Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2017, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2017, Síða 26
2 Brot af því besta KYNNINGARBLAÐ Helgarblað 11. ágúst 2017 Kastalinn er án efa ein skemmtilegasta hönnunarbúð landsins með ógrynnin öll af íslenskri hönnun. Þegar Kastalinn varð eins árs í fyrra og hóf eigandinn, María Marko, að flytja inn vel valdar erlendar hönnunarvörur sem gleðja bæði augu og huga. „Versl- unin er L-laga og annar anginn er alveg íslenskur á meðan hinn anginn er fullur af litaglaðri hollenskri hönnun sem vekur kátínu, jarðbundinni danskri vöru- línu og bandarískum vörum með kolsvörtum húmor sem eru jafnframt vandaðar og úr góðum og efnum. Svo vekja frönsku ananaslamp- arnir alltaf athygli og að- dáun, enda bæði ótrúlega skemmtilegir og heillandi,“ segir María. Kastalinn býður upp á alþjóðlega hönnunar- blöndu sem heillar fagurker- ann í okkur öllum. María er menntaður vöruhönnuður og lærði einnig barnamenn- ingarhönnun í Svíþjóð. Hún rekur hönnunarstúdíó í versl- uninni og hannar þar fallegar vörur sem hún selur. Leikgleðin í fyrirrúmi Það er alltaf jafn gaman kíkja í heimsókn í Kastalann hennar Maríu á Selfossi enda einkennist vöruúrvalið af vönduðum og skemmtileg- um hönnunarvörum. „Heimili manns er kastalinn hans“, eru einkennisorð verslunarinnar og leitast María við að bjóða upp á fjölbreytta hönnun sem er hvort tveggja mjúk og hlý; og litrík og leikglöð. María opnaði einnig spánnýja og glæsilega vefverslun í nóvem ber í fyrra þar sem einnig er hægt að nálgast allar vörur Kastalans. „Þar má til dæmis panta fiska- lampa frá Hollandi, notalegar danskar leirkrúsir, dulítið drungalega kertastjaka og íslensk plaköt með eyrna- mörkum. Við erum líka með ótrúlega fín hvítvínsglös í nokkrum litum sem fallegt er að blanda saman. Þetta fæst allt hérna. Einn við- skiptavinur í sumar kvaddi okkur með orðunum: „A shop full of smiles!“ sem er einmitt það sem við viljum vera,“ segir María. Hönnunarbland í poka Kastalinn grænmálaði er staðsettur á Selfossi, beint á móti hótelinu. „Við erum hægra megin við brúna þegar maður keyrir frá Reykjavík,” segir María. Þó má sannarlega segja að það sé fyllilega þess virði að taka á sig örlítinn krók úr alfaraleið til þess að kíkja í Kastalann, ganga aftur út með bros á vör og hönnunarbland í poka. Kastalinn er staðsettur á Eyravegi 5, Selfossi. Opið er í versluninni mán– fös 10–18 og lau 12–16. Langi þig að kíkja við í Kast- alanum utan opnunartíma er ekkert mál að hafa samband við Maríu og hún býður þér inn. Sími: 663-3757, e-mail: postur@kastali.is Kastalinn: Bráðskemmtileg hönnunarverslun á Selfossi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.