Fréttablaðið - 09.12.2017, Qupperneq 36
Át a k i ð # k v e n n a -starf var sett af stað á árinu og vísar til flokkunar starfs-greina í karla- og kvennastörf. Að því
standa Samtök atvinnulífsins og
allir iðn- og verkgreinaskólar lands-
ins. Átakið hefur það að markmiði
að fjölga konum í iðn- og verkgrein-
um. Í átakinu hefur verið reynt að
ráðast að úreltum staðalímyndum
sem ríkja um hlutverk kynjanna.
Deila reynslusögum
Ólafur Sveinn Jóhannesson, deildar-
stjóri hjá Tækniskólanum, segir
annað mikilvægt markmið með
átakinu að gefa konum í karllægum
iðngreinum vettvang til að deila
reynslusögum og læra hver af ann-
arri. „Þessi vettvangur kom einna
helst í ljós á Facebook-síðu her-
ferðarinnar, þar sem konur voru
duglegar að senda inn myndir og
segja reynslusögur sínar, hvort
sem um var að ræða reynslu úr
skóla eða atvinnulífi. Myllumerkið
#kvennastarf varð líka vinsælt á
Instagram þar sem margar konur
deildu myndum af sér við hin ýmsu
störf og hvöttu fleiri stelpur til þess
að kynna sér nám í viðkomandi
greinum,“ segir Ólafur Sveinn.
Ekki marktækur munur
„Þegar kemur að aðsókn í þær grein-
ar sem voru tilteknar í herferðinni
var ekki „marktækur“ munur á milli
umsókna í vor, þegar litið er á hlut-
fall kvenna sem sækja um í þessum
karllægu greinum, á milli skólaára.
Þess ber þó að geta að þó nokkur
aukning var í ákveðnum greinum
svo sem skipstjórn og rafiðngrein-
um,“ segir Ólafur Sveinn og telur
áhrif herferðarinnar líklega koma
betur í ljós á næstu árum.
„Konur sem velja að læra vél-
stjórn, húsasmíði eða skipstjórn
eru ekki aðeins fyrirmyndir yngri
stelpna sem langar að gera slíkt hið
sama, heldur kvenna á öllum svið-
um samfélagsins. Að mörgu leyti
var herferðin komin langt út fyrir
iðn- og tæknigreinar, ekkert ósvipað
og #meetoo byltingin sem byrjaði
með konum í kvikmyndageiranum
en spannar nú allar starfsgreinar,
en það kom vel í ljós – á kvenrétt-
indadaginn 8. mars – þegar Íslands-
banki birti heilsíðuauglýsingar í
dagblöðum undir fyrirsögninni
„Bankastjóri er #kvennastarf“,“ segir
Ólafur Sveinn.
Tengja við herferðina
Hann segir ungar konur sem hófu
nám í Tækniskólanum á vormánuð-
um tengi við herferðina – þrátt fyrir
að vera ekki endilega í karllægum
geira. „Þær tengja við þessa upp-
lifun, þá upplifun að þurfa að sanna
sig meira eða réttlæta stöðu sína.
Mjög fáir vita af því að herferðin
er sú eina sem allir iðn- og verk-
menntaskólar á landinu – auk
Samtaka iðnaðarins – vinna í sam-
einingu. Það má segja að þetta hafi
verið upphafið á því að vinna að
sameiginlegu markmiði, sem er að
fjölga nemendum sem velja iðn- og
tæknigreinar að loknum grunnskóla
úr 13 prósentum í 20 prósent fyrir
árið 2020,“ segir Ólafur Sveinn.
Marín Björk Jónasdóttir, sviðs-
stjóri iðn- og starfsnáms í Borgar-
holtsskóla, skynjar eins og Ólafur
Sveinn mikla viðhorfsbreytingu.
„Við bjóðum áttundu bekkingum til
okkar og stelpurnar hafa sýnt tölu-
verðan áhuga á iðnnámi. Ég held
að það skipti miklu máli að kynna
námið sem fyrst, það er of seint að
bjóða tíundu bekkingum í heim-
sókn. Þá eru hugmyndir orðnar
mótaðri. Þeir eru í raun búnir að
ákveða sig. Við erum að spýta í lóf-
ana í kynningarstarfi,“ segir Marín.
#meetoo byltingin hefur áhrif
„Eitt af því sem skiptir máli er að ég
er komin yfir sviðið hér í Borgar-
holtsskóla. Þó að ég sé ekki iðn-
menntuð. Ég er menntuð náms- og
starfsráðgjafi. Fyrirmyndirnar eru
nefnilega fáar en mikilvægar,“ segir
Marín og segir #metoo byltinguna
munu einnig hafa áhrif til góðs.
