Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2017, Page 34

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2017, Page 34
Best í mat, Bíó, Bókum, tónlist og sjónvarpi Daglega blandan eða Daily Mix á tónlistarveitunni Spotify er hrein snilld fyrir konu sem er alltaf með tónlist í eyrunum og vill bara hlusta á tónlist, ekki tal, en nennir ekki alltaf að vera að leita að lagi eða skipta um stöð. Daglega blandan þróast með notandanum og velur í bland þá tónlistarmenn sem maður er hrifinn af fyrir og nýja tónlist. Stöð sem ég er alveg að „fíla.“ Spotify: Daglega blandan BraSS: Tilbrigði við vöfflur Veitingastaðurinn Brass var opnaður um mánaðamótin á Laugavegi 66. Vin- kona mín bauð mér í hádegismat þar í vik- unni og ég hafði ekki heyrt staðinn nefndan fyrr, enda glænýr. Við fengum okkur hvor sína vöffluna, hún með laxi og hleyptu eggi og ég með sætkartöflubuffi og kúrbít. Mjög gott og matarmikið í hádeg- ismat, en ég var mun hrifnari af minni vöfflu, enda ekki mikil laxkona. Góður matur á stað í hráum stíl og sátum við svo við gluggann og horfðum út á Laugaveg og dáðumst að gestum götunnar. atomic Blonde: Hasarkvendi í ham Hin suðurafríska Charlize Theron hefur heillað mig frá því að ég sá hana fyrst í The Cider House Rules fyrir næstum 20 árum. Hún hefur leikið alls konar hlutverk á ferlinum, en þetta er það mest töff til þessa. Hún vílar ekki fyrir sér slagsmál á 20 sentimetra hælum, en slagsmála- atriðin eru eins alvöru og hægt er, hér standa konur ekki upp og dusta af sér rykið á eftir. Sum eru það svakaleg að ég leit undan og er nú ýmsu vön og myndin er alls ekki fyrir börn. Það kitlar líka þjóðern- iskenndina að sjá tvö íslensk nöfn á kreditlistanum í byrjun myndar og eitístónlistin, sem ég elska og ólst upp við, pakkar myndinni inn í einn allsherjar dúndurpakka. Það fór ekkert fyrir bókalestri þessa vikuna, enda nóg annað við að vera, sem er synd því best væri að lesa minnst eina bók á viku. Í staðinn er ég búin að renna í gegnum nokkur tímarit sem keypt voru í síðustu utan- landsferð og ég tími engan veginn að kaupa hér heima á 2.000 krónur eintakið. Vinkona ætlar að kippa með öðrum bunka fyrir mig á heimleið í dag og önnur sagði mér að blöðin kostuðu „túkall“ í Costco, þannig að ljóst er að fjárfest verður í nokkrum tímaritum í jómfrúrferðinni þangað. the Sinner: Móðir fremur voðaverk Fyrsti þáttur The Sinner lofar svo sannarlega góðu. Jessica Biel leikur hægláta eiginkonu og móður, sem fremur voðaverk einn sumardag fyrir framan fjölda vitna. Enginn og síst af öllu hún sjálf veit af hverju hún framdi glæpinn, en Bill Pullman, sem leikur lögreglumanninn sem fer með rannsókn málsins, er staðráðinn í að komast að hinu sanna. Á imdb.com er þáttaröðin í 14. sæti, með 7,7 í einkunn, á listanum yfir vinsælustu þættina. Uppáhald vikunnar hjá Birtu Bækur víkja fyrir tímaritaleStri töffari Theron tekur töffarann á þetta í nýjustu mynd sinni Atomic Blonde. Spotify Daglega blandan er góð alla daga. the Sinner Eiginkona og móðir fremur voða- verk og enginn skilur af hverju. fjölBreytt Blanda Tímarit um kvikmyndir, skrif og sögulega viðburði eru í uppáhaldi hérna megin. ÓhefðBundin vaffla Með laxi og uphleyptu eggi. velútilátin vaffla- Með sætkartöflubuffi og kúrbít.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.