Morgunblaðið - 29.04.2017, Page 45

Morgunblaðið - 29.04.2017, Page 45
DÆGRADVÖL 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2017 Baðaðu þig í gæðunum Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 • www.tengi.is • tengi@tengi.is Opið virka daga frá kl. 8-18 og laugardaga kl. 10-15 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það er eitt og annað sem hvetur þig til varfærni þótt þig langi mest sjálfan til að láta skeika að sköpuðu. Farðu út í móa og öskraðu hátt og snjallt. 20. apríl - 20. maí  Naut Skilaboð virðast týnast núna, hvort sem þau eru á töflunni, í símanum eða krotuð á miða. Vandvirkni er nauðsynleg, að öðrum kosti getur allt farið í loft upp og árangurinn orðið enginn. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Til þín verður leitað í sambandi við lausn á viðkvæmu vandamáli. Allir þurfa ást og allir eru færir um að gefa hana. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það er eitthvað sem þú gerir mjög svo rétt! Allt í lífi þínu er á sínum stað. Sumir myndu gera sig ánægða með lausa enda sem bærast í vindinum. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það er töluvert álag á þér núna bæði í einkalífi og starfi. Samræður við nána vini og félaga eru skemmtilegar og uppörvandi og aldrei að vita nema þú öðlist nýja sýn á ein- hvern af viðmælendunum. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það bíða allir eftir ákvörðun þinni og þú getur ekki endalaust hafst við í einskis manns landi. Fjármálin ættu því að ganga vel hjá þér auk þess sem þér ætti að ganga vel í vinnunni. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú ert í ójafnvægi og veist ekki í hvorn fótinn þú átt að stíga. Heilsan batnar ef þú einbeitir þér að því sem þér er kært, ekki því sem þú þolir ekki. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Eitt og annað hefur þú látið reka á reiðanum en nú verður þú að koma skikki á öll mál. Gættu þín í fjármálum. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Farðu varlega í vinnunni í dag, einhver reynir hugsanlega að beita þig blekk- ingum. Hugsaðu vandlega áður en þú talar, það er hlustað á þig. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það hafa orðið miklar breytingar í nánustu samböndum þínum að undanförnu. Ef þig skortir áhuga á félagslegum athöfnum, skaltu reyna að vera hreinskilnari. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það er engin ástæða til að stökkva í felur, þótt andstaða kunni að koma fram við málflutning þinn. Til þín kann að verða leitað sem sáttasemjara og þá hefur þú þitt á tæru. 19. feb. - 20. mars Fiskar Reyndu að bíta á jaxlinn og ljúka verk- efnum sem þér eru falin. Meðtaktu mistök þín og reyndu að gangast við misfellunum. Laugardagsgátan er sem endranæreftir Guðmund Arnfinnsson: Halur mikils háttar er. Hollustuna veitir. Af bestu lyst hann borðum vér. Blómagarðinn skreytir. Þessi er lausn Helga R. Ein- arssonar: Á sínum herðum sómann ber, seður, andann bætir. Ættarlauknum lýst er hér, þeim líka’ er þykjast ætir. Sjálfur skýrir Guðmundur gátuna þannig: Ættarlaukinn virðum vér. Víst mun hollur laukurinn. Laukur á feitum fugli er. Fagur er laukagarðurinn Þá er limra: Varmenni hálfgert er Haukur, en hann er þó skárri en Gaukur, sem þambar vín eins og voðalegt svín og er sinnar ættar laukur! Og síðan kemur ný gáta eftir Guð- mund: Í morgun fór á fætur strax, furðu mikið eftir baks einu sinni enn til taks er nú gáta laugardags: Milli vængjabrodda bil. Bjarg, sem Grettir tók í fang. Skipaleið er landa til. Um Langasand ég þreytti gang. Skagfirðingurinn Jón Gissurarson skrifaði á Boðnarmjöð á fimmtudag: „Hér er nú sunnangola og átta gráðu hiti. Góður vordagur í vændum. Ló- an syngur glaðlega fyrir utan gluggann.