Fréttablaðið - 09.12.2017, Qupperneq 12
Það er mikilvægt að vera í góðum tengslum við fólkið sitt og náttúruna. Á fjórhjóladrifnum KODIAQ
með val um sjö sæti og glerþak, getur þú sameinað þetta tvennt og notið þess að ferðast með ánægju.
Endurnýjaðu tengslin við það mikilvægasta í lífinu á nýjum ŠKODA KODIAQ.
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ www.skoda.is
ENDURNÝJAÐU TENGSLIN
VIÐ ÞAÐ MIKILVÆGA Í LÍFINU
NÝR ŠKODA KODIAQ MEÐ MÖGULEIKA Á 7 SÆTUM.
ŠKODA KODIAQ frá:
5.590.000 kr.
PALESTÍNA Í það minnsta einn Pal-
estínumaður týndi lífi og hundruð
særðust í átökum við ísraelska her-
menn í gær. Palestínumenn mót-
mæltu í gær sendiráðstilfærslu
Donalds Trump víðsvegar á Vestur-
bakkanum, á Gaza-ströndinni og á
götum úti í austurhluta Jerúsalem.
Upphaflega hermdi palestínska
heilbrigðisráðuneytið að tveir hefðu
fallið í átökum en sú tala var síðar
lækkuð um helming. Samkvæmt
starfsfólki Rauða hálfmánans fengu
rúmlega 750 manns aðstoð vegna
meiðsla sem þeir hlutu í mótmæl-
unum.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
kom saman til neyðarfundar í gær
eftir að átta þjóðir ráðsins kölluðu
eftir fundi. Þar var ákvörðun forseta
Bandaríkjanna, að færa sendiráð
ríkisins í Ísrael frá Tel Aviv til Jerú-
salem, fordæmd. Ákvörðun Trumps
var algerlega einhliða og lét hann
viðvaranir leiðtoga annarra ríkja,
sem og samstarfsmanna sinna, sem
vind um eyru þjóta.
„Tilfærslan mun ekki eiga sér stað
á þessu ári og sennilega ekki á því
næsta. Forsetinn er hins vegar mjög
staðfastur í að færa sendiráðið til
Jerúsalem um leið og færi gefst,“ segir
Rex Tillerson, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna. Hann var meðal
þeirra sem ráðlögðu forsetanum að
hafa sendiráðið áfram í Tel Aviv.
Leiðtogi Hamas kallaði eftir því
í fyrradag að íbúar Palestínu mót-
mæltu í borgum og bæjum ríkisins.
Kallaði hann eftir nýju „intifada“ en
orðið er arabískt og þýðir upprisa
eða „að hrista einhvern af sér“. Grjót-
kasti Palestínumanna var svarað
með táragasi og gúmmíkúlum.
„Palestínumenn eru auðvitað
reiðir og það eru mótmæli út um
allan Vesturbakkann en lífið heldur
auðvitað áfram hérna í Palestínu,“
segir Bryndís Silja Pálmadóttir, vara-
formaður Íslands-Palestínu.
Bryndís er stödd í borginni Nablus
á Vesturbakkanum, rétt um 50 kíló-
metra norður af Jerúsalem. Þar hefur
hún dvalið undanfarna tvo mánuði
en fyrirhuguð heimkoma er í næstu
viku. Þetta er í þriðja sinn sem hún
dvelur í landinu en hún var þar einn-
ig árin 2013 og 2014 en þá í Hebron.
Fyrst í þrjá mánuði en síðan í hálft ár.
„Þegar þú býrð undir hernámi
þá heldur lífið bara áfram, næstum
sama hvað. Og eins og allt hérna þá
ætlar fólk ekki að gefast upp, það er
þessi staðfesta sem maður finnur
fyrir á hverjum degi. Þrátt fyrir von-
brigði á borð við yfirlýsingu Trumps,
og auðvitað daglegt áreiti og ofbeldi
sem fylgir hernámi og stækkandi
landtökubyggðum, þá ætlar fólk ekki
að gefast upp,“ segir Bryndís.
Hún segir þó að andrúmsloftið
nú minni hana á stöðuna eins og
hún var þegar Bryndís var þar árið
2014. Þá stóðu árásir Ísraelsmanna á
Gaza-svæðinu sem hæst og þúsundir
týndu lífi.
„Þá var auðvitað örvænting, mót-
mæli og mikil reiði út um allt. Ísra-
elski herinn svarar hins vegar öllu
með meira ofbeldi, meiri vopnum.
Hann nýtir hvert tækifæri til þess
að beita hóprefsingum og auka veru
sína hérna á Vesturbakkanum. Ég
óttast að staðan nú gæti orðið til þess
að sprengjum verði varpað á Gaza á
nýjan leik,“ segir Bryndís.
„Það er ekki að sjá á Ísraelum að
mikið hafi breyst frá því í fyrradag. Í
Tel Aviv í dag var fólk rólegt og ekki
aukinn viðbúnað að sjá,“ segir Silja
Bára Ómarsdóttir, aðjúnkt í stjórn-
málafræði við Háskóla Íslands. Þegar
Fréttablaðið náði tali af henni var
hún stödd í Tel Aviv en gerði ráð fyrir
að heimsækja Jerúsalem í dag.
„Kollegar mínir í akademíunni
hér segja þó að þessi yfirlýsing geri
þá órólega, því afleiðingarnar séu
algjörlega ófyrirsjáanlegar. Við-
brögð þeirra eru því meira í takt
við leiðtoga nágrannaríkjanna en
viðbrögð Netanyahu, sem tók yfir-
lýsingunni fagnandi. Það sýnir auð-
vitað þennan gífurlega aðstöðumun
sem er á þjóðunum tveimur, að Pal-
estínumönnum finnst þeir ekki eiga
annarra kosta völ en að mótmæla
á götum úti, á meðan Ísraelar geta
haldið áfram í hversdagsleikanum,“
segir Silja.
„Þessi yfirlýsing hefur í raun gert
hófsömum talsmönnum málstaðar
Palestínu erfiðara um vik og er senni-
lega ekkert nema olía á eld hinna
öfgasinnaðri.“ johannoli@frettabladid.is
Tilfærslan olía á eld hinna öfgasinnaðri
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fordæmdi einhliða sendiráðstilflutning Donalds Trump á neyðarfundi. Íslendingur á Vesturbakkan-
um segir íbúa ekki munu gefast upp. Stjórnmálafræðingur óttast að ákvörðunin þrengi að hófsamari talsmönnum málstaðar Palestínu.
Sjúkraliðar hlúa að manni sem særðist á Gaza. Samkvæmt Rauða hálfmánanum særðust yfir 750 í gær. NORDIC PHOTOS/AFP
9 . d E S E m b E r 2 0 1 7 L A U G A r d A G U r12 f r é T T i r ∙ f r é T T A b L A ð i ð
0
9
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:0
3
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
7
0
-4
4
5
C
1
E
7
0
-4
3
2
0
1
E
7
0
-4
1
E
4
1
E
7
0
-4
0
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
2
8
s
_
8
_
1
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K