint
frá hinum grunaða hafi verið
ámælisverð, hún hefði mögulega
getað spillt rannsókn málsins og
valdið sakarspjöllum. Í skýrslu-
tökum fyrir héraðsdómi í síðasta
mánuði kom meðal annars fram
af hálfu skipverja Polar Nanoq,
þar sem Thomas var staddur
þegar skilaboðin bárust, að
hegðan hans um borð hafi breyst
strax eftir að hann fékk skilaboð-
in. Hann hafi orðið órólegur og
taugaóstyrkur, misst alla matar-
lyst og engu svarað spurning-
um skipverjanna. Í kjölfarið hafi
hann fengið róandi lyf hjá skip-
stjóranum.
Í samtali við DV þann 19. júlí
sl. upplýsti Kolbrún Benedikts-
dóttir varahéraðssaksóknari að
blaðamaðurinn sem sendi um-
rædd skilaboð yrði leiddur fyrir
dóminn sem vitni í málinu.
Samkvæmt heimildum DV ligg-
ur hins vegar fyrir að ekki mun
verða af því. Jafnframt hefur DV
fengið staðfest frá Grími Gríms-
syni að lögreglan muni ekki held-
ur aðhafast frekar vegna þessarar
umdeildu skeytasendingar
blaðamannsins, hann verði ekki
kallaður til skýrslutöku fyrir lög-
reglu og málið ekki rannsakað
frekar. Virðist því vera sem ekki
muni verða neinir eftirmálar
vegna þessa hluta málsins. Um-
ræddur blaðamaður starfar ekki
lengur í fjölmiðlum. n
sigurvin@dv.is
Þ
etta voru mannleg
mistök,“ segir Arna Sif
Þorgeirsdóttir hjá Við-
burðarstofu Norðurlands
en ruglingur varð til þess að sig-
urvegarinn í leiknum #rauttAk
í bæjarhátíðinni Ein með öllu
á Akureyri hlaut ekki auglýstan
vinning – grill frá Byko og inn-
leggsnótu frá Nettó.
Reglur á reiki
Eitthvað voru reglur leiksins á
reiki en á vefsíðu hátíðarinn-
ar voru bæjarbúar hvattir til að
skreyta hús sín með rauðum lit-
um og senda inn myndir. Það hús
sem fengi flest „læk“ á síðunni
skyldi hljóta vinninginn en dóm-
nefnd myndi velja best skreyttu
götuna. Á sunnudaginn var ljóst
að hús í Hraunholti hafði hlotið
flestu „lækin“ en á sparitónleik-
unum um kvöldið, þar sem úrslit
voru tilkynnt, var hús í Einholti
kunngert sem sigurvegari.
Vættagil best skreytta gatan
Arna Sif segir mistökin liggja í
því að þar sem allt Hraunholtið
hafi verið vel skreytt hafi húsið
sem fékk flestu „lækin“ fallið inn
í götuna. Það hafi hins vegar ver-
ið Vættagil sem hlotið hafi verð-
laun sem best skreytta gatan.
„Eigandi hússins sem fékk verð-
launin er á engan hátt tengdur
einhverjum í dómnefnd. Það er
ekkert slíkt í gangi, þetta var bara
klúður sem mun ekki koma fyr-
ir aftur. Við höfum haft samband
við raunverulegan sigurvegara
sem fær gjafabréf í sárabætur.
Ein með öllu gekk mjög vel að
þessu sinni og það er afar leiðin-
legt að þetta mál skuli setja blett
á þessa skemmtilegu hátíð. Þetta
var hins vegar óvart og eru hlut-
aðeigandi beðnir afsökunar.“
Leiðinleg mistök
Davíð Rúnar Gunnarsson, hjá
Viðburðarstofu Norðurlands og
framkvæmdastjóri hátíðarinnar,
sagðist hafa heyrt lítillega af mál-
inu þegar blaðamaður náði tali
af honum. Hann gat ekki útskýrt
hvað hefði gerst en sagði leiðin-
legt ef mistök hefðu orðið. n
Blaðamaður sleppur við að
mæta fyrir dóm
Engir eftirmálar af beinum samskiptum við hinn grunaða í Birnu-málinu
Ruglingur í
verðlauna-
afhendingu
Sigurvegari í leiknum #rauttAk á bæjarhátíðinni Ein með öllu hlaut ekki aðalvinninginn„Þetta var
bara klúður
sem mun ekki
koma fyrir aftur
Velheppnuð bæjarhátíð
Þrátt fyrir rugling í verð-
launaafhendingu í leiknum
#rauttAk gekk hátíðin vel.