Morgunblaðið - 25.02.2017, Page 48
48 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2017
Sýning á verkum eftir myndlist-
armanninn Steingrím Eyfjörð,
Kvenhetjan, stendur nú yfir í Hafn-
arborg í Hafnarfirði og verður mál-
þing í tengslum við hana haldið þar
í dag kl. 14.
Í tilkynningu segir m.a. að það sé
viðkvæmt í samfélagi dagsins í dag
að fá karlmann til að tjá sig um
konur eða eigin sýn á tilfinningar
þeirra og stöðu. Mikilvægi þess að
endurspegla samfélagið með marg-
radda og ósamhljóma kór allra
kynja sé þó stöðugt og réttilega
áréttað. Þá hafi hugmyndin um
femíníska sýningarstjórnun fyrst
og fremst snúist um að sýnd séu
verk kvenna undir stjórn annarra
kvenna.
Með sýningunni sé hins vegar
tekinn annar vinkill á þá hugmynd
og Steingrímur taki sér stöðu í liði
kvenna og skoði orðræðuna um
konuna sem tákn jafnt sem hina ei-
lífu togstreitu milli marglaga veru-
leikans og ímyndarinnar um konur.
Til að greina og skoða stöðu lista-
mannsins gagnvart þessu við-
kvæma efni mun Birta Guðjóns-
dóttir sýningarstjóri leiða samtal
milli Steingríms og þriggja kvenna:
Kristínar Ómarsdóttur rithöfundar
og menningar- og kynjafræðing-
anna Mörtu Sigríðar Pétursdóttur
og Nönnu Hlínar Halldórsdóttur.
Málþing haldið í Hafnarborg í tengslum
við sýningu Steingríms Eyfjörð
Í Hafnarborg Steingrímur Eyfjörð.
Bíó Paradís og Stockfish kvik-
myndahátíðin, sem stendur nú yfir í
kvikmyndahúsinu, bjóða til teitis
annað kvöld í tilefni af Óskars- og
Edduverðlaunahátíðunum sem fara
þá fram um kvöldið og nóttina.
Gleðin hefst kl. 22.30, að lokinni af-
hendingu Edduverðlaunanna, og
mun DJ Óli Dóri þeyta skífum.
Kl. 00.20 verður svo opnað inn í
sal 1 þar sem sýnt verður beint frá
rauða dreglinum á Óskarsverðlaun-
unum en verðlaunahátíðin sjálf hefst
kl. 1.30. Opið verður í Bíó Paradís
þar til verðlaunahátíðinni lýkur.
Teiti eftir Eddu og sýnt frá Óskarnum
AFP
Óskar Gullstyttan eftirsótta.
Stórsveit Reykjavíkur á 25 ára af-
mæli um þessar mundir og mun hún
halda upp á það með afmælistón-
leikum í Kaldalóni í Hörpu í dag kl.
16. Stjórnandi, höfundur tónlistar
og einleikari verður þýski básúnu-
leikarinn Ansgar Striepens en hann
mun vera einn af helstu stór-
sveitafrömuðum Þýskalands og
starfar meðal annars mikið með
Stórsveit þýska útvarpsins í Köln.
Stórsveit Reykjavíkur hélt sína
fyrstu æfingu 17. febrúar árið 1992,
undir stjórn Sæbjarnar Jónssonar,
og hefur upp frá því markað sér
sess í menningarlífi þjóðarinnar
með reglulegu og fjölbreyttu tón-
leikahaldi. Hún hefur haldið tæp-
lega 200 tónleika, gefið út sjö
hljómdiska og komið fram á fjórum
öðrum.
Stórsveit Reykjavíkur fagnar afmæli
Ljósmynd/Mark Wohlrab
Stórsveitafrömuður Þýski básúnu-
leikarinn Ansgar Striepens.
Hrævareldur, sýning á verkum íslenskra graf-
íklistamanna, félagsmanna í Íslenskri grafík,
verður opnuð í galleríinu Nordens ljus í Stokk-
hólmi í dag kl. 13.
