Fréttablaðið - 09.12.2017, Qupperneq 42
Það hefur verið vaxandi virkni og kraftur í grasrótinni undanfarin misseri. Konur hafa lýst frelsi
yfir eigin líkömum með brjósta-
byltingunni. Druslugangan hefur
stækkað ár eftir ár og þúsundum
saman hafa konur mótmælt druslu-
skömmun. Fjöldi kvenna og þó
nokkrir karlar hafa gefið út yfirlýsing-
ar um að hafa verið beitt ofbeldi með
forsíðumyndum á samfélagsmiðlum
og nú hefur skollið á #metoo eða
Églíka byltingin.
Það er eins og flóðgáttir hafi
opnast. Það er nú ljóst að sterku
konurnar í stjórnmálunum hafa ekki
sloppið. Gáfuðu vísindakonurnar
og hæfileikaríku listakonurnar ekki
heldur og fleiri kvennahópar eru að
kortleggja
ástandið
í sínum
röðum.
Mesta sjokkið
og þarfast
verður það,
ef stelpur frá unga aldri fá sömu
hvatningu og styrk til þess að segja frá
því ofbeldi sem þær eru beittar. Það
gildir að sjálfsögðu líka um stráka.
Ég líka byltingin hefur leitt í ljós að
ofbeldið hefur verið framið í augsýn
og með vitneskju margra. Ofbeldis-
mennirnir hafa notið þess að þeir
sem áttu eitthvað undir þeim, sáu
sér þann kost vænstan að bregðast
ekki við, eða jafnvel hvetja til frekara
ofbeldis. Þannig
virkar samsæri þagnarinnar.
Karlar eru í lykilhlutverki
Afhjúpanirnar verða að leiða til
þess að við tökum meiri ábyrgð.
Nú verður að eiga sér stað kröftug
vitundarvakning gegn meðvirkni því
hlutleysi er afstaða í sjálfu sér. Við
verðum öll að taka okkur tak og beita
okkur gegn hvers kyns niðurlægingu
og ofbeldi sem við verðum vitni að.
Skiptum okkur af og segjum hátt og
skýrt frá þegar okkur misbýður.
Vinnustaðir, skólar, stofnanir og
stjórnvöld verða að endurskoða
sofandahátt gegn ofbeldi. Fyrirbyggja
það, gera það ljóst að það verði ekki
látið viðgangast og draga til ábyrgðar
þá sem því beita.
Hinn ósanngjarni samfélagssátt-
máli kynjanna hefur gengið út á það
að nógu margir karlar beiti ofbeldi
til þess að valdamynstrið breytist
ekki. Því verður ekki lengur á móti
mælt að karlar í öllum stéttum hafa
kerfisbundið varið valdastöðu sína
með því að beita konur hvers kyns
kynbundnu og kynferðislegu ofbeldi
eða hótunum um ofbeldi.
Það er óþægileg staðreynd að
karlar almennt njóta afleiðinga þess
að sumir þeirra beita ofbeldi. Það
er vegna þess að ofbeldi sumra gerir
því miður alla karla tortryggilega og
það getur verið nóg til þess að konur
leitist við að haga sér þannig að sem
mestar líkur séu á að þær sleppi.
Það mikilvægasta sem þarf að eiga
sér stað nú er að allir karlar skilji og
viðurkenni að ofbeldi byggist alltaf
á valdi og að það hafi ótal birtingar-
myndir. Að þeir axli ekki bara
ábyrgð á sjálfum sér heldur líka á
kynbræðrum sínum. Að þeir hrökkvi
ekki í vörn, heldur beiti sér bæði per-
sónulega og í hópum til þess að skapa
með okkur konum nýjan og réttlátari
samfélagssáttmála.
Frá opnun Stígamóta hafa ofbeldis-
menn alltaf talist mun fleiri en brota-
þolar. Raunverulegur fjöldi þeirra er
óþekktur, sumir eru margtaldir, en
önnur ástæða fyrir þessum mikla
fjölda er sú að stundum kemur fólk
eftir hópnauðganir eða endurtekið
ofbeldi.
Á síðasta ári voru það 515 karlar og
22 konur sem beittu 372 manneskjur
ofbeldi. Þessi kynjahlutföll hafa verið
svipuð í fjölda ára.
Ofbeldismenn byrja oft feril sinn
ungir og sumir hafa langan brotaferil.
Á síðasta ári voru 125 ofbeldismenn
undir 18 ára aldri. Aðspurðir sögðust
100 brotaþolar vita til þess að við-
komandi hefði beitt aðra ofbeldi líka.
