Morgunblaðið - 25.02.2017, Síða 27
27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2017
Eyrarbakki Á þessum árstíma er allra veðra von og í gær var víða spáð óveðri. Hvað sem öllu veðri leið gekk lífið sinn vanagang, hvort sem menn voru á leið að kirkju eða frá.
RAX
Öryggisnefnd Fé-
lags íslenskra at-
vinnuflugmanna
(ÖFÍA) hefur ítrek-
að lýst yfir efasemd-
um sínum um að
þær skýrslur sem
Efla verkfræðistofa
vann fyrir Isavia um
nothæfisstuðul og
nothæfistíma
Reykjavíkurflugvallar séu í sam-
ræmi við alþjóðareglur en áhættu-
matsskýrsla Isavia vegna lokunar
svokallaðrar neyðarbrautar, flug-
brautar 06/24, var unnin með hlið-
sjón af þeim. Taldi ÖFÍA að
skýrslan um nothæfisstuðul væri
ekki rétt þar sem leggja bæri fleiri
forsendur til grundvallar útreikn-
ingunum. Hefur það nú verið stað-
fest af Alþjóðaflugmálastofnuninni.
Eins og kunnugt er hefur svokall-
aðri neyðarbraut verið lokað þrátt
fyrir þetta. Var það gert á grund-
velli dóms Hæstaréttar sem snerist
um það að samningar skyldu halda
en ekki um flugöryggi.
Skýrsla Eflu um nothæfisstuðul
Í skýrslu Eflu um nothæfisstuðul
Reykjavíkurflugvallar er hann ein-
göngu reiknaður miðað við tvær
forsendur, þ.e. hliðarvind eingöngu
og hliðarvind, skyggni og skýja-
hæð. Ekki er reiknað með vind-
hviðum, ókyrrð og bremsu-
skilyrðum þó svo að það eigi að
gera þegar veðurskilyrði kalla á
slíkt. Er því sleppt með eftirfar-
andi rökum: „Ekki er talið að sér-
stakar vindaðstæður séu við
Reykjavíkurflugvöll sem kalli á
skoðun á vindhviðum. Þótt vind-
hraði sé mikill í samanburði við
flugvelli í Evrópu sýna mælingar
að hviðustuðull sé eðlilegur og
meðalvindhraði lýsir því aðstæðum
vel.“ Þetta stangast þó algjörlega á
við niðurstöður NLR, hollensks
ráðgjafafyrirtækis sem sérhæfir
sig í flugtæknilegri ráðgjöf, en í
skýrslu þeirra frá 2006 segir: „In
comparison with other European
airports the wind climate of
Reykjavik Airport is considered
extreme, because there exists a
very high probability of strong
winds from various directions.“
Niðurstaða Samgöngu-
stofu 1. júní 2015
Í niðurstöðu Samgöngustofu frá
1. júní 2015 um áhættumatsskýrslu
Isavia vegna fyrirhugaðrar lokunar
flugbrautarinnar kemur fram að
áhættumatið nái hvorki til áhrifa á
flugvallarkerfið í landinu í heild
sinni, neyðarskipulags almanna-
varna né áhrifa á sjúkraflutninga.
Þá nái það ekki til fjárhagslegra
áhrifa á flugrekstur. Bendir Sam-
göngustofa á að gera þurfi sérstakt
áhættumat ef ákveðið verði að loka
flugbrautinni. Engum sögum fer af
því að bætt hafi verið úr þeim van-
köntum sem Samgöngustofa til-
tekur í niðurstöðu sinni. Sam-
göngustofa gerði ekki
athugasemdir við skýrslu Eflu um
nothæfisstuðul en rýndi hvorki né
tók afstöðu til skýrslu Eflu um not-
hæfistíma, enda er orðið „nothæf-
istími“ ekki skilgreint hugtak þeg-
ar kemur að nýtingu flugvalla eða
annarra þátta í flugi. Hefur meiri-
hluti borgarstjórnar þó ítrekað vís-
að til þeirrar skýrslu máli sínu til
stuðnings við það að taka neyð-
arbrautina af skipulagi.
