Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2017, Qupperneq 40

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2017, Qupperneq 40
Ég hef alltaf verið þannig að ég má ekkert aumt sjá,“ segir Arnar Már. „Ég man til dæmis að ég fór með foreldrum mínum í heimsókn til vinafólks þegar ég var 5–6 ára gamall. Þar var mjög fötluð stúlka sem var rúmliggjandi og alla heimsóknina sat ég við hliðina á henni og spjallaði.“ 1988 byrjaði Arnar Már, 18 ára gamall, að þjálfa hjá Íþrótta- félagi fatlaðra. „Ég var að vinna í Fálkanum og Olli, formaður Asparinnar, íþróttafélags fatlaðra og þroskahamlaðra, talaði um að það vantaði þjálfara þar, þannig að ég fór líka að þjálfa þar. Svo var ég að keppa svo mikið, þegar ég var um 20 ára – var bæði í lyftingum og kraftraunum – þannig að ég hætti í Öspinni, en hélt áfram hjá Íþróttafélagi fatlaðra.“ Arnar Már er með þjálfara- réttindi, réttindi í skyndihjálp og hefur setið ráðstefnur og fundi úti um allan heim. „Ég hef nýtt tímann vel þegar ég er í keppnisferðum og farið á ráðstefnur og fundi, ef slíkt er á sama tíma. Ég er fljótur að sjá ef einhver er með skekkju eða slíkt, maður þróar það með sér, þegar maður er svona mikið í þessu, að finna út hvað hent- ar hverjum og einum.“ Fyrsti bíladrátturinn í Hátúni Fyrir 21 ári ákvað Arnar Már að prófa eitthvað nýtt. Fyrir utan Hátún 14 í Reykjavík, þar sem íþróttahús fatlaðra er, þar er reykingabekkur. „Ég fór að hugsa hvað ég gæti gert, fór út með krakkana, batt spotta í bílinn minn, og einstaklingar sátu í hjólastólnum hinum megin við bekkinn og reyndu að draga bílinn. Sá fyrsti til að draga hann í hlutlaus- um gír var Leifur Leifsson, 15 ára gamall, og við vorum báðir jafnhissa að honum skyldi takast þetta.“ Engin vettlingatök í þjálfun Arnar Már fer stundum ekki nein- um silkihöndum um einstaklingana sem hann þjálfar eða foreldra þeirra. „Ég hef stundum rekið foreldra út, þegar þeir ýta börnunum í hjólastólnum inn til mín í þjálfun. Börnin geta það alveg sjálf. Það er mitt markmið að láta fatlaðan einstakling stíga upp frá fötlun sinni. Maður á kannski ekki að segja frá því, en ég hef tekið einstaklinga og hent þeim úr stólnum. Svo reisi ég stólinn við og segi: „ég verð frammi, þú kemur bara fram.“ Svo kemur viðkomandi fram, búinn að koma sér sjálfur í hjólastólinn.“ Hann hefur líka farið óhefð- bundnar leiðir til að safna fjár- munum þegar þess hefur þurft. Árið 1994 var Heimsmeistaramót í Frakklandi, „og ég hugsa „ókei, við þurfum að safna pening, förum á hjólastólunum frá Hátúni til Keflavíkur.“ Síðan fórum við spöl í hverju bæjarfélagi og bæjarstjórar fóru með okkur. Tveir einstaklingar fóru alla leiðina, en fleiri tóku þátt, við vorum á bílum og einstaklingar skiptust á,“ segir Arnar Már, sem segist hafa fengið athugasemdir frá fólki um að hann væri klikkaður þegar hann bar hugmyndina fyrst upp. Þjálfar börn í júdó Arnar Már er júdóþjálfari í Grinda- vík og í Vogum, en býr í Garði. „Öll þessi ár sem ég hef starfað með fötluðum þá hef ég aldrei fengið viðurkenningu, en ég er aðeins búinn að þjálfa júdó í fimm ár og í fyrra var ég heiðraður bronsmerki Júdósambands Íslands, hlunkurinn grét næstum,“ segir Arnar Már og hlær. Hann var kominn með svarta beltið í karate 15 ára. Synir hans fóru báðir að æfa júdó og sá eldri, Aron sem þjálfar með föður sínum í Grindavík, er í landsliðinu og ríkjandi Íslandsmeistari. „Sá yngri fór síðan