Samkvæmt rannsókn Hildigunnar
Magnúsdóttur og Katrínar Erlings-
dóttur frá árinu 2006 virðast ungu
kynferðisbrotamennirnir árásargjarn-
ari en þeir eldri. Þannig var oftast um
fullframdar nauðganir að ræða þegar
þeir voru á aldrinum 16-18 ára. Þeir
sem nauðguðu fullorðnum konum
voru um það bil hættir um þrítugt
á meðan þeir sem beittu börn kyn-
ferðisofbeldi voru á öllum aldri.
Meðferð kynferðisbrotamanna er
almennt lítil á Íslandi, áhrifaríkasta
leiðin til þess að sporna við kyn-
ferðisofbeldi eru öflugar forvarnir.
Ofbeldismenn
Því verður ekki
lengur á móti
mælt að karlar
í öllum stéttum
hafa kerfis-
bundið varið
valdastöðu
sína með því
að beita kon-
ur hvers kyns
kynbundnu og
kynferðislegu
ofbeldi eða
hótunum um
ofbeldi.
Afhjúpanir um kerfisbundið
kynferðisofbeldi
Guðrún
Jónsdóttir
talskona
Stígamóta
# et o
125
ofbeldismenn voru undir
18 ára aldri á síðasta ári.
En það er ekki
nóg að virkja
fleiri karlmenn í
baráttunni gegn
kynferðisofbeldi, og
það er ekki nóg að segja
„góðir strákar nauðga
ekki“. Það þarf að
dýpka umræðuna.
Hjálmar SigmarssonStígamót hafa alla tíð lagt mikla áherslu á umræðuna um ofbeldismenn, enda
snýst allt starf Stígamóta um
afleiðingar gerða þeirra.
Við karlmenn erum í lykil-
hlutverki til þess að takast á við
nauðgunarmenningu og það
hvernig þessi menning réttlætir
ofbeldi og gerir ofbeldismönnum
kleift að komast upp með
ofbeldisverkin. Byltingar undan-
farinna ára hafa sýnt að þeir sem
beita ofbeldi eru venjulegir menn
– þetta eru vinir, ættingjar, vinnu-
félagar og áhrifavaldar. Við karl-
menn komumst því ekki lengur
upp með að segja að ofbeldi
komi okkur ekki við og það séu
bara örfá skrímsli sem fremji
slíka verknaði. Við karlar erum
í lykilstöðu til að takast á við þá
ofbeldismenn sem við þekkjum.
Þetta vekur auðvitað upp þá
spurningu hvernig við nálgumst
þessa umræðu og auk þess hvernig
við tryggjum að umræðan sé
brotaþolavæn. Hvernig tryggjum
við að umræðan nái lengra í að
brjóta niður nauðgunarmenn-
ingu og að færri karlmenn beiti
kynferðisofbeldi? Karlar eru meira
áberandi í jafnréttisumræðunni í
dag en áður. En það er ekki nóg að
virkja fleiri karlmenn í baráttunni
gegn kynferðisofbeldi, og það er
ekki nóg að segja „góðir strákar
nauðga ekki“. Það þarf að dýpka
umræðuna. Við karlmenn þurfum
að taka virkan þátt í að berjast
gegn fjölbreyttum birtingar-
myndum kynjamisréttis og kyn-
ferðisofbeldis í okkar umhverfi. Til
þess að vera raunverulegir banda-
menn í þessari baráttu þurfum
við að taka ábyrgð, við verðum að
leggjast í sjálfskoðun og eiga erfið
samtöl við karla í okkar lífi.
Það er skylda okkar að bæta
hlustunarskilyrðin. Til þess
þurfum við að halda áfram
að hlusta, læra og skilja.
Námskeið fyrir
áhugasama karla
Stígamót munu halda nám-
skeið helgina 24.-25. febrúar
2018, fyrir karla sem vilja taka
virkan þátt í baráttunni gegn
kynferðisofbeldi. Mark-
miðið verður að þátt-
takendur öðlist dýpri
skilning á mikilvægum
viðfangsefnum sem
varða kynferðis-
ofbeldi gegn
konum og öðlist
verkfæri til að
þróa aðferðir og
aðgerðir til að ná
til og virkja fleiri
karlmenn í baráttunni. Til
að skrá ykkur og fá nánari
upplýsingar um nám-
skeiðið sendið tölvupóst
á hjalmar@stigamot.is.
Kynferðisofbeldi gegn konum –
hvað getum við karlar gert?
Hjálmar
Sigmarsson
ráðgjafi
á Stígamótum
4 StíGAmót 9 . d e S e m b e r 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
0
9
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:0
3
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
7
0
-A
7
1
C
1
E
7
0
-A
5
E
0
1
E
7
0
-A
4
A
4
1
E
7
0
-A
3
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
2
8
s
_
8
_
1
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K