Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2017, Page 68
44 menning - SJÓNVARP Helgarblað 11. ágúst 2017
Sjónvarpsdagskrá
RÚV Stöð 2 Sjónvarp Símans
Sunnudagur 13. ágúst
07.00 KrakkaRÚV
07.01 Kioka
07.08 Nellý og Nóra
07.15 Sara og önd
07.22 Klingjur
07.34 Hæ Sámur
07.41 Begga og Fress
07.53 Póló
07.59 Kúlugúbbarnir
08.22 Úmísúmí
08.45 Babar
09.08 Söguhúsið
09.15 Mói
09.26 Millý spyr
09.33 Letibjörn og læm-
ingjarnir
09.40 Drekar
10.03 Undraveröld Gúnda
10.20 Genabreytingar
11.15 Donald Trump:
Lærlingurinn á
forsetastól
12.15 Uppruni tesins með
Simon Reeve
13.10 Rafrettur: Gæfa eða
glapræði?
14.05 Attenborough:
maðurinn á bakvið
myndavélina
14.55 Landakort
15.05 Saga af strák
15.30 Söngvaskáldin og
Sinfó
17.30 HM íslenska hests-
ins: Samantekt
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Stundin okkar
18.25 Sætt og gott
19.00 Fréttir
19.25 Íþróttir
19.35 Veður
19.40 Íslendingar (Þór-
bergur Þórðarson)
Að margra dómi
var Þórbergur einn
frumlegasti og vin-
sælasti rithöfundur
og hugsuður sem
uppi var hér á landi á
20. öld. Skáldferilinn
hóf hann árið 1915
með ljóðabókinni
Hálfir skósólar undir
dulnefninu Styrr
Stofuglamm en
nokkrum árum síðar
kom út skáldævi-
sagan Bréf til Láru
undir hans eigin
nafni.
20.40 Íslenskt bíósum-
ar - Kurteist fólk
Íslensk gamanmynd
frá 2011 um mann
sem tekur að sér að
endurvekja sláturhús
Dalamanna en lýgur
til um eigin getu
og hæfni til að fá
starfið.
22.15 HM íslenska hests-
ins: Samantekt
22.35 Kynlífsfræðingarnir
Þriðja þáttaröðin um
William Masters og
Virginiu Johnson sem
voru frumkvöðlar
á sviði kynlífs-
rannsókna. Atriði í
þáttunum eru ekki
við hæfi barna.
23.30 Vammlaus
00.15 Útvarpsfréttir í
dagskrárlok
07:00 Strumparnir
07:25 Waybuloo
07:45 Ævintýraferðin
07:55 Mæja býfluga
08:10 Skoppa og Skrítla
08:20 Kormákur
08:30 Blíða og Blær
08:55 Pingu
09:00 Grettir
09:15 Tommi og Jenni
09:40 Kalli kanína
10:05 Lína langsokkur
10:30 Lukku láki
10:55 Ninja-skjaldbökurnar
12:00 Nágrannar
13:25 Friends
13:50 The Secret Life of a 4
Year Olds
14:40 Masterchef USA
15:25 Hugh's War on Waste
16:30 Hið blómlega bú
17:05 Út um víðan völl
17:40 60 Minutes
18:30 Fréttir Stöðvar 2
18:55 Sportpakkinn
19:10 World of Dance
19:55 Blokk 925
20:20 Little Boy Blue Bresk
þáttaröð í fjórum
hlutum sem fjallar
um 11 ára gamlan
strák sem var skotinn
til bana á leið heim
af fótboltaæfingu og
farið er yfir rannsókn
málsins.
21:10 Gasmamman Önnur
þáttaröðin þessa
hörkuspennandi
sænsku þátta um
Sonju sem þangað
til í síðustu þáttaröð
lifði afar góðu og
áhyggjulausu lífi
með eiginmanni
sínum og þremur
börnum í úthverfi
Stokkhólms. En
þegar líf hennar
tók skyndilega
stakkaskiptum og
öryggi hennar og
barnanna er ógnað
voru góð ráð dýr.
Hún gerir því allt
sem í hennar valdi
stendur til að standa
vörð um þá sem hún
elskar þótt það þýði
að hún dragist inn í
undirheimana til að
draga björg í bú.
21:55 Suited Heimildar-
mynd frá HBO frá
framleiðendum
Girls og fjallar um
klæðskerafyrirtæki í
Brooklyn í New York
sem sérhæfir sig í
fatnaði fyrir hinsegin
samfélagið.
23:15 60 Minutes
00:00 Vice
00:35 Modern Family
01:00 Game of Thrones
02:00 Suits
02:50 Tommy Cooper: Not
Like That, L
04:30 Killer Women With
Piers Morgan
05:20 Person of Interest
06:05 Friends
06:00 Síminn + Spotify
08:00 Everybody Loves
Raymond
08:20 King of Queens
09:05 How I Met Your
Mother
09:50 The McCarthys
10:15 Speechless
10:35 The Office
11:00 The Voice USA
11:45 Survivor
12:30 Your Home in Their
Hands
13:20 Katherine Mills:
Mind Games
14:20 Superstore
14:45 Million Dollar Listing
15:35 No Tomorrow
16:20 Rules of
Engagement
16:45 The Odd Couple
17:10 King of Queens
17:35 Man With a Plan
Gamanþáttaröð með
Matt LeBlanc í aðal-
hlutverki. Hann leikur
verktaka sem fær nýtt
hlutverk á heimilinu
eftir að eiginkonan fer
aftur út á vinnumark-
aðinn.
