Morgunblaðið - 25.02.2017, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2017
Voltaren 11,6 mg/g hlaup. Inniheldur díklófenaktvíetýlamín. Staðbundnir bólgukvillar. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins.
Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
Viltu meðhöndla liðverkinn
án þess að taka töflur?
150g50%
meira m
ag
n!
Prófaðu að meðhöndla liðverkina
með Voltaren geli.
Lyfjaauglýsing
Framboð í trúnaðarstöður
FRV
Samkvæmt 34. gr. laga Félags Rafeindavirkja
skal fara fram kosning til trúnaðarstarfa fyrir félagið.
Framboðsfrestur skal vera minnst 14 sólarhringar
og skal tillögum skilað til kjörstjórnar innan þess tíma.
Með hliðsjón af framansögðu hefur framboðsfrestur
verið ákveðinn til kl. 12 á hádegi 14.03.2017
Reykjavík 25. febrúar 2017
Stjórn Félags Rafeindavirkja
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Skipst var á skipsbjöllum um borð í
varðskipinu Óðni við Sjóminjasafnið
í Reykjavík í gærmorgun. Sjóminja-
safnið í Reykjavík og Hollvinasam-
tök Óðins lánuðu Sjóminjasafninu í
Hull eina af skipsbjöllum Óðins og
þáðu að láni skipsbjöllu úr togaran-
um Arctic Corsair. Togarinn er til
sýnis í Sjóminjasafninu í Hull (Hull
Maritime Museum). Breskir togara-
sjómenn og fulltrúar Sjóminjasafn-
sins í Hull voru viðstaddir athöfnina
ásamt fulltrúum Sjóminjasafnsins í
Reykjavík, Hollvinasamtaka Óðins
og varðskipsmanna.
Robin Diaper, safnstjóri
Sjóminjasafnsins í Hull, sagði að sjó-
minjasöfnin í Reykjavík og Hull ættu
hafið sameiginlegt. Það hefði verið
gjöfult en einnig tekið mörg mannslíf
og þannig sameinað þjóðirnar í bar-
áttunni við þennan andstæðing.
Sjóminjasafnið í Hull vinnur að
uppsetningu sýningar sem ber heitið
Sameiginlegur andstæðingur og er
þar vísað til hafsins. Heimsókn hóps-
ins frá Hull er liður í undirbúningi
sýningarinnar. Skipsbjallan úr Óðni
verður til sýnis í Hull. Diaper sagði
að skiptin á skipsbjöllunum væru
táknræn fyrir sameiginlega arfleifð
þjóðanna tveggja. Togarinn og varð-
skipið deildu sameiginlegri sögu.
Reiknað er með að um 150.000
manns muni sækja sýninguna.
Bresku sjómennirnir munu hitta
íslenska varðskipsmenn og hér verða
tekin upp viðtöl við varðskipsmenn
um borð í Óðni fyrir sýninguna.
Hana á að opna í júlí og lýkur henni í
september.
Victor Wheeldon, fyrrverandi
togaraskipstjóri, og Guðmundur
Hallvarðsson, formaður Hollvina-
samtaka Óðins, skiptust síðan á
skipsbjöllunum. Wheeldon sagði að
það væru forréttindi að fá að afhenda
skipsbjöllu Arctic Corsair sem verð-
ur til sýnis í Óðni.
„Skipin tóku bæði þátt í þorska-
stríðinu og eiga sameiginlega sögu,“
sagði Wheeldon. Guðmundur sagði
bjölluskiptin vera táknræn fyrir vin-
áttuna sem myndast hefði á milli
hópa sem hefðu verndað þessi gömlu
skip sem komu við sögu útfærslu
landhelginnar. Hann sagði að þetta
væri því söguleg stund. Guðmundur
sagði að væntanlega gætu Íslending-
ar endurgoldið heimsókn Bretanna
síðla næsta sumar og skoðað sýn-
inguna í Hull.
Taugin milli Hull og Íslands
Um hádegið í gær var haldið mál-
þing í Sjóminjasafninu í tilefni af
samstarfi safnsins og systursafns
þess í Hull, menningarborg Eng-
lands árið 2017. Yfirskrift þess var
„Óslitin taug – tengsl Hull og Íslands
í gegnum tíðina“. Þar fluttu þrír
sagnfræðingar erindi.
Guðmundur J. Guðmundsson
fjallaði um íslenska innflytjendur í
Englandi á 15. öld. Meira en 150 Ís-
lendingar fluttu búferlum til Eng-
lands á 15. og í byrjun 16. aldar.
Hann beindi kastljósinu einkum að
Íslendingum sem settust að í Hull og
nágrenni.
Flosi Þorgeirsson fjallaði um sam-
skipti Landhelgisgæslunnar og
breska flotans í þorskastríðunum.
Einnig sagði hann frá þeim tímum
þegar danski flotinn sá um land-
helgisgæslu.
Jo Byrne fjallaði um togveiðar sjó-
manna frá Hull á fjarlægum fiski-
miðum eftir að þorskastríðunum
lauk.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sjómenn Guðmundur Hallvarðsson (t.v.) og Victor Wheeldon skiptust á skipsbjöllunum sem verða til sýnis á sjó-
minjasöfnum. Bjallan af Óðni var lánuð tímabundið til Hull og bjallan af Arctic Corsair lánuð til Reykjavíkur.
Skiptust á skipsbjöll-
um Óðins og togara
Hafið hefur oft reynst vera sameiginlegur andstæðingur
Guðrún Hálfdánardóttir, blaða-
maður mbl.is, er tilnefnd til Blaða-
mannaverðlauna Blaðamannafélags
Íslands fyrir umfjöllun um Sýrland,
vaxandi þjóðernishyggju vegna
flóttamanna þaðan og lítinn áhuga
ráðamanna í Evrópu fyrir að taka á
móti þeim. Einnig eru tilnefnd Sig-
rún Ósk Kristjánsdóttir, hjá Stöð 2,
fyrir þáttaröðina Leitin að upprun-
anum og Svavar Hávarðsson, á
Fréttablaðinu, fyrir fréttaröð um
Mývatn.
Fyrir viðtal ársins eru tilnefnd
Auður Ösp Guðmundsdóttir, DV,
Helgi Seljan, Kastljósi RÚV, og
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir,
Stundinni. Fyrir rannsóknarblaða-
mennsku ársins eru tilnefndir Hörð-
ur Ægisson, DV, Tryggvi Aðal-
björnsson, RÚV, og Þórður Snær
Júlíusson, Kjarnanum. Tilnefnd til
Blaðamannaverðlauna ársins er Jó-
hanna Vigdís Hjaltadóttir, RÚV.
Verðlaunin verða veitt laugardag-
inn 4. mars.
Tilnefnd fyrir um-
fjöllun um Sýrland
Blaðamannaverðlaunin veitt 4. mars
Konan sem lést í umferðarslysi á Reykjanesbraut,
austan við Brunnhóla, síðastliðinn þriðjudag hét
Linda Dröfn Pétursdóttir. Hún var 54 ára gömul,
fædd árið 1962.
Linda var búsett á Akranesi. Hún lætur eftir sig
eiginmann, þrjú uppkomin börn og tvö barnabörn.
Lést í slysinu á Reyjanesbraut