Fréttablaðið - 09.12.2017, Síða 10
HEKLA · Laugavegi 170-174 / Audi.is
Straumhvörf
Audi A3 e-tron sameinar tvo heima
Tengiltvinnbíllinn Audi A3 e-tron hefur átt mikilli velgengni að fagna.
Hann var valinn besti rafbíll ársins 2015 af What Car? og er með
fimm stjörnur í árekstrar- og öryggisprófunum hjá Euro NCAP.
50 kílómetra drægni á raforkunni einni saman dugar í flestar ferðir
en með skilvirkri samþættingu rafdrifs og sparneytinnar bensínvélar
er samanlögð heildardrægni allt að 940 km.
Verð frá 4.270.000 kr.
NýsköpuN Sprotafyrirtækið Hefr-
ing hefur sótt um einkaleyfi á
byltingarkenndri tækni sem getur
komið í veg fyrir meiðsli á fólki
og skemmdir á búnaði um borð
í bátum. Um er að ræða búnað
sem nemur högg sem koma á skip
vegna öldugangs; býr til spágildi og
veitir skipstjóra leiðbeinandi upp-
lýsingar um það sem fram undan
er. Segja má að með óbeinum hætti
mildi hann höggin og tjónið sem
kann að hljótast af því þegar bátur
skellur á úfnum sjó.
Viðskiptafræðingurinn Björn
Jónsson er framkvæmdastjóri
fyrirtækisins en að því standa þrír
starfsmenn Rafnars ehf., fyrirtækis
sem í rúman áratug hefur unnið að
þróun, hönnun og smíði á bátum.
Auk Björns eru það Karl Birgir
Björnsson og Kári Logason sem að
Hefringu standa, en nafnið merkir
rísandi alda og á rætur í norrænni
goðafræði.
Björn segir að hugmyndin hafi
verið að gerjast í þeim undan-
farin ár, enda hafi reglulega borist
fréttir af slysum, jafnvel hrygg-
brotum, sem orðið hafa um borð í
bátum á sjó. Nú sé vinnan komin á
þann stað að búið sé að leggja inn
einkaleyfis umsókn og hanna fyrstu
frumtýpur.
Búnaðurinn virkar þannig að
mælar í skrokki bátsins fylgjast
með framgangi siglingarinnar og
birta skipstjóranum leiðbeinandi
upplýsingar um sjólag og líkur á
því að komið sé að hættumörkum
hvað varðar meiðsli vegna högga.
Búnaðurinn safnar upplýsing-
unum þannig að hægt er að skoða
hvernig sá sem stýrði skipinu brást
við í aðstæðunum sem uppi voru.
„Markmiðið með þessu er að draga
úr tíðni og alvarleika slysa. Þá er
þetta til þess fallið að draga úr álagi
á vélbúnað báta,“ segir hann en til
lengri tíma mætti þannig draga úr
viðhaldskostnaði.
Fyrst um sinn er markmiðið að
leggja áherslu á að hanna búnaðinn
fyrir farþegabáta, enda séu slys í
slíkum ferðum tíðari en ætla mætti.
Hann segir að evrópskar rannsókn-
ir sýni að innan við helmingur slysa
um borð í bátum sé tilkynntur.
Björn segir að búið sé að prófa
búnaðinn og að ljóst sé að hann
virki. Hann gefi skipstjórnanda
skýrar upplýsingar um það hve-
nær rétt sé að slá af. Tæknin verður
kynnt næsta vor en Björn vonast til
að hægt verði að koma á samstarfi,
við háskóla, um þróun á búnað-
inum. Tæknin verður kynnt Sam-
göngustofu, sjóslysanefnd, trygg-
ingafélögum og rekstraraðilum báta
á næstunni.
Björn bindur vonir við að á síðari
stigum málsins, þegar alþjóðlegt
einkaleyfi liggi fyrir, muni Hefring
leita að fjárfestum til að starfa með.
Hann segir að fyrirtækið sé lítið
dæmi um hvernig nýsköpun getur
sprottið af annarri nýsköpun, sem
er Rafnar í þessu tilviki. Hann lofar
Össur Kristinsson, eiganda Rafnars,
og segir hann hafa skapað hvetjandi
umhverfi fyrir sprotastarfsemi.
Hann kallar jafnframt á að ný ríkis-
stjórn sinni nýsköpun og geri Ísland
að ákjósanlegum stað fyrir starf-
semi slíkra fyrirtækja.
Björn segir að viðtökurnar hafi
verið góðar. „Öllum líst vel á þetta.
Það er verið að taka á stóru vanda-
máli sem þessi slys eru,“ segir hann
og bendir á að slysatíðni meðal
starfsfólks í skipum í strandgæslu
og öðrum greinum sé margföld á
við slysatíðni meðal starfsfólks í
landi. „Rafnar gæti dregið úr slysa-
hættu með því að framleiða báta
sem búnir eru þessum búnaði,“
segir hann. baldurg@frettabladid.is
Nýr búnaður fyrirbyggir meiðsli á sjó
Íslenskt sprotafyrirtæki hannar búnað sem fyrirbyggir meiðsli á fólki og skemmdir á skipum. Með honum er hægt að spá fyrir um högg
vegna öldugangs og halda skráningu um aðgerðir skipstjóra. Búið er að prófa búnaðinn og sótt hefur verið um alþjóðlegt einkaleyfi.
Stofnendur Hefringar ehf. Frá vinstri: Kári Logason þróunarstjóri, Björn Jónsson framkvæmdastjóri og Karl Birgir
Björnsson, sölu- og markaðsstjóri. Þeir ætla að leita eftir fjárfestum til að starfa með. Mynd/ÞorSteinn SigurBJörnSSon
9 . d e s e m b e r 2 0 1 7 L A u G A r d A G u r10 f r é t t i r ∙ f r é t t A b L A ð i ð
0
9
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:0
3
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
7
0
-5
8
1
C
1
E
7
0
-5
6
E
0
1
E
7
0
-5
5
A
4
1
E
7
0
-5
4
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
2
8
s
_
8
_
1
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K