18:00 How I Met Your
Mother
18:25 The Biggest Loser -
Ísland
19:05 Friends with Benefits
19:30 This is Us
20:15 Doubt (3:13)
21:00 Elementary (1:22)
21:45 Fargo (1:10) Þriðja
þáttaröðin af Fargo,
einni mögnuðustu
sjónvarpsseríu síðari
ára. Þættirnir sækja
innblástur í samnefnda
kvikmynd sem Coen-
bræður gerðu árið
1996. Ewan McGregor,
Carrie Coon og Mary
Elizabeth Winstead
leika aðalhlutverkinni
í þessari seríu. Strang-
lega bönnuð börnum.
22:30 House of Lies (4:10)
Marty Khan og félagar
snúa aftur í þessum
vinsælu þáttum sem
hinir raunverulegu há-
karlar viðskiptalífsins.
23:00 Damien Spennu-
þáttaröð um ungan
mann sem kemst að
því að hann er ekki eins
og fólk er flest. Margir
muna eftir Damien
Thorn sem var andset-
inn krakki í myndinni
The Omen sem sló í
gegn árið 1976. Núna
er Damien orðinn
fullorðinn og alveg
grunlaus um hin djöf-
ullegu öfl sem umlykja
hann. Aðalhlutverkin
leika Bradley James
(Merlin), Barbara
Hershey og Megalyn
Echikunwoke.
23:45 Queen of the South
00:30 The Walking Dead
01:15 APB (11:13)
02:00 Taken (1:10)
02:45 Nurse Jackie
03:15 Elementary (1:22)
04:00 Fargo
04:45 House of Lies
05:15 Damien
Þ
að verður að segjast eins
og er að sjónvarp RÚV fer
að mestu leyti framhjá
mér, ef undan eru skildar
tíu mínútur inn í fréttatímann.
Reyndar er sjónvarp ekki í há-
vegum haft á mínu heimili; það
er bókstaflega á gólfinu og safnar
löngum stundum ryki úti í horni.
Hvað sem því líður er ég þó
áskrifandi að einhverjum hátt í
hundrað rásum, sem fæstar hafa
þess heiðurs notið að einoka
skjáinn. Þá sjaldan sem ég dett
í sjónvarpsgláp verður danska
rásin DR1 fyrir valinu og þótt hún
sé hugsuð fyrir Dani þá virðist
ávallt hægt að finna þar eitthvað
áhugavert.
Eina tegund sjónvarpsefnis
fæ ég þó ekki staðist, og er án
efa ekki einn um það. Þar er um
að ræða allt sem David Atten-
borough, sá mikli snillingur, set-
ur nafn sitt við. Þættir hans eru
í senn fræðandi og staðfesting
á stórkostleika dýraríkisins og
fjölbreytileika. Það verður þó að
segjast eins og er að sú ánægja
sem ég hef af slíkum þáttum er
þó blandin trega enda gefa nýj-
ustu tíðindi af dýraríkinu ekki
ástæðu til mikillar bjartsýni varð-
andi tilvist fjölda dýrategunda.
Mannskepnunni hefur ekki
verið gefið að lifa með öðrum
dýrum og dýr og náttúra gjarna
goldið lífshætti mannsins dýru
verði.
Það er hverjum manni hollt
að horfa á þætti Attenboroughs,
skynja þá ástríðu og væntum-
þykju sem hann hefur til dýra og
náttúru og, vonandi, tileinka sér
þó ekki væri nema brot af því. n
Kolbeinn Þorsteinsson
kolbeinn@dv.is
Við tækið
Ástríða Attenboroughs
Attenborough með
fiðrildi á fingri Mikið
hrun hefur orðið í 40
stofnum, af 57, fiðrilda
á Bretlandi síðastliðin
20–30 ár.
Aldarafmæli Earl Cameron
Braut á sínum tíma blað í breskum kvikmyndum
Þ
ann 8. ágúst fagnaði
Earlston J. Cameron
100 ára afmæli. Earl
fæddist á Bermúda
og kom í fyrsta sinn til Bret-
lands árið 1939. Í nýlegu við-
tali ræddi hann um hve erfitt
það hafi verið á þeim tíma
fyrir blökkumann að sjá sér
farborða, en tilviljun ein réð
því að hann fékk hlutverk
í söngleiknum Chu Chin
Chow.
Earl braut blað í breskri
kvikmyndagerð þegar hann
rauf kynþáttamúrinn í þar-
lendri kvikmyndagerð, árið
1951, í kvikmyndinni Pool of
London. Þar var á ferðinni
fyrsta breska kvikmyndin
sem sýndi blandað samband;
samband hvítrar konu og
blökkumanns.
Earl lék félaga Sean Conn-
ery í myndinni Thunderball
árið 1965 en hin síðari ár hef-
ur mátt sjá honum bregða
fyrir í misveigamiklum hlut-
verkum, meðal annars
The Interpreter, Queen og
Inception með Leonardo
DiCaprio.
Á sinni löngu ævi hefur
Earl komið víða við. Hann
hefur meðal annars verið far-
maður, uppvaskari á hótelum
og selt ís, en að stærstum
hluta hefur hann unnið sem
leikari.
Earl var sæmdur CBE-
orðunni, The Commander
of the Order of the British
Empire, árið 2009 og varð
þess heiðurs aðnjótandi árið
2012 að leikhús á Bermúda
var nefnt í höfuðið á honum.
Þrátt fyrir háan aldur segir
hann í fyrrnefndu viðtali. „Og
ég er ekki viss um að ég sé
sestur í helgan stein enn.“ n Pool of London Susan Shaw og Cameron Earl í hlutverkum sínum.
Glæsibæ • www.sportlif.is
PróteinPönnukökur
Próteinís Próteinbúðingur