„Ég er sannfærð um að þessi bylgja
skilar sér í bættri menningu og sam-
skiptum. Það er búið að vera að taka
til í hinum ýmsu greinum. Nektar-
dagatölin eru farin af bílaverkstæð-
unum og fleira. Það er viðhorfið í
dag að komi svona mál upp, áreitni,
ofbeldi eða kvenfyrirlitning, sé tekið
á því strax. Byltingin vekur stráka og
karla til umhugsunar um talsmáta.
Það er mikilvægt, því athugasemdir
sem eru stundum látnar flakka og
eru óviðeigandi hafa mikil áhrif á
ungar stúlkur sem eru fáar í þessum
iðngreinum og staða þeirra því við-
kvæmari,“ segir Marín.
Á móti straumnum
Auður Linda Sonjudóttir bifvélavirki við vinnu hjá Bernhard. FréTTABLAðið/AnTon Brink
Konur sem velja að læra karllægar iðngrein-
ar eru fyrirmyndir yngri stelpna og annarra
kvenna í samfélaginu. Það er ein niðurstaða
átaksins #kvennastarf sem hófst í vor fyrir
tilstilli allra iðn- og verkmenntaskóla lands-
ins. Stúlkur í iðnnámi og aðrar sem hafa
nýlokið slíku námi ræddu um stöðuna við
blaðamann. Þær eru bjartsýnar á atvinnu-
möguleika sína og ánægðar með námið.
Auður Linda Sonjudóttir,
bifvélavirki hjá Bernhard.
Auður Linda útskrifaðist sem bifvélavirki frá Borgarholts-skóla í vor og stefnir á að
klára samning á verkstæði til sveins-
prófs. Örfáar konur stunduðu nám
með henni. „Auðvitað hefði ég viljað
sjá fleiri konur í þessu námi. Með
fleiri konum breytist vinnumenn-
ingin.
Konur geta vel unnið störf á borð
við að vera bifvélavirki. Þetta hefur
ekki verið í fjölskyldunni. Ég er ekki
alin upp við þetta. Pabbi var ekki
með bíla eða mamma, en ég vildi
geta gert þetta sjálf.“
Auður Linda ákvað að fara í nám
í bifvélavirkjun í Borgarholtsskóla.
Í skólanum er starfsnám í bíliðn-
greinum, bifreiðasmíði, bifvéla-
virkjun og bílamálum. Námið er
hagnýtt og miðar að því að undirbúa
nemendur undir töku sveinsprófs.
Nemendur geta líka stundað nám til
stúdentsprófs samhliða námi á bíl-
tæknibrautum og ættu því að geta
stundað háskólanám ef vilji stendur
til. „Mér finnst iðnnám bjóða upp á
fleiri möguleika á vinnumarkaði en
ungt fólk gerir sér grein fyrir. Tæknin
hefur breyst og gert það að verkum
að þetta eru ekki eins þung störf. Þau
reyna ekki jafn mikið á líkamlegan
styrk og áður. Það er stundum sagt
að störfin séu ekki aðlaðandi fyrir
stelpur, vinnustaðirnir séu skítugir
og svo framvegis. Og vissulega kem ég
heim skítug og með skrámur en það
er þess virði. Þetta starf er skemmti-
legt, vinnustaðurinn lifandi. Mér
finnst gaman að leysa málin fyrir
fólk. Fólk hefur orðið hissa á náms-
valinu og kannski viljað benda mér
á eitthvað annað í staðinn. Eða efast
um að ég hafi lært þetta í alvörunni
og svona. Það breytist vonandi með
enn meiri tækniframförum og fleiri
stelpum í námi. Það eru allavega
nóg atvinnutækifæri,“ segir Auður
sem vinnur bara með karlmönnum.
„Það er mjög skemmtilegt og lengir
lífið þótt þeir séu stundum skrýtnir,“
segir hún og hlær.
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
Aðrir efuðust um námið og starfsvalið
Fólk heFur orðið
hissa á námsvalinu og
kannski viljað benda
mér á eitthvað annað
í staðinn. eða eFast um
að ég haFi lært þetta í
alvörunni.
nektardagatölin eru
Farin úr bílaverkstæð-
unum og Fleira. það er
viðhorFið í dag að komi
svona mál upp, áreitni,
oFbeldi eða kvenFyrir-
litning, að það sé tekið
á því strax. byltingin
vekur stráka og karla
til umhugsunar.
Marín Björk
9 . d e s e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r d A G U r36 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
0
9
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:0
3
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
7
0
-8
4
8
C
1
E
7
0
-8
3
5
0
1
E
7
0
-8
2
1
4
1
E
7
0
-8
0
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
2
8
s
_
8
_
1
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K