sex ára að æfa júdó í Vogunum og ég fór með og ákvað að prófa og hélt ég myndi fá þrjú hjartaáföll á fyrstu æfingu. En þarna fann ég sportið mitt, sá ljósið og ég og Maggi Hauks þjálfari urðum út frá þessu ótrúlega góðir vinir. Mér bauðst síðan að taka við júdókennslu í Grindavík og þar er ég að kenna alvöru „old school“ júdó og ég bjó líka til krílahóp og er að þjálfa krakka alveg niður í 2–3 ára. Ég er með gulrót fyrir 6–9 ára krakkana, ef allir standa sig vel alla vikuna, þá er diskópartí síð- asta hálftímann í síðasta tíma vik- unnar. Þau eru byrjuð að spyrja foreldra sína hvenær júdóið hefjist. Árið 2016 átti Grindavík flest verðlaun í júdóinu, en ekki í öðrum íþróttagreinum.“ Fyrsta mótið árið 2002 Árið 2002 hélt Arnar Már fyrsta mótið fyrir fatlaða og vann Reynir Kristófersson. Þá var keppt í trukkadrætti, drumbalyftu (á hallandi bekk sem er stilltur í ákveðna gráðu), bombugöngu, steinatökum (tunna hvor sínum megin við hjólastólinn, svo færir keppandinn steinana yfir. Mótið Sterkasti fatlaði maður Íslands var orðið að veruleika. „Ég er með einkaleyfi á nafninu og ég er líka kominn með ákveðin réttindi sem maður vinnur sér inn þegar maður heldur svona mót. Magn- ús Ver Magnússon og ég erum miklir félagar, höfum starfað saman í meira en níu ár og hann hefur hjálpað mér mikið í gegn- um árin. Í dag eigum við nafnið og keppnina til helminga.“ Keppnin stækkar og þróast „Ég hef verið að þróa sportið og er líka búinn að koma inn með fólk frá Noregi, Bandaríkjunum, Bretlandi og Þýskalandi. Mótið Sterkasti fatl- aði maðurinn er eina sportið sem búið er til á Íslandi sem er orðið að alheimsíþrótt.“ Arnar Már er nýkominn heim frá fyrsta mótinu sem haldið er í Þýskalandi, Sterkasti fatlaði maður Þýskalands, og voru hann og Magnús Ver dómarar. Fjöldi viðtala fylgdi mótinu, bæði í útvarpi og sjónvarpi. Arnar Már flaug síðan heim og var á Íslandi í þrjár klukkustundir, þá fékk hann skilaboð um að hann ætti að vera daginn eftir í viðtali hjá BBC í Bret- landi, þannig að hann flaug strax út aftur. Heimsmeistaramótið, Sterkasti fatlaði maður heims, er svo framundan í byrjun september í Queen Elizabeth Park í London og er búist við 15–30 þúsund áhorf- endum, auk keppenda og annarra. Keppnin snýst ekki um verðlaunasæti „Keppnin snýst um að hjálpa hver öðrum og kenna öllum,“ segir Arnar Már. „Allir sem koma að þessu eru orðlausir, sagði gaurinn í BBC, já það er til meira en fótbolti, sagði ég. Ég hef alltaf sagt við keppendur: „Mér er alveg sama hver vinnur, hver er í síðasta sæti, þetta er gaman fyrir ykkur, við erum öll saman, þið kynnist fólki og kannski verðið þið vinir til lífstíðar. Ég vil fá fólkið út, það er það sem ég var alltaf að reyna.“ Arnar Már Jónsson, aflraunamaður og júdókennari, byrjaði ungur að þjálfa fatl- aða. Árið 2002 ákvað hann að prófa eitthvað nýtt og lét nokkra fatlaða einstaklinga keppa í bíladrætti, 15 árum síðar er þessi hugdetta orðin að alheimsíþrótt, Sterkasti fatlaði einstaklingur heims. Arnar Már og keppnin Sterkasti fatlaði maður heims Hugdetta varð að alheimsíþrótt FJórir kAppAr á SterkASti FAtlAði MAður ÞýSkAlAndS Heinz Ollesch, gamall vinur Arnars og Magnúsar, sem keppt hefur í Sterkasti maður heims, Bjö Bru, sem sá um framkvæmd mótsins, Magnús og Arnar. reynir kriStóFerSSon Vann fyrsta sitjandi flokkinn árið 2002. Þessi mynd er tekin í ár.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.