Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2017, Síða 56
32 lífsstíll Helgarblað 11. ágúst 2017
A
fleiðingar loftslagsbreytinga
eru stærsta verkefni sem
mannkynið stendur frammi
fyrir,“ segir Dario Schwoerer,
svissneskur loftslagsfræðingur og
skíða- og fjallaleiðsögumaður, sem
býr í skútunni Pachamama ásamt
fjölskyldu sinni. Dario og eigin-
kona hans, Sabine sem er hjúkr-
unarfræðingur, eru stödd á Akur-
eyri þessa dagana auk barna sinna
fimm en sjötta barnið er áætlað í
heiminn á næstu dögum.
Jákvæðari með hverju árinu
Hjónin hafa siglt á skútunni um
heiminn síðustu 17 árin og börnin
þekkja ekkert annað heimili. Fjöl-
skyldan ferðast um með það mark-
mið að vekja athygli á loftslags-
breytingum, safna gögnum fyrir
vísindamenn og klífa hæsta tind
hverrar heimsálfu. Dario segist ekki
svartsýnn um framtíð jarðarinnar.
„Ég vinn við að leita uppi það já-
kvæða og fyrir vikið verð ég bjart-
sýnni með hverju árinu. Því miður
fjalla fjölmiðlar einungis um það
neikvæða, eins og Trump og stríð,
en þegar maður hugsar út í það þá
er margt jákvætt að gerast. Það er
til dæmis ótrúlegt að jörðin sé enn-
þá svona falleg. Loftslagsbreytingar
þurfa ekki að vera svo slæmar fyrir
Íslendinga. Hér verður hlýrra svo
kannski verða hér pálmatré í fram-
tíðinni, hver veit?“ segir hann bros-
andi en bætir svo alvarlegri við:
„Við verðum öll að leggjast á eitt við
að leysa þetta verkefni. Breytingar
þurfa ekki að vera af hinu nei-
kvæða. Þetta er tækifæri fyrir okkur
til að vinna saman, þvert á landa-
mæri.“
Notalegar móttökur
Dario hefur haldið fyrirlestra fyrir
yfir 100 þúsund manns í skólum
víðs vegar um heiminn þar sem
hann hvetur ungmenni til að gera
sitt til bjargar plánetunni okkar.
Fjölskyldan hefur komið til yfir
100 landa en Dario segir mót-
tökurnar hafa verið afar nota-
legar á Íslandi. „Fyrsti staðurinn
sem við heimsóttum hér á landi
var Vestmannaeyjar, Heimaey, en
við komum að bryggju um fjögur
leytið um morguninn. Lögreglu-
maðurinn sem tékkaði okkur inn
í landið bauð okkur í útsýnistúr
um eyjuna á lögreglubílnum.
Það var virkilega hlýlegt. Að sama
skapi bauð læknirinn hér á Akur-
eyri, sem skoðaði Sabine, okkur
að tjalda í garðinum hjá sér.
Okkur líkar mjög vel við landið
og götuljósin hér á Akureyri hafa
heillað okkur. Við höfum hvergi
annars staðar séð hjartalaga
götuljós.“
Alltaf saman
Skúta fjölskyldunnar er aðeins 20
fermetrar og um borð eru einnig
tveir kennarar sem kenna krökk-
unum. „Um tíma ferðaðist önnur
fjölskylda með okkur. Þá vorum
við alls tólf talsins og reiknuðum
út að hver manneskja hefði 1,8 fer-
metra. Samt fannst okkur ekkert
þröngt. Báturinn er í raun bara
staður til að elda, sofa og læra.
Náttúran er okkar stofa; sjón-
deildarhringurinn og himinninn.
Börnin ólust upp án sjónvarps og
tölvu og fjölskyldan ver 24 tím-
um á dag saman. Auðvitað rífast
börnin stundum en hjá okkur fara
allir sáttir að sofa því það gæti
alltaf komið stormur um nóttina
og þá vilja allir vera sáttir.“
Ólík eins og heimsálfurnar
Hann viðurkennir að margir hafi
sett spurningarmerki við lífsstíl
þeirra. „Sérstaklega í upphafi.
Fólkið okkar skyldi ekki hvað
við vorum að gera og töldu víst
að við kæmum til baka eftir tvo
mánuði. Við vorum alls ekki viss
um hvað við myndum gera þegar
elsta barnið okkar fæddist, en hér
erum við ennþá. Elsta dóttirin er
að hugsa um að fara í land fljót-
lega til að fara í skóla. Okkar
markmið er ekki að hafa börnin
hjá okkur til þrítugs heldur að
þau verði sjálfstæð og hamingju-
söm,“ segir hann og bætir við að
börnin séu jafn ólík og heims-
álfurnar sem þau fæddust í. „En
þau elska öll náttúruna og upplifa
sig sem hluta af henni.“
Minna er meira
Hann segist ekki sakna gamla
lífsins. „Vissulega væri gott að
komast oftar í heita sturtu en
fyrir mig er minna meira. Vegna
plássleysis um borð þurfum við
að losa okkur við allt drasl og það
er mjög gott fyrir sálina. Mikið
af dóti gerir lífið flóknara. Sum-
ir vilja eiga marga bíla og þurfa
að vinna mikið til að borga af
þeim. Fyrir okkur er tíminn með
fjölskyldunni mikilvægastur;
að búa til góðar minningar sem
endast að eilífu.“ Hægt er að
fræðast meira um leiðangurinn
á vefsíðunni toptotop.org. n
„Náttúran er okkar
stofa; sjóndeildar-
hringurinn og himinninn.
Búa í skútu
Dario og Sabine hafa siglt um heiminn síðustu 17 árin