Sýningarnefnd félagsins valdi úr innsendum
verkum og bauð auk þess þremur gestum að
sýna með sér sem allir hafa lagt sig eftir að
vinna í grafík. 28 félagsmenn sýna verk sín auk
gestanna þriggja.
Nordens Ljus er gallerí um borð í báti og var
opnað árið 1984 af sama félagi og stofnaði
Grafikens hus sem er þekktur staður í Stokk-
hólmi meðal grafíklistamanna. Félagsmenn eru
listamenn, leikarar, tónlistarmenn, við-
skiptafólk og fólk sem elskar listir, alls kyns
menningu og að njóta lífsins, eins og því er lýst
í tilkynningu.
Sýna grafík í báti í Stokkhólmi
Sirius Handlituð litó-
grafía eftir Hildi Björns-
dóttur frá þessu ári.
Fiðluleikarinn Ari Vilhjálmsson og píanóleikar-
inn Roope Gröndahl flytja verk víða að, allt frá
Frakklandi til Rússlands, á Tíbrár-tónleikum í
Salnum í kvöld kl. 20. Ari og Gröndahl flytja Són-
ötu fyrir fiðlu og píanó eftir franska tónskáldið
Claude Debussy, Fratres eftir eistneska tón-
skáldið Arvo Pärt, Notturno e Tarantella eftir
pólska tónskáldið Szymanowski og að lokum
Sónötu fyrir fiðlu og píanó í D-dúr eftir Rússann
Prokofieff.
Ari býr í Finnlandi þar sem hann er fastráðinn
sem leiðari annarrar fiðlu Fílharmóníusveitar í
Helsinki. Hann kemur gagngert til landsins til þess að spila í Tíbrá í Saln-
um og með honum kemur einn af frambærilegustu píanóleikurum Finn-
lands, Roope Gröndahl, eins og segir í tilkynningu. Fiðla og flygill verði í
aðalhlutverkum í kvöld.
Fiðla og flygill í aðalhlutverkum
Ari Vilhjálmsson
Það er ekki nóg með að Batman þurfi að kljást
við glæpamennina í Gotham borg, heldur þarf
hann að ala upp dreng sem hann hefur ættleitt.
Morgunblaðið bbbmn
Metacritic 75/100
IMDb 7,9/10
Laugarásbíó 14.00, 15.40, 17.45
Sambíóin Álfabakka 13.00, 14.00, 15.20, 16.20, 17.40,
20.00, 22.20
Sambíóin Egilshöll 13.00, 14.00, 15.10, 17.40, 20.00
Sambíóin Kringlunni 13.00, 15.20
Sambíóin Akureyri 13.00, 15.20, 17.40
Sambíóin Keflavík 13.00, 15.20
The Lego Batman Movie Fifty Shades Darker16
Christian berst við innri djöfla sína og Anastasía lendir í
heift þeirra kvenna
sem á undan henni
komu.
Metacritic 32/100
IMDb 5,0/10
Sambíóin Egilshöll
17.30, 20.00, 22.30
Sambíóin Kringlunni
22.20
Smárabíó 20.10, 22.45
Borgarbíó Akureyri
20.00
Gamlinginn 2 IMDb 6,5/10
Gamlinginn fer í ferðalag
um alla Evrópu í leit að
rússneskri gosdrykkjaupp-
skrift sem hann týndi
snemma á áttunda áratug
síðustu aldar. Til allrar
óhamingju er hann ekki sá
eini sem leitar hennar.