“ Nú er liðin nóttin löng napran kulda ekki finn. Heyri ég fagran fuglasöng fyrir utan gluggann minn. Fallegar náttúrustemmningar hreyfa alltaf við manni: Foldin skartar blíð á brá birtan lýði gleður. Lindin hjalar, lóan þá ljúfum rómi kveður. Hallmundur Kristinsson yrkir undir áhrifum frá gömlu stefi: Ef veifað er vænum seðli, veskin takast á loft. Skrýtið hvað skítlegt eðli skýtur upp kolli oft! Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Einn er laukur í ætt hverri Í klípu EKKERT GERIST AF SLYSFÖRUM. ÞAÐ SEGIR FREDDI LÖGGA ALLAVEGANA. OF MIKIL PAPPÍRSVINNA. eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „JÓKA, GEFÐU ÞESSUM MANNI ANNAN KAFFIBOLLA. HANN FANN LYKLANA MÍNA.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... … þegar mamma gerir bláberjamúffur. MUN ÞESSI DAGUR ALDREI TAKA ENDA?! ÉG GET EKKI TEKIÐ ÖRINA ÚT FYRR EN ÉG FINN BÓMULLARHNOÐRANA MÍNA! HREINSAÐU SÁRIÐ BARA MEÐ EINHVERJU ÖÐRU! HÁTTATÍMI! ÉG HEFÐI ÁTT AÐ SPYRJA FYRR ÉG NOTA ÞÁ EKKI TIL ÞESS AÐ HREINSA… JÆJA ÞÁ, EIGIÐ ÞIÐ GÓÐAN DAG. …ÉG SET ÞÁ Í EYRUN MÍN! Víkverji fór á skemmtilega árshátíðum síðustu helgi þar sem boðið var upp á ýmiss konar ferðir um dag- inn til að hita upp fyrir aðal- árshátíðarkvöldið. Árshátíðin var haldin á hóteli á Suðurlandi þar sem flestir gistu tvær nætur. Ferðirnir mörkuðust af því og var til að mynda hægt að fara í fjallgöngu og hjólaferð á breiðdekkjahjóli. Víkverji valdi að fara í skógargöngu og sér ekki eftir því. x x x Ferðinni var heitið í Tumastaðaskógí Fljótshlíð og var fróður leið- sögumaður með í för. Skógrækt rík- isins hóf rekstur gróðrarstöðvar á Tumastöðum 1944 og hófst skógrækt í brekkunum í Tungulandi sem er samliggjandi Tumastöðum árið 1951. Trén þarna eru því orðin há og falleg og hægt er að skoða ýmsar tegundir. Vöxturinn á sumum tegundum gefur skógunum annars staðar á Norð- urlöndum ekkert eftir. Í upphafi var þó plantað heldur þétt og grisjað seint. Það hefur líklegast verið erfitt að sjá fyrir sér allan þennan framtíð- arvöxt. x x x Nú hafa verið gerðir margir stígar ástaðnum sem gaman er að ganga eftir. Þarna er fallegt landslag og skjólsælt og því kjörið að fara í nestisferð þangað en vel var gert við gönguhóp Víkverja sem grillaði brauð á teini og fékk góðan drykk með. x x x Merkilegast er hvað Ísland hefurbreytt mikið um ásýnd á síðustu áratugum vegna skógræktar og á eft- ir að breytast ennþá meira næstu ára- tugi. Þessi breyting er til góðs en með skógum kemur skjól og þar af leið- andi betra veður. x x x Í Japan er skógarbað, „shinrin-yoku“, þekkt fyrirbæri en jap- anskir vísindamenn hafa sannað að það að vera nálægt trjám efli ónæm- iskerfið, minnki streitu, lækki blóð- þrýsting og auki vellíðan. Víkverji hvetur sem flesta til að fara í skóg- arbað og það sem oftast. vikverji@mbl.is Víkverji Þá greindi hann mér svo frá: Þetta er orð Drottins til Serúbabels: Ekki með valdi né krafti heldur fyrir anda minn, segir Drottinn allsherjar. (Sakaría 4:6)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.