Morgunblaðið - 29.04.2017, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 29.04.2017, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2017 DIMMALIMM Sett 12.195 kr. Nú 10.366 kr. Húfa 3.195 kr. Nú 1.866 kr. Sendum frítt á næsta pósthús DimmalimmReykjavik.is Úlpur Buxur Húfur Laugavegi 53 | Sími 552 3737 | Opið mán.-fös. 10-18, lau. 10-17 Regn og Vindgallar 15% AFSLÁTTUR Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Þ etta voru kornungir menn sem teljast stofnfélagar karlakórsins. Á fyrstu tónleikunum, sem haldn- ir voru í Bárubúð í Reykjavík þann 25. mars árið 1917, stóðu 20 ungir menn á palli og með- alaldur þeirra var 25 ár, sá yngsti var 17 ára, sá elsti var 39 ára og söng- stjórinn, Jón Halldórsson, var aðeins 27 ára. Sex þeirra voru fæddir Reyk- víkingar, sjö voru af Vesturlandi, einn Vestfirðingur, tveir Skagfirð- ingar og fjórir Sunnlendingar. Flest- ir þeirra gátu talist verslunarmenn en aðrir iðnaðarmenn; tveir voru klæðskerar, einn rakari, bólstrari, bakari, gullsmiður, vélstjóri, prent- ari, málari og pípari. Kórfélagar end- urspegluðu því vel þær starfsgreinar sem bæjarbúar skipuðu,“ segir Ar- inbjörn Vilhjálmsson, formaður Karlakórsins Fóstbræðra, þegar hann rifjar upp sögu kórsins, en Fóstbræður minnast þessara fyrstu tónleika á vortónleikum sínum nú hundrað árum síðar. „Allir voru þessir ungu menn sem stofnuðu kórinn félagar í KFUM og því hét kórinn Karlakór KFUM. En það var ekki fyrr en tíu árum síðar sem söngmenn fengu inn- göngu í kórinn án þess að vera fé- lagar í móðurfélaginu. Tveimur ára- tugum síðar hættu þeir að kenna sig við KFUM og tóku upp nafnið Fóst- bræður, eftir kvartettinum vinsæla sem Jón Halldórsson söng í áður en hann tók við stjórn karlakórsins.“ Skarphéðinn í brennunni lifir Arinbjörn segir að það efni sem kórinn hafi flutt á þessum fyrstu al- mennu tónleikum sínum hafi verið afrakstur fjögurra mánaða æfinga undir stjórn Jóns Halldórssonar, en fyrsta æfing kórsins fór fram 18. nóvember í kjallara KFUM- heimilisins við Amtmannsstíg. „Á efnisskrá voru níu sönglög en einnig léku þeir Emil Thoroddsen og Loftur Guðmundsson þrjú lög á píanó og harmóníum. Fyrsta lagið sem hljómaði á þessum fyrstu tónleikum var lag Helga Helgasonar við texta Hann- esar Hafstein „Skarphéðinn í brenn- unni“ sem hefst á orðunum „Buldi við brestur og brotnaði þekjan“, seg- ir Arinbjörn og bætir við að Gamlir Fóstbræður syngi einmitt þetta fyrsta lag kórsins á vortónleikunum núna. „Hin lögin sem ungu stofn- félagarnir sungu fyrir hundrað ár- um, voru „Er svellur stríð“ eftir Grunholtzer, „Maalet“ eftir Winter- Hjelm, sænska þjóðlagið „Þú sögu- ríka Svíabyggð“, „Heiðstirnd bláa“ eftir Wetterling, „Æðir stormur“ eft- Sungu fyrst í Báru- búð fyrir 100 árum Þeir voru verslunarmenn, klæðskerar, rakari, bólstrari, bakari, gullsmiður, vél- stjóri, prentari, málari og pípari, sem fylltu hóp þeirra 20 ungu manna sem stofn- uðu kór fyrir heilli öld. Í þeim hópi var Vestfirðingur, Skagfirðingar og Sunnlend- ingar. Og enn syngur kórinn, þó úr öðrum börkum berist söngurinn. Hátíðleg stund Arinbjörn og Frú Vigdís Finnbogadóttir að loknum afmælistónleikum sl. haust þegar kórinn varð 100 ára. Arinbjörn færði henni silfurnisti með Fóstbræðrahörpu sem er félagsmerki kórsins. Vigdísi voru þakkaðar samverustundir í gegnum árin, en m.a. fylgdi kórinn henni tvisvar vestur um haf og söng á viðburðum þar sem hún var viðstödd. Kropið Við sama tækifæri söng kórinn fyrir nýja forsetafrú Elizu Reed, og fóru allir á hnén. Árni Harðarson stjórnandi hafði fullt vald á körlunum. Hannesarholt í miðbæ Reykjavíkur er vel með á nótunum á barna- menningarhátíðinni. Í dag, laug- ardag, kl. 14 geta börn komið þangað til að læra að rappa. Hann- es Hafstein sem byggði Hann- esarholt árið 1915 var skáld og hann hefði kunnað að meta skap- andi og rappandi börn í sínu húsi. „Rapp er rím, rapp er ryþmi, rapp er tjáning, rapp er dans, rapp er tónlist – rapp er sköpun.