Sambíóin Kringlunni
17.40, 20.00, 22.40
Sambíóin Akureyri 20.00
La La Land Morgunblaðið bbbbb
Metacritic 93/100
IMDb 8,5/10
Sambíóin Álfabakka 20.00
Sambíóin Egilshöll 17.20,
20.00
Sambíóin Kringlunni 14.40,
17.20, 20.00, 22.10
Sambíóin Akureyri 22.20
Split 16
Metacritic 62/100
IMDb 7,5/10
Laugarásbíó 20.00, 22.30
Sambíóin Keflavík 22.10
Smárabíó 17.20, 19.30,
20.00, 22.10, 22.35
Háskólabíó 18.00, 21.00
Borgarbíó Akureyri 20.00,
22.20
Fist Fight 12
Metacritic 37/100
IMDb 5,9/10
Sambíóin Álfabakka 13.30,
15.40, 17.50, 20.00, 22.10,
22.40
Sambíóin Egilshöll 13.00,
15.40, 17.50, 20.00, 22.10
Sambíóin Akureyri 17.40,
20.00, 22.20
Sambíóin Keflavík 17.40,
20.00
xXx: Return of
Xander Cage 12
Metacritic 42/100
IMDb 5,6/10
Sambíóin Álfabakka 20.20,
22.40
Sambíóin Egilshöll 15.20,
22.20
Manchester by the
Sea 12
Metacritic 96/100
IMDb 8,1/10
Smárabíó 13.30, 16.30,
17.15
Háskólabíó 15.00, 18.10,
21.00
Borgarbíó Akureyri 17.30
The Space Between
Us Metacritic 33/100
IMDb 6,5/10
Sambíóin Keflavík 17.30,
20.00
Smárabíó 16.50, 19.45,
22.30
Gold 12
Metacritic 49/100
IMDb 6,5/10
Laugarásbíó 20.00, 22.30
Háskólabíó 21.10
Rings 16
Metacritic 25/100
IMDb 5,7/10
Sambíóin Álfabakka 22.40
Sambíóin Egilshöll 22.40
Hjartasteinn
Morgunblaðið bbbbm
IMDb 7,9/10
Smárabíó 14.00, 17.20
Háskólabíó 15.20, 18.10,
21.10
Monster Trucks 12
Metacritic 41/100
IMDb 5,5/10
Sambíóin Álfabakka 17.40
John Wick:
Chapter 2 16
Morgunblaðið bbbmn
Metacritic 75/100
IMDb 8,6/10
Laugarásbíó 17.00, 20.00,
22.30
Sambíóin Keflavík 22.30
Háskólabíó 15.10, 18.00
Borgarbíó Akureyri 22.20
T2: Trainspotting 12
Morgunblaðið bbbmn
Metacritic 62/100
IMDb 7,9/10
Smárabíó 20.10, 22.45
Borgarbíó Akureyri 17.30
Rogue One:
A Star Wars Story 12
Morgunblaðið bbbmn
Metacritic 66/100
IMDb 8,3/10
Sambíóin Álfabakka 20.00
Fantastic Beasts and
Where to Find Them
Bönnuð yngri en 9 ára.
Metacritic 66/100
IMDb 7,7/10
Sambíóin Álfabakka 17.40
Syngdu Metacritic 60/100
IMDb 7,3/10
Laugarásbíó 13.45, 17.45
Sambíóin Álfabakka 13.00
Sambíóin Keflavík 13.00
Smárabíó 13.00, 15.00
Háskólabíó 15.30
Vaiana Metacritic 81/100
IMDb 8,3/10
Sambíóin Álfabakka 13.20,
15.20
Sambíóin Egilshöll 13.00
Sambíóin Akureyri 13.00
Sambíóin Keflavík 15.20
Billi Blikk IMDb 5,2/10
Laugarásbíó 13.45, 15.50
Smárabíó 12.50, 15.00
Tröll Metacritic 45/100
IMDb 6,8/10
Smárabíó 13.00, 15.15
Sieranevada
Bíó Paradís 22.45
Mother
IMDb 6,3/10
Bíó Paradís 16.00
A Quiet Heart
Bíó Paradís 22.00
Cameraperson
Bíó Paradís 22.20
Dogs
Bíó Paradís 20.20
Fukushima, Mon
Amour
Bíó Paradís 18.00
Glory
Bíó Paradís 16.30
Kate Plays Christine
Bíó Paradís 13.30
My Life as a
Courgette
Bíó Paradís 14.00
Nightlife
Bíó Paradís 18.15
Paradise
Bíó Paradís 20.30
Pretenders
Bíó Paradís 20.00
Rusalka
Sambíóin Kringlunni 17.55
Sami Blood
Bíó Paradís 18.30
The Kings’s Choice
Bíó Paradís 14.00
Kvikmyndir
bíóhúsannambl.is/bio
Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna