Fréttablaðið - 09.12.2017, Qupperneq 44
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is,
s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@365.is,
s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Svanur Valgeirsson
Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.Is, s. 512 5457 | Jóhann Waage,
johannwaage@365.Is, s. 512 5439 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.Is,
s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.Is, s. 512 5433
Í versluninni á Snorrabraut 56 má finna fjölbreytt úrval gjafavöru og einnig
fallegar skinnflíkur sem er einungis hægt að fá þar.
Skinnin eru vottuð og í háum gæðaflokki.
Í versluninni er mikið úrval af fallegum yfirhöfnum og kápum.
Selskinnsjakkar og kápur frá græn-
lenska merkinu Great Greenland.
Feldirnir hjá Feldi eru fjölbreyttir og fallegir.
Ef skinnflíkin passar ekki er lítið mál
að breyta henni á Feldi Verkstæði.
Feldur Verkstæði er fjölskyldufyrirtæki sem sérhæfir sig í hönnun á skinnvörum. Hjónin
Heiðar Sigurðsson og Kristín
Birgisdóttir stofnuðu Feld Verk
stæði til að auka úrvalið á skinn
varningi sem þeim fannst tak
markað. Þau vildu leggja áherslu á
klassískar vörur úr skinni þar sem
notagildi og gæði eru í hámarki,
bæði í efni og framleiðslu. Kristín
segir þau kaupa vottuð skinn sem
keypt eru á uppboðum bæði í Dan
mörku og Finnlandi og eru þannig í
miklum gæðaflokki. Það sama á við
um framleiðsluna þar sem þau eru í
nánu sambandi við framleiðendur
sem allir sérhæfa sig í ákveðinni
skinnvinnslu. Það hefur tekið mörg
ár að finna bestu framleiðendurna
og eru þau sífellt að vinna í því að
halda gæðum og þróa vörur sem
eru klassískar og óháðar ákveðinni
tískubylgju. „Klassískar skinnvörur
eru fjárfesting, þær lifa lengi og
endast vel. Ef þú kaupir pels getur
hann gengið í arf til afkomenda,
eins og gull. Fallega skinnhúfu áttu
alla ævi, svo framarlega sem þú
týnir henni ekki. Við erum einnig
með mikið af smávöru sem er ekki
óþarflega dýr og flestir geta keypt
og hefur notið mikilla vinsælda.“
Vörur frá Feldi hafa í mörg ár
verið til sölu í ýmsum verslunum,
þar á meðal í Geysi og Ramma
gerðinni. Heiðar og Kristín hafa
byggt fyrirtækið hægt og rólega
upp og smám saman aukið vöru
úrvalið. Með tímanum ákváðu þau
að opna eigin verslun sem sýnir
allt það úrval af vörum sem þau
hafa hannað og þróað gegnum
árin. Eftir opnun verslunarinnar á
Snorrabraut 56 bættu þau við sig
úrvali af pelsum, mokkakápum
sérgerðum krögum og vestum. Auk
þess hafa þau verið að þróa skinn
fóðraða úlpu sem er mjög vinsæl í
dag að sögn Kristínar.
Heiðar útskrifaðist sem feld
skeri frá skóla í Tranos í Svíþjóð
árið 1983 og hefur unnið við fagið
síðan, þó með hléum. Nú hefur
dóttir þeirra Marta sem er lærður
fatahönnuður byrjað að vinna
með þeim í þróun og hönnun á
vörunum. „Það sem er á döfinni
hjá okkur á næsta ári er að hanna
nýjar vörur úr íslensku lambskinni.
Við viljum endurvekja klassísku
íslensku mokkavöruna sem einu
sinni var svo vinsæl, eins og gæru
kerrupokann, mokkaskóna og
jafnvel mokkakápuna.“
Samhliða versluninni á Snorra
braut eru þau með verkstæði þar
sem þau taka við gömlum pelsum í
viðgerðir og breytingar.
„Það er svo gaman þegar konur
koma með pelsa sem þær hafa erft
eða fengið að gjöf og við breytum
þeim til að passa á nýja eigandann.
Fólk er oft tilfinningalega tengt
pelsinum sem oftar en ekki er
frá móður eða ömmu en ef hann
passar ekki á neinn þá endar hann
hangandi inni í skáp árum saman.
Það er oft lítið mál að breyta
skinnflíkum og það er gaman að
sjá konur labba út, alsælar í gamla
pelsinum sem hefur öðlast nýtt
líf.“ Kristín bendir enn fremur
á að öllum vörum frá Feldi fylgi
viðgerðarþjónusta. „Við fylgjum
vörunum okkar eftir og ef eitt
hvað bilar þá lögum við það að
kostnaðarlausu. Það er algengur
misskilningur að pelsar og skinn
þurfi einhverja sérstaka meðferð.
Á Íslandi er ekki eins mikill raki og
víða erlendis svo það þarf ekki að
geyma pelsinn á neinn sérstakan
hátt. Og svo segjum við alltaf: Það
þarf bara að nota flíkina, þó það
komi aðeins rigning eða slydda á
pelsinn er það ekkert mál, jafnvel
bara gott fyrir flíkina að vera viðr
uð. Það fer miklu betur með pels að
nota hann en ef hann hangir alltaf
inni í skáp.“
Kristín hlakkar til aðventunnar.
„Núna er að renna í fjórðu jólin hjá
okkur hér á Snorrabraut en það
eru samt ansi margir sem vita ekki
af okkur hér og eru hissa yfir því
að hér sé verslun,“ segir Kristín.
„Það er gaman að vita að fólki
líkar verslunin og oftar en ekki
gengur fólk héðan út með bros á
vör og jafnvel með orðunum: Ég á
eftir að koma hingað aftur! Það er
alltaf skemmtileg stemming hjá
okkur í búðinni á þessum árstíma
og við viljum nota tækifærið til að
bjóða öllum að líta við hjá okkur á
Snorrabrautinni.“
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 9 . d E S E m B E R 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
0
9
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:0
3
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
7
0
-9
3
5
C
1
E
7
0
-9
2
2
0
1
E
7
0
-9
0
E
4
1
E
7
0
-8
F
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
2
8
s
_
8
_
1
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K