Fréttablaðið - 09.12.2017, Blaðsíða 38
Afar fáar stelpur í iðnnámi
Í Borgarholtsskóla eru 315 nem-
endur í verknámi. Þar af eru 29
stelpur og 286 karlar.
Flestir stunda nám á bíltækni-
braut, þar eru 185 strákar og 23
stelpur.
Á málm- og véltæknibraut er
101 strákur við nám á móti sex
stelpum.
Í Véltækniskólanum stunda 225
nemendur nám. Þar af eru þrettán
stelpur. Hlutfallið er lágt. En þó
hafa fleiri konur skráð sig til náms
undanfarið. Haustið 2015 voru
stelpurnar til dæmis aðeins sex.
Í Skipstjórnarskólanum stunda
58 nemendur nám, þar af eru fimm
stelpur. Tveimur fleiri en vorið
2015.
Í Raftækniskólanum stunda 233
nemendur nám, þar af eru sextán
stelpur. Tvöfalt fleiri en vorið 2015
þegar þær voru aðeins átta talsins.
Hlutföllin snúast við í handverks-
skólanum þar sem 174 nem-
endur stunda nám. Þar stunda 148
stelpur nám en 26 strákar.
Í Byggingartækniskólanum
eru 324 nemendur, 44 þeirra eru
stelpur eða 14%. Hlutfallið hefur
lækkað en vorið 2015 var það 26%.
Málm- og
véltæknibraut
Bíltæknibraut
Véltækniskólinn
Raftækniskólinn6%
NemeNda í véltækNi-
skólaNum eru stelpur.
11
%
89%
6% 6%
94% 94%
Handverksskólinn
15%
85%
93%
7%
Skipstjórnarskólinn
9%
91%
n
K
on
ur
n
k
ar
la
r
Kamile Morkute,
nemandi í Raftækniskólanum
Kamile situr og vinnur að verkefni í Tækniskólanum í fullum kennslusal. Hún er
eina stelpan í hópnum en segist vön
því að skera sig úr vegna áhugasviðs
síns.
„Það er ein önnur stelpa sem er
með mér í náminu en við erum ekki
í öllum tímum saman. Allir krakk-
arnir hér eru opnir hér fyrir mér.
Mér líður vel í skólanum og mér
líður ekkert eins og ég sé öðruvísi.
Ég hef unnið í raflögnum og það
var pínu skrýtið. Ég var eina stelpan.
Ég var að vinna við að tengja, þá eru
aðallega eldri karlar að vinna með
mér. Ég er vön að gera það sem er
ekki hefðbundið svo það er ekki
stórmál. Ég sætti mig við að vera
ein af fáum konum í bransanum.
Ég hugsa að ég velji mér starfsvett-
vang hjá stóru fyrirtæki frekar en
annan vettvang. Þar eru meiri líkur á
spennandi verkefnum og fjölbreytt-
ari vinnustað,“ segir Kamile.
Díana Del Negro og
Högna Álfgeirsdóttir,
nemendur í Skipstjórnarskólanum
Díana Rós Del Negro er aðeins fimmtán ára gömul og skráði sig í Skipstjórnar-
skólann strax eftir grunnskóla.
Högna Álfgeirsdóttir er alin upp
við sjómennsku. Hún hefur starfað
í útgerð og á sjó frá sextán ára aldri
og er frá sjávarplássi á Suðurlandi.
„Ég var ákveðin í því að læra það
sem ég hef áhuga á. Og það er allra
helst þetta. Ég sé ævintýri í þessu
og ýmsa möguleika,“ segir Díana
Rós.
Högna segist vilja bæta við sig
námi til að auka möguleika sína
á hærri launum og betri stöðu í
útgerð.
„Það er nú ástæðan fyrir því að
ég er hér. Ég vil auðvitað fá hærri
laun og er að styrkja stöðu mína í
nánustu framtíð. Annars þá hefur
mér alltaf verið vel tekið í vinnu og
ég er alveg örugg með að fá vinnu
eftir nám,“ segir hún.
Þegar blaðamaður heimsækir
þær á venjulegum skóladegi sitja
þær í skólastofu sem er annars
full af strákum. Þeir spyrja blaða-
mann strax af hverju þeir séu ekki
líka til viðtals. „Við erum þó tvær í
dag allavega, það er fínt. Strákarnir
taka okkur ágætlega,“ segir Högna.