“ Um rappkennsluna sjá ungir og hæfileikaríkir rapparar, þeir Kol- beinn Sveinsson og Daníel Ósk- arsson, en meðal þess skemmti- lega sem þeir hafa gert með fleirum er hið vinsæla lag og myndband Dimmalimm með Rjóm- anum sem flest börn þekkja. Þeir gera myndbönd, spila í hljómsveit, taka þátt í leiklist og hafa verið með rapp- og leiklistarnámskeið fyrir börn. Á morgun, sunnudag, verður í Hannesarholti boðið í spuna- ferðalag um heima og geima kl. 14. Háfleyga-Hraðskreiða er æv- intýralegt faratæki sem ferðast um allan heim, kafar í höfin og svífur um geiminn og lendir nú í Hann- esarholti til að taka börnin með í ferðalag. Háfleyga-Hraðskreyða og frúin í Hamborg er bók eftir Svandísi Guðrúnu Ívarsdóttur sem hún skrifaði sérstaklega til að dreifa huga veikra barna. Þegar Svandís var sjálf barn veiktist hún alvar- lega og síðar veiktist hennar eigin dóttir og var rúmföst á sjúkrahúsi. Þannig varð sagan um farartækið Háfleyga-Hraðskreiða og Frúnni í Hamborg til. Svandís gaf bókina út í einungis 200 eintökum og gaf börnum sem lágu á Barnaspítala Hringsins. Börnin stíga um borð í Hannesarholti og spinna saman ævintýralegt ferðalag um heima og geima. Þórdís Lilja Samsonardóttir mun sitja við stýrið á spunafarar- tækinu. Allir velkomnir og aðgangur ókeypis. Barnabröns, vöfflur og fleira á hátíðartilboði á veit- ingastað Hannesarholts. Stuð á Barnamenningarhátíð í Hannesarholti um helgina Rapparar Kolbeinn Sveinsson og Daníel Óskar sjá um rappkennsluna. Börnin læra að rappa og spinna með Háfleyga-Hraðskreiða Haldið hefur verið upp á 50 ára af- mæli íþróttafélagsins Gróttu á Sel- tjarnarnesi með ýmsum viðburðum alla vikuna, frá afmælisdeginum sem var 24. apríl. Í dag, laugardag, verður afmælis-Zumbatími í Hertz-höllinni kl. 14 þar sem Jói, Thea, Davíð Gísla og Brynhildur munu stjórna. Einnig verður Gróttudagurinn á Seltjarnar- nesi í dag þar sem opið verður út í Gróttu og hátíð þar á milli kl 13:30 og 15:30 og opið upp i Gróttuvitann. Af- mælishátíðinni lýkur með risaballi í Hertz-höllinni í kvöld þar sem Páll Óskar mun halda upp fjörinu frá kl. 23:30 til 3:00. Endilega … …farið út í Gróttu og á Pallaball Morgunblaðið/Árni Sæberg Páll Óskar Alltaf í stuði. Íslenska stríðsárasafnið á Reyðar- firði hefur verið útbúið með sjálf- virkri hljóðleiðsögn í snjallsímum sem fyrirtækið Locatify setti upp. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Locatify. Safnalausnin veitir líflega viðbót við sýningu safnsins en gest- ir geta hlustað á frásagnir um hvernig stríðið horfði við íbúum Reyðarfjarðar og hermönnum í setu- liðinu, sem virkjast á þeim svæðum á sýningunni sem þeir eru staddir á. Safnalausn Locatify er byggð á ís- lensku hugviti en fyrirtækið sérhæf- ir sig í hugbúnaðarlausnum tengd- um staðsetningu. Gestir sýningarinnar sogast inn í sögur af stríðinu Þegar gestir koma inn á safnið eru þeim rétt heyrnartól og snjall- sími. Gesturinn skoðar safnið og hlustar á sögur um leið, sem til- heyra sérhverju sýningarsvæði. Sjálfvirka smáforritið tengist blá- tannasendum, sem settir voru upp á vettvangi, og kveikir sjálfkrafa á Sjálfvirk hljóðleiðsögn í snjallsímum á íslenska stríðsárasafninu Tæknin gæðir safn nýju lífi Stríðsárin Þau voru fyrir margt merkileg á Íslandi og gaman að kynna sér.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.