Athugasemdir ÖFÍA við
niðurstöðu Samgöngustofu
Rúmum þremur mánuðum eftir
niðurstöðu Samgöngustofu eða 9.
september 2015 sendi ÖFÍA at-
hugasemdir til innanríkisráðu-
neytis, Samgöngustofu, Isavia og
umhverfis- og samgöngunefndar
Alþingis um að í skýrslu Eflu um
nothæfisstuðul sé hvergi vitnað í
leiðbeiningarreglur Alþjóðaflug-
málastofnunarinnar en í þeim sé að
finna nánari skýringar á þýðing-
armiklum öryggisatriðum sem Efla
tæki ekki til greina sem leiddi til
þess að skýrslan innihéldi alvar-
legar villur. Taldi ÖFÍA skýrsluna
ónothæfa og óásættanlegt væri að
áhættumatsskýrsla Isavia væri
byggð á henni við ákvörðunartöku
um breytt fyrirkomulag Reykjavík-
urflugvallar. Borið hafi að taka mið
af hemlunarástandi flugbrautar,
skyggni, skýjahæð, vindhviðum,
brautarbreidd og stærðum flugvéla
sem flugvellinum sé ætlað að
þjóna. Þar sem þessara atriða hafi
ekki verið gætt sé útreikningur
nothæfisstuðuls rangur. Þá gerir
ÖFÍA athugasemdir við að áhættu-
matsskýrslan taki ekki mið af
sjúkraflugi. Gerir ÖFÍA alvarlegar
athugasemdir við framvindu máls-
ins og bendir á að það sé grund-
vallaratriði að úrvinnsla sem varði
flugöryggismál sé unnin með lög-
mætum og óvefengjanlegum hætti.
ÖFÍA leitaði álits Alþjóðaflug-
málastofnunarinnar (ICAO)
Í nýjasta fréttabréfi Félags ís-
lenskra atvinnuflugmanna er grein
eftir Ingvar Tryggvason, flug-
stjóra og formann ÖFÍA. Þar
kemur fram að eftir ítarlega at-
hugun hafi ÖFÍA komist að þeirri
niðurstöðu að útreiknaður nothæf-
isstuðull Reykjavíkurflugvallar
skv. ICAO-staðli án brautar 06/24
í skýrslu Eflu væri rangur. Alvar-
legasta villan væri sú að bremsu-
skilyrði á flugbrautum væru ekki
tekin með í reikninginn. Bendir
hann á að þar sem engin viðbrögð
hafi borist við bréfinu frá 9. sept-
ember 2015 hafi verið ákveðið að
fá álit Alþjóðaflugmálastofnunar-
innar. Svar hafi borist ÖFÍA þar
sem túlkun ÖFÍA á grein 3.1.3 í
Annex 14 hafi verið staðfest, þ.e.
að taka skuli bremsuskilyrði og
önnur veðurfarsleg atriði með í
reikninginn þegar nothæfisstuðull
sé reiknaður. Þá hafi ICAO tekið
undir túlkun ÖFÍA á SARPS-
hugmyndafræðinni, að leitast ætti
við að ná nothæfisstuðli flugvallar
eins háum og unnt væri, nema
landfræðilegar takmarkanir væru
til staðar. Þá segir hann: „Það
blasir því við að skýrsluhöfundar
hafa mistúlkað grein 3.1.3 í Annex
14 og lokun brautarinnar var að
endingu réttlætt með gallaðri
verkfræðiskýrslu.“
Alþjóða flugmálastofnunin staðfestir
að forsendur voru ekki réttar
Eftir Guðfinnu
Jóh. Guðmunds-
dóttur og Gretu
Björg Egilsdóttur
» Gerir ÖFÍA alvar-
legar athugasemdir
við framvindu málsins
og bendir á að það sé
grundvallaratriði að úr-
vinnsla sem varði flug-
öryggismál sé unnin
með lögmætum og óve-
fengjanlegum hætti.
Guðfinna Jóhanna
Guðmundsdóttir
Borgarfulltrúi og varaborgarfulltrúi
Framsóknar og flugvallarvina.
Greta Björg
Egilsdóttir