Hekla Karen Pálsdóttir,
matreiðslumaður á Jamie Oliver
Ég hef starfað í faginu í sex ár og hef alltaf verið heppin með samstarfsfélaga,“ segir Hekla
Karen Pálsdóttir matreiðslumaður
aðspurð um viðhorf til hennar í
faginu. „Ég var soldið mikið spurð
um það hvort ég ætlaði að verða
ólétt þegar ég var í náminu og hve-
nær ég ætlaði að eiga börn. Kokkar
vinna langan vinnudag og það gerir
það erfiðara að vera með ungbörn,
ég man ekki eftir því að strákarnir
væru spurðir að þessu. Það var ein
stelpa sem hætti í náminu árinu
áður en ég byrjaði vegna þess að
hún var ólétt, það hefur vakið upp
þessar pælingar hjá fólki. En ég held
að viðhorfið sé að breytast hratt.“
En var Hekla Karen alltaf viss
um hvað hún vildi gera? „Nei, ég
get ekki sagt það, ég elti hjörðina
eftir 10. bekk og fór í nokkra áfanga
í fatahönnun áður en ég ákvað að
fara í matreiðsluna í MK. Skemmti-
legustu tímarnir í grunnskóla voru
heimilisfræði og textíll og bóknám
reyndist mér erfitt því að ég glími
við námserfiðleika. Matreiðslu-
áhugann fékk ég frá foreldrum
mínum, þau eru bæði flink í eld-
húsinu. Ég man að ég var ekki nema
fjögurra ára þegar að ég var farin að
slá saman egg og elda með pabba.“
Konum fjölgar jafnt og þétt í stétt-
inni og er hún ekki lengur eins mikil
karlastétt og áður. „Ég horfði á alla
þættina hennar Hrefnu Sætran, hún
var mín fyrirmynd þegar ég byrjaði.
Ég hringdi bara í hana og óskaði
eftir því að komast á samning hjá
henni. Ég byrjaði að vinna á Fisk-
markaðnum undir hennar leið-
sögn og ég var fyrsta stelpan sem
lauk námi með hana sem meistara.
Hrefna Sætran er ótrúlega góð og
sterk fyrirmynd, ég á henni mikið
að þakka.“ Í dag starfar Hekla
Karen á veitingastaðnum Jamie
Oliver sem var nýverið opnaður
á Íslandi. „Ég ákvað að breyta til
og sótti um hérna, ég hef mikinn
áhuga á ítalskri matargerð, andinn
í eldhúsinu er góður og fyrst þegar
ég byrjaði að vinna hér voru fleiri
stelpur á vaktinni en strákar. Sem er
vísbending um breytta tíma.“ – áhg
Hrefna Sætran var sterk fyrirmynd
Hekla Karen við störf í eldhúsinu. FRéttaBlaðið/aNtoN BRiNK
Vilja ævintýri og hærri laun
Vön því að skera sig úr
Díana Rós Del Negro og Högna Álfgeirsdóttir. FRéttaBlaðið/aNtoNBRiNK
ég horfði á alla þætt-
iNa heNNar hrefNu
sætraN, húN var míN
fyrirmyNd.
Kamile Morkute stundar nám í Raftækniskólanum. Henni líður vel í skólanum
og er bjartsýn á atvinnumöguleika sína. FRéttaBlaðið/aNtoN BRiNK
ég hef uNNið í raf-
lögNum og það var píNu
skrýtið. ég var eiNa
stelpaN.
Fyrir þá sem gera kröfur um
gæði og árangur
Bókið frían tíma
í skoðun/viðtal
Hlíðasmára 9 • Kópavogi • S. 893 0098 • snyrt@snyrt.is • www.snyrt.is
Snyrtistofan Hafblik
Supreme Hollywood-meðferðarpakki
– einfaldlega frábær !
Náttúruleg og tær uppbygging á húð.
Gjöf sem gefur margfalt !
Hin fullkomna jólagjöf handa þeim sem
þér þykir vænst um !
9 . d e s e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r d A G U r38 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
0
9
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:0
3
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
7
0
-9
8
4
C
1
E
7
0
-9
7
1
0
1
E
7
0
-9
5
D
4
1
E
7
0
-9
4
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
2
8
s
_
8
_
1
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K