Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2017, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2017, Síða 32
setur „make-up“-pallettu á markað Chrissy teigen nýtur sín á ítalíu Þáttastjórnandinn, ofurfyrir­sætan, og móðirin Chrissy Teigen varði nýlega sumar­ fríi í Feneyjum á Ítalíu með eiginmanninum, söngvaranum John Legend, og dótturinni, Luna Simone Stephens, sem er eins árs. Teigen er þáttastjórnandi sjónvarpsþáttanna Lip Sync Battle, ásamt söngvaranum LL Cool J, auk þess að starfa sem fyrirsæta og í byrjun árs 2016 gaf hún út matarbókina Cravings, sem náði á lista söluhæstu bóka hjá New York Times. Fjölskyldan Chrissy Teigen, dóttirin Luna og eiginmaðurinn, söngvarinn John Legend. kate Moss með sína fyrstu snyrtivöru undir eigin nafni Fjölskyldufrí í Feneyjum Breska fyrirsætan Kate Moss hefur á löngum og farsælum ferli verið andlit fjölmargra snyrtivörumerkja og setið fyrir í auglýsingum sem auglýsa snyrti­ vörur frá toppi til táar. En núna fyrst setur hún eigið nafn á vöru í samstarfi við japanska snyrtivöru­ merkið Decorté. Decorté ætlar í sókn á banda­ ríska markaðnum og er líklegt að vara Kate Moss geti hjálpað við að ná árangri þar. Varan ber nafnið Uppáhald Kate Moss eða Kate Moss Favorites og samanstendur af „make­up“­pallettu með fjórum varalitum og sex augnskuggum, varalitapensli, blautum eyeliner, augabrúnablýanti og þremur burstum. Allt kemur þetta svo saman í svartri tösku. Settið verður komið í sölu hjá Saks Fifth Avenue í New York í lok ágúst og verðið er 190 dollarar eða um 20 þúsund íslenskar krónur. Bláhærð í Bikiníi á BarBados Rihanna djammar á heimahátíð Söngkonan Rihanna leit frá­bærlega út á hátíðinni Crop Over á Barbados í byrjun ágúst. Rihanna mætti með blátt hár og í fagurlega skreyttu bikiníi. Rihanna missti af hátíðinni í fyrra þar sem hún fylgdi þáverandi kærasta sínum, Drake, á tónleika hans. En í ár lét Rihanna ekkert koma í veg fyrir að hún gæti mætt á hátíðina í heimalandinu. 2015 og 2017 Rihanna lítur mun betur út og klæðnaðurinn er íburðarmeiri en fyrir tveimur árum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.