Morgunblaðið - 25.02.2017, Side 13
vegar plaköt með svartfuglseggjum
ásamt steinplöttum sem eru tákn-
mynd bjargsins,“ segir Margrét og
víkur að hugrenningatengslum við
liðna tíma.
„Pabbi gekk alltaf með snær-
isspotta á sér og hafði kaðla í bíln-
um til að draga vegfarendur upp úr
skurðum og sköflum. Hann kenndi
mér pelastikk þegar ég var lítil og
mér varð alltaf hugsað til hans þeg-
ar ég gekk út á höfn og sá kaðlana,
sem annaðhvort voru allir í flækju,
eða snyrtilega undnir utan um poll-
ana – eins og hefði verið honum að
skapi. Hann lét æskudraum sinn
rætast á gamalsaldri og fékk sér
bát sem hann hafði í Hafnarfjarð-
arhöfn og sigldi endrum og sinn-
um.“
Svona leiðir eitt af öðru, eftir
kaðlana komu svartfuglseggin inn í
myndina. Margrét heldur áfram:
„Þegar móðir mín veiktist fór ég að
hugsa mikið um kynslóð foreldra
minna sem þurfti að hafa virkilega
mikið fyrir að draga björg í bú á sín-
um yngri árum, jafnvel hætta lífi
sínu til að ná í nýmeti að vori. Nota
þurfti kaðla til að síga í björg og ná í
svartfuglsegg, svo dæmi sé tekið,“
segir Margrét og verður frekar
óræð þegar hún er spurð hvað komi
á eftir egginu. Enda svarið ekki allt-
af augljóst …
Björg í bú Steinplattar úr fjörubergi sem m.a. má nota
til að bera fram sushi, forrétti, eftirrétti og osta.
Hitaplatti Eikar hitaplatti með lögun hreindýramosa ein-
angrar vel og passar undir kaffikönnur, potta og pönnur.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2017
Sími 788 2070 / 787-2070 | hotelrekstur@hotelrekstur.is | hotelrekstur.is
Allt fyrir ferðaþjónustuna
Við tökum vel á móti þér
Við bjóðum heildarlausnir fyrir
hótel, gistiheimili, dvalarheimili,
veitingahús, veisluþjónustur.
Fyrsta smiðjan í Ljóðadjammi
Borgarbókasafnsins, röð
ljóðasmiðja sem safnið stend-
ur fyrir í febrúar og mars, fer
fram kl. 10-13 í dag, laugardag
25. febrúar, í Borgar-
bókasafninu Kringlunni. Ásta
Fanney Sigurðardóttir, ljóð-
skáld og myndlistarkona,
stýrir þá smiðju um vídeóljóð
og mörk mynd- og ljóðlistar.
Aðrar smiðjur í röðinni eru:
Kött Grá Pje, rappari og skáld,
stýrir smiðju um orðfáa texta,
ljóð, rapp og kjaftæði í
Borgarbókasafninu Gerðu-
bergi, laugardaginn 4. mars. Viku síðar, laugardaginn 11. mars, stýrir Vigdís
Ósk Howser Harðardóttir, fyrrverandi Reykjavíkurdóttir, slammari og skipu-
leggjandi ljóðakvölda Hispursmeyja, smiðju um ljóðaslamm og ljóð á sviði í
Borgarbókasafninu Spönginni.
Smiðjurnar eru þátttakendum að kostnaðarlausu. Skráning: vertumed-
@borgarbokasafn.is og má skrá sig í eina eða fleiri smiðjur í einu. Í kjölfar
smiðjanna fer fram árlegt Ljóðaslamm Borgarbókasafnsins í Tjarnarbíói 30.
mars. Skráning í slammið hefst 2. mars.
Fyrsta smiðjan í Ljóðadjammi Borgarbókasafnsins
Kælan mikla Tríóið sigraði í ljóðaslammi fyrir
fáum árum og hefur síðan notið velgengni.
Ungskáldin láta í ljós sitt skína
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Með verkum á sýningunni Nautn/
Conspiracy of Pleasure í Listasafni
Árnesinga í Hveragerði er efnt til orð-
ræðu um margslungna útfærslu á
hugtakinu nautn. Blásið er til mál-
þings um efnið kl. 14 í dag, laug-
ardag, 25. febrúar.
Frummælendur eru Auður Ava
Ólafsdóttir, listfræðingur og rithöf-
undur, Ágústa Ragnarsdóttir, mynd-
listarkennari og grafískur hönnuður,
Markús Þór Andrésson, deildarstjóri
sýningardeildar Listasafns Reykja-
víkur, og Salvör Nordal, for-
stöðumaður Siðfræðistofnunar HÍ.
Umræðudagskrá í Listasafni Árnesinga í Hveragerði
Hin margslungna nautn
Auður Ava, Ágústa, Salvör og Markús.
„Sem neyslufrekasta þjóð heims þurfum við Íslendingar að hugsa okkar
gang. Okkur langar því að biðja þig að kaupa ekki vörurnar okkar bara til
að kaupa eitthvað. En ef þú fellur kylliföt/flatur fyrir hönnun okkar þá
tökum við þér opnum örmum og vonum að varan okkar eigi eftir að fylgja
þér langan veg. Við viljum bara vera viss um að við séum ekki að fram-
leiða vörur sem enda í sorptunnu morgundagsins,“ segir á vefsíðunni
www.gola.is.
Margrét vinnur að endurbótum á síðunni, því meiningin er að gera
hana að sölusíðu áður en langt um líður. Vörurnar verða þó eftir sem áður
til sölu í Skúmaskoti við Skólavörðustíg, sem hún rekur ásamt fleiri
hönnuðum og listamönnum. Auk þess að hanna vörur til heimilisprýði
heldur Margrét alls konar námskeið í handverki og hönnun.
Kaupa eða ekki kaupa?
GOLA & GLÓRA