Morgunblaðið - 25.02.2017, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2017
Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | Sími 511-2022 | www.dyrabaer.is – fyrir dýrin þín
Bragðgott, ho
llt og næringa
rríkt
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Hálfbróðir Kim Jong-un, einræðisherra Norð-
ur-Kóreu, var myrtur með eiturefninu VX sem
Sameinuðu þjóðirnar hafa skilgreint sem ger-
eyðingarvopn og er öflugasta taugaeitur sem
vitað er með vissu að hafi verið framleitt.
Stjórnvöld í Malasíu og Suður-Kóreu saka
einræðisstjórnina í Norður-Kóreu um að hafa
fyrirskipað morðið, en hún neitar því og mjög
ólíklegt er að nokkurn tíma verði hægt að full-
sanna ásökunina, að sögn fréttaskýranda
breska ríkisútvarpsins.
Líklegt er að með því að nota svo öflugt
eiturefni vilji einræðisstjórnin senda óvinum
sínum „sterk skilaboð og viðvörun“, að mati
Melissu Hanham, sérfræðings í afvopnunar-
málum og málefnum Austur-Asíu við rann-
sóknastofnunina Middlebury Institute of
International Studies í Monterey í Kaliforníu.
Líklegt er að drápið skjóti norðurkóreskum
andstæðingum einræðisherrans skelk í bringu,
jafnt þeim sem hafa flúið heimaland sitt og
þeim sem vilja flýja þaðan undan ógnar-
stjórninni.
Eiga allt að 5.000 tonn af eitri
VX er öflugasta taugaeitur sem vitað er um
og komist lítill dropi af því á húð manns kemst
það auðveldlega inn í líkamann og getur valdið
dauða innan nokkurra mínútna. Það er á meðal
eiturefna sem eru bönnuð samkvæmt alþjóð-
legum sáttmála, CWC, um bann við þróun,
framleiðslu, söfnun og notkun efnavopna og
um eyðingu þeirra. Norður-Kórea er á meðal
sex ríkja sem hafa ekki undirritað sáttmálann,
að sögn fréttaskýranda BBC.
Aðeins Bandaríkin og Rússland hafa viður-
kennt að þau hafi framleitt VX og hafa skuld-
bundið sig til að eyða eiturbirgðum sínum. Tal-
ið er að fleiri lönd hafi orðið sér úti um eitur-
efnið. Sérfræðingar í afvopnunarmálum segja
að Norður-Kórea eigi þriðju mestu VX-
birgðirnar í heiminum, á eftir Bandaríkjunum
og Rússlandi. Varnarmálaráðuneytið í Suður-
Kóreu sagði í skýrslu árið 2014 að talið væri að
einræðisstjórnin í Pjongjang ætti 2.500 til
5.000 tonn af VX og öðrum eiturefnum til hern-
aðar. Hermt er að nokkrar stofnanir í Norður-
Kóreu geti skipulagt árásir með VX, þeirra á
meðal öryggisstofnun sem gegnir því hlutverki
að vernda Kim Jong-un og samstarfsmenn
hans.
Fjórir menn eru í haldi vegna rannsóknar
málsins, þeirra á meðal Norður-Kóreumaður
og tvær konur; önnur frá Indónesíu og hin frá
Víetnam. Konurnar tvær eru grunaðar um að
hafa nuddað klút á andlit Kim Jong-nam í inn-
ritunarsal alþjóðaflugvallarins í Kúala Lúmp-
úr 13. febrúar. Jong-nam dó nokkrum mín-
útum síðar. Rannsókn á sýnum úr andliti og
augum hans leiddi í ljós að VX var notað til að
bana honum.
Lögreglan í Malasíu vill yfirheyra sjö
Norður-Kóreumenn til viðbótar, en talið er að
fjórir þeirra hafi farið til Norður-Kóreu
skömmu eftir morðið. Á meðal sjömenning-
anna er hátt settur starfsmaður sendiráðs
Norður-Kóreu í Malasíu en vegna friðhelgi
hans sem stjórnarerindreka getur lögreglan
ekki yfirheyrt hann nema hann ákveði að gefa
sig fram.
Sagður „spúa lygum“
Einræðisstjórnin í Pjongjang hefur harð-
neitað því að hún standi á bak við morðið. Hún
krafðist þess að lík Norður-Kóreumannsins
yrði sent til Norður-Kóreu þegar í stað og að
þau sem voru handtekin yrðu leyst úr haldi.
Hún hefur einnig sakað yfirvöld í Malasíu um
að bera ábyrgð á dauða Norður-Kóreumanns
en ekki staðfest að Jong-nam sé sá sem var
myrtur. Utanríkisráðherra Malasíu svaraði
með því að hóta að vísa sendiherra Norður-
Kóreu úr landi nema hann hætti að „spúa lyg-
um“ um morðið.
Lögreglan í Malasíu er meðal annars að
rannsaka hvernig eiturefnið komst til landsins.
Fréttaveitan AFP hafði eftir sérfræðingi í ör-
yggismálum að ekki væri erfitt fyrir Norður--
Kóreumenn að smygla eiturefnum til landsins,
t.a.m. með diplómatapósti sem er friðhelgur
samkvæmt alþjóðlegum sáttmála.
Yfirvöld í Malasíu hafa einnig fyrirskipað
hreinsun flugvallarbyggingarinnar og svæða
sem konurnar eru taldir hafa farið á. Frétta-
veitan AP hefur eftir eiturefnafræðingi að efn-
ið hverfi seint og geti stefnt fólki í hættu í lang-
an tíma. Ekki er vitað til þess að neinn farþegi,
flugvallarstarfsmaður eða bráðaliði hafi veikst
vegna eiturmengunar.
Talið að her Saddams hafi beitt VX
Japanski sértrúarsöfnuðurinn Æðsti sann-
leikur notaði VX til að myrða starfsmann
skrifstofu í Osaka árið 1994. Þetta er eina
morðið sem vitað er að hafi verið framið með
VX, fyrir utan drápið á Kim Jong-nam, að
sögn fréttaveitunnar AFP. Leiðtogi safnaðar-
ins, Shoko Asahara, var dæmdur til dauða fyr-
ir að hafa skipulagt morðið og fleiri glæpi,
meðal annars sarín-taugagasárás í jarðlesta-
kerfinu í Tókýó sem kostaði tólf manns lífið ár-
ið 1995.
Grunur leikur á að VX sé á meðal þeirra
eiturefna sem hersveitir einræðisherrans
Saddams Husseins notuðu í efnavopnaárásum
á Halabja, bæ Kúrda, árið 1988 þegar að
minnsta kosti 5.000 manns létu lífið. Einræðis-
stjórnin í Sýrlandi framleiddi einnig VX og
fleiri eiturefni og byrjaði að afhenda þau til
eyðingar árið 2012.
Ætlunin að hræða óvini Kims
Hálfbróðir einræðisherra N-Kóreu myrtur með eiturefni sem er skilgreint sem gereyðingarvopn
Talið er að með því að nota svo öflugt vopn vilji Kim skjóta andstæðingum sínum skelk í bringu
Viðtaki
Vöðvi
Taug
Taugaeitrið VX var notað til að myrða hálfbróður einræðisherra Norður-Kóreu á flugvelli í Kúala Lúmpúr, að sögn lögreglunnar í Malasíu
Eiturefnið VX
Heimild: Bandaríska stofnunin Centers for Disease Control and Prevention (CDC)/The Center for Research Information/National Academies
Áhrif á
líkamann:
Meðvitundarleysi
Hjartabilun
Öndun stöðvast
5 milligrömm á húð
duga til að drepa
fullorðinn mann
Þröngt sjáaldur
Vöðvakrampi
Velgja
Rykkjakrampi
Litlaust í hreinu
formi en er
oftast gulbrúnn
vökvi
Framleitt í Bretlandi á sjötta áratug aldarinnar
sem leið og Bandaríkjaher framleiddi
það í miklummæli á sjöunda áratugnum
Hægt er að nota móteitur
í formi atrópíns ef það
er gert nógu fljótt
Vöðvar hreyfast eftir boðum sem
berast með taugum líkamans
Þegar hreyfiboðin hafa komist
til skila„slekkur“ ensím
á taugaboðunum
Hvernig verkar það?Hvað er það? Hvað gerir það?
Lyktarlaust
og bragðlaust
Taugaboðin
halda áfram af
krafti og valda
stöðugu áreiti,
þannig að vöðvar
og kirtlar þreytast
og öndun stöðvast
að lokum
Kemst í líkamann við innöndun
og smýgur einnig auðveldlega
í gegnum húð
Ráðist var á Kim Jong-Nam á alþjóðaflugvelli
Kúala Lúmpúr 13. febrúar. Hann fékk slag skömmu
síðar og dó í sjúkrabíl á leið á sjúkrahús
„Sterkast af öllum
taugaeiturefnum“: CDC
VX gerir
„slökkvara“
líkamans fyrir
boð til kirtla og
vöðva óvirkan
Hefur seigju
smurolíu
Gufar hægt upp Hægt er að framleiða
það í óvirku formi
og nota brennistein til
að gera það virkt
1
2
3
4
AFP
Grunaðar um morð Myndir af konunum
tveimur sem voru handteknar vegna málsins.
Fréttavefur
Spiegel í Þýska-
landi hefur sakað
þýsku leyniþjón-
ustuna BND um
að hafa njósnað
um erlenda frétta-
menn. Leyniþjón-
ustan er m.a. sögð
hafa komist í
tölvupósta og
hlerað síma í
London og Afganistan, m.a. frétta-
manna breska ríkisútvarpsins,
Reuters og The New York Times.
Njósnirnar hófust árið 1999 að sögn
Spiegel, sem hyggst veita frekari
upplýsingar um málið í dag.
„Þessar ásakanir valda okkur
miklum vonbrigðum,“ sagði tals-
maður BBC um málið. „Fréttamenn
okkar ættu að geta starfað frjálst
og örugglega og veitt heimildar-
mönnum sínum fulla vernd. Við
hvetjum öll stjórnvöld til að virða
starfsemi frjálsra fjölmiðla.“
ÞÝSKALAND
Sögð hafa njósnað